Kreppan gaf skapandi greinum nýtt líf

Hönn­un­ar­Mars er haldin í ár í tíunda skiptið, en þar eru rúm­lega hund­rað sýn­ingar eftir hund­ruð hönn­uða. Stjórn­andi hátíð­ar­innar ræðir við blaða­mann Stund­ar­innar um þróun íslenskrar hönn­unar, áhrif batn­andi efna­hags­horfa á skap­andi greinar, og kosti ein­angr­unar lands­ins frá víð­ari heimi.

Kreppan gaf skapandi greinum nýtt líf
Stjórn­andi Hönn­un­ar­Mars Sara Jóns­dóttir segir hátíð­ina end­ur­spegla íslensku hönn­un­ar­sen­una, sem sé gjarnan til­rauna­kennd. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hönn­un­ar­Mars hefur verið fastur liður í vor­dag­skrá Reykja­víkur, en þar eru gjarnan um hund­rað sýn­ingar, stakir við­burðir, ráð­stefnur og tísku­sýn­ingar, á víð og dreif um borg­ina. Hátíðin er haldin í ár 15.–18. mars, en þar koma saman margar mis­mun­andi skap­andi greinar hönn­unar, eins og til dæmis graf­ísk hönnun, arki­tektúr, fata­hönnun, textíll og keramík, en um 400–500 hönn­uðir eru þátt­tak­endur í ár. Hátíðin er nú haldin í tíunda skiptið og Sara Jóns­dóttir, stjórn­andi Hönn­un­ar­Mars, segir að því verði fagnað. „Þetta er stór afmæl­is­há­tíð,“ segir Sara. Setn­ing­ar­at­höfnin er haldin í Hafn­ar­hús­inu 15. mars kl. 17:15, og er sett af borg­ar­stjóra, en þá opna nokkrar sýn­ingar eins og #end­ur­vinnu­málið og verð­launa­sýn­ing Félag íslenskra teikn­ara.

Sara segir að á DesignTalks ráð­stefn­unni í ár, sem er hluti af Hönn­un­ar­Mars, komi fyrst og fremst fram alþjóð­legir hönn­uðir sem eigi álíka langan starfs­aldur og hátíðin. „Við erum að horfa á fram­tíð­ina með augum þeirra undir yfir­skrift­inni „Máttur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár