Dómsmálaráðherra segist ekki hafa brotið lög þótt Hæstiréttur hafi dæmt hana fyrir lögbrot

Sigríður Andersen sendi þing­mönnum skýr skila­boð í umræðum um van­traust­s­til­lög­una: „Það verður í minnum haft hvernig menn greiða hér atkvæði á eftir.“

Dómsmálaráðherra segist ekki hafa brotið lög þótt Hæstiréttur hafi dæmt hana fyrir lögbrot

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra full­yrðir að hún hafi fylgt lögum í einu og öllu þegar hún skip­aði dóm­ara við Lands­rétt í fyrra. Með þessu hafnar hún alfarið nið­ur­stöðum Hér­aðs­dóms Reykja­víkur og Hæsta­réttar Íslands þess efnis að hún hafi brotið stjórn­sýslu­lög við með­ferð máls­ins.  

Þetta kom fram í ræðu Sigríðar á Alþingi rétt í þessu í umræðum um van­traust­s­til­lög­una gegn henni.

„Syst­ur­flok­arnir Píratar og Sam­fylk­ingin hafa einir látið hafa sig það að kalla eftir van­trausti á þennan ráð­herra sem hér stendur, ráð­herra sem fylgdi laga­bók­stafnum í einu og öllu við skipan dóm­ara við hinn nýja dóm­stól. Laga­á­kvæði sem fjalla um skipan dóm­ara við Lands­rétt í fyrsta sinn eru ekki mörg en þau eru alveg skýr,“ sagði Sigríður og rakti í kjöl­farið hvernig hún hefði borið val á dóm­ara­efnum undir Alþingi líkt og lög kveða á um. 

Í sömu ræð­unni sak­aði Sigríður þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar um að „una ekki nið­ur­stöðum dóm­stóla“ og nefndi í því sam­hengi að þing­menn hefðu ætl­ast til þess að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd eða umboðs­maður Alþingis rann­sök­uðu emb­ætt­is­færslur ráð­herra.

Þá sagði Sigríður að valdið til að skipa dóm­ara yrði að vera í höndum ráð­herra en ekki hjá hinni óháðu hæfn­is­nefnd. „Þessi van­traust­s­til­laga sýnir nefni­lega að valdið ti lað skipa dóm­ara á að vera í höndum ráð­herra en ekki hjá and­lits­lausri stjórn­sýslu­nefnd. Hæfn­is­nefndir verða nefni­lega aldrei dregnar til ábyrgðar.“ Undir lok ræð­unnar sagði Sigríður: „Það verður í minnum haft hvernig menn greiða hér atkvæði á eftir.“

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar, þau Katrín Jak­obs­dóttir, Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhann­es­son lýstu yfir stuðn­ingi við ráð­herra í ræðum sínum en umræð­urnar standa enn yfir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár