Milljarður rís, blúshátíð og dragdrottningar í geimnum

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir dag­ana 9.–27. mars.

Milljarður rís, blúshátíð og dragdrottningar í geimnum

DJ Assault, Alvia, Intr0beatz

Hvar? Húrra
Hvenær? 9. mars kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Uppruna ghetto techno-stefn­unnar má rekja til Detroit. Um er að ræða hráa elektróníska og takt­fasta tón­list með ögrandi textum. DJ Assault er oft álit­inn guð­faðir stefn­unnar, en með honum spila Alvia Islandia, íslenska trap-drottn­ingin, sem hefur skipað sér sess í hip-hop sen­unni í Reykja­vík, og Intr0beatz, einn af bestu takt­smiðum Íslands.

Milljarður Rís 2018

Hvar? Harpa
Hvenær? 16. mars kl. 12.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis

UN Women á Íslandi efna í sjötta skiptið til dans­bylt­ingar þar sem ofbeldi gegn konum er mót­mælt. Í ár er við­burð­ur­inn til­eink­aður konum af erlendum upp­runa sem þurfa að þola marg­þætta mis­munun og ofbeldi. Eins og áður mun DJ Margeir þeyta skífum og halda uppi stuð­inu.

Drag-Súgur: Teleport us to MARS!

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 16. mars kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Dragdrottn­ing­arnar í kab­ar­ett­hópnum Drag-Súgur hafa und­an­farin tvö ár haldið reglu­legar sýn­ingar þar sem grín og glens og metn­að­ar­full til­þrif eru í fyr­ir­rúmi. Þema kvölds­ins er geim­ur­inn og það sem honum teng­ist, allt frá fram­úr­stefnu­legri tísku til nör­da­kúltúr. Munið bara að úti í geimnum heyrir eng­inn þig hrópa: „Yaaaas queen!“

Sónar Reykjavík 2018

Hvar? Harpa
Hvenær? 16.–17. mars
Aðgangs­eyrir: 19.990 kr.

Sónar er alþjóð­leg hátíð til­einkuð raf- og dans­tón­list sem var stofnuð fyrir 25 árum, en hún er haldin í fimmta skiptið í Reykja­vík. Fjögur mis­mun­andi svið rísa í Hörpu, þar með tal­inn næt­ur­klúbbur í bíla­kjall­ara bygg­ing­ar­innar. Um 50 hljóm­sveitir og lista­menn koma fram, eins og hin breska Underworld, banda­ríski Danny Brown, Bjarki og fleiri.

Músíktilraunir 2018

Hvar? Harpa
Hvenær? 18.–21. og 24. mars
Aðgangs­eyrir: 1.500–2.000 kr.

Mús­íktil­raunir er árleg keppni ungra tón­list­ar­manna sem á sér yfir 35 ára sögu. Þar koma um 40–50 nýjar hljóm­sveitir fram í von um að verða krýndar sig­ur­veg­arar til­raun­anna. Margar af efni­leg­ustu hljóm­sveitum lands­ins hafa einmitt stigið sín fyrstu skref á hátíð­inni, eins og Mammút, Samaris, Hórmónar, Between Mountains og fleiri.

Babies

Hvar? Húrra
Hvenær? 23. mars kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis

Babies er einn af kröft­ug­ustu og skemmti­leg­ustu coverlaga-flokkum lands­ins, en hann skipa heimsklassa tón­list­ar­menn úr ýmsum hljóm­sveitum. Búast má við miklu fjöri og úrvali af dansvænum lögum frá mis­mun­andi tíma­bilum.

Goth Night: ESA útgáfutónleikar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 24. mars kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

ESA, Electronic Substance Abuse er eins manns verk­efni Jamie Blackers sem hefur verið við­loð­inn svart- og dauða­málms­senu Bret­lands. Sem ESA skapar hann til­rauna­kennda hljóð­heima sem eru undir áhrifum iðn­að­ar­rokks og ein­kenn­ist af þungum og hvössum tor­tím­andi töktum. ESA fagnar útgáfu nýj­ustu plötu sinnar, „The Beast“.

Blúshátíð í Reykjavík 2018

Hvar? Hilton Reykja­vík Nordica
Hvenær? 27.–29. mars 
Aðgangs­eyrir: 11.990 kr.

Blús­há­tíðin hefst með Blús­deg­inum þann 24. mars, þar sem Skóla­vörðu­stíg­ur­inn er lagður undir hátíð­ina frá 14.00–16.00. Þar verður meðal ann­ars til­kynnt um val heið­urs­fé­laga félags­ins 2018. Síðan verða þrennir tón­leikar þar sem koma fram meðal ann­ars Laura Chavez og Ina Forsman, Larry McCray og fleiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár