Tómas er fallinn frá: „Einstakur öðlingur til orðs og æðis“

„Sorg­ar­fregn sem erfitt er að með­taka,“ segir Björgvin Hall­dórs­son um vin sinn og einn virtasta tón­list­ar­mann Íslands, Tómas Magnús Tómasson, sem er lát­inn.

Tómas er fallinn frá: „Einstakur öðlingur til orðs og æðis“
Tómas Magnús Tómasson Bassa­leik­ar­inn magn­aði er fall­inn frá. Mynd: Facebook

Einn virt­asti tón­list­ar­maður lands­ins, Tómas Magnús Tómass, bassa­leik­ari Stuð­manna, Þursa­flokks­ins og fleiri hljóm­sveita, er fall­inn frá.

Meðal þeirra sem kveðja Tómas eru Valgeir Guð­jóns­son stuð­maður. „Í dag var óvenju­legur dagur - á árvissu afmæli mínu fékk ég fregn­ina um að Tómas Magnús Tómasson alda­vinur minn og félagi hefði kvatt þessa okkar skömmu jarð­vist. Ég syrgi hanni og kveð með virktum - ein­stakur öðlingur til orðs og æðis, Á 66 ára afmæl­is­degi sé ég á bak föru­nauti í hálfa öld og mun sakna hans allar götur.“

Þá kveður Björgvin Hall­dórs­son hann með orð­unum: „Vinur minn og sam­starfs­maður til margra ára Tómas Magnús Tómasson er fall­inn frá. Þetta er sorg­ar­fregn sem erfitt er að með­taka. Hann var með ein­dæmum skemmti­legur og orð­hepp­inn og afbrags tón­list­ar­maður. Ég geymi margar minn­ing­arnar um Tomma og sér­stak­lega okkar tíma í Englandi þegar við bjuggum saman í Dartford og þegar við unnum að Vísna­plöt­unum góðu. Guð blessi minn­ingu Tomma...Hvíl í friði vinur.“

Tómas glímdi við krabba­mein og lést á líkn­ar­deild.

Tómas var bæði bassa­leik­ari, hljóð­færa­leik­ari, tón­list­ar­maður og upp­töku­stjóri. Hann fædd­ist 23. maí 1954 og var því 63 ára þegar hann lést. Að auki átti Tómas til að taka hljóð­nem­ann og syngja. Frægasti flutn­ingur hans á því sviði er pönk­út­gáfa hans af lag­inu Jón var kræfur karl og hraustur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár