Bæjarstjórinn á Dalvík þáði boðsferð Samherja en Háskólinn á Akureyri borgaði sjálfur

Bæj­ar­stjóri Dalvíkur, Bjarni Th. Bjarna­son, taldi eðli­legt að þiggja boðs­ferð til Þýska­lands. Háskól­inn á Akureyri þáði boð í ferð­ina en bað um að Samherji sendi reikn­ing fyrir starfs­mann skól­ans.

Bæjarstjórinn á Dalvík þáði boðsferð Samherja en Háskólinn á Akureyri borgaði sjálfur
„Eðli­leg­asti hlutur“ Bjarni segir að hann hafi talið það hinn „eðli­leg­asta hlut“ að þiggja boðs­ferð Samherja til Þýska­lands.

„Eftir að hafa farið yfir málið með mínu fólki hérna á Dalvík þá ákvað ég að þiggja boðið því mér fannst þetta hinn eðli­leg­asti hlutur. Ég vildi sýna Samherja þá virð­ingu og gleðj­ast með þessu fyr­ir­tæki sem er mátt­ar­stólpi í okkar sveit­ar­fé­lagi,“ segir Bjarni Th. Bjarna­son, bæj­ar­stjóri á Dalvík, aðspurður um boðs­ferð sem hann þáði til Þýska­lands frá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, stærsta fyr­ir­tæk­inu á Akureyri, þar sem tveimur tog­urum dótt­ur­fé­lags Samherja, Deutsche Fischfang Union (DFFU, voru gefin nöfn þann 12. jan­úar síð­ast­lið­inn. Bjarni segir að hann hafi verið eini starfs­maður Dal­vík­ur­bæjar sem fór í boðs­ferð­ina. „Ég var sá eini,“ segir Bjarni en Samherji hefur um ára­bil verið með starf­semi á Dalvík.  

„Ég vildi sýna Samherja þá virð­ingu og gleðj­ast með þessu fyr­ir­tæki sem er mátt­ar­stólpi í okkar sveit­ar­fé­lagi“ 

Þegar Samherji hætti að landa á Dalvík

Fyrir nokkrum árum kom meðal ann­ars upp þekkt til­felli þar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sjávarútvegur

Samherji greiðir nær enga skatta á Kýpur af tugmilljarða eignum
FréttirSjávarútvegur

Samherji greiðir nær enga skatta á Kýpur af tug­millj­arða eignum

Dótt­ur­fé­lög Samherja á Kýpur stunda millj­arða króna við­skipti með fisk við önnur félög Samherja en þessi við­skipti koma ekki fram í opin­berum gögnum Hagstofu Íslands. Félögin greiddu aðeins 22 millj­ónir króna í skatta þar í landi á árunum 2013 og 2014, þrátt fyrir að eiga rúm­lega 20 millj­arða eignir þar. Félög Samherja hafa meðal ann­ars lánað pen­inga til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár