Pressan borgaði ekki af jeppa Björns Inga og stefnir í þrot út af ógreiddum iðgjöldum starfsmanns

Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja lagði fram gjald­þrota­beiðni út af skuld Pressunnar ehf. við sjóð­inn. Borgaði ekki iðgjöld starfs­manns í marga mán­uði. Pressan ehf. skuldar bíla­leigu 2,7 millj­ónir út af jeppa sem Björn Ingi Hrafns­son fékk frá fyr­ir­tæk­inu en heild­ar­greiðslur út af jepp­anum nema 8,3 millj­ónum.

Pressan borgaði ekki af jeppa Björns Inga og stefnir í þrot út af ógreiddum iðgjöldum starfsmanns
Beiðni um gjald­þrota­skipti Beiðni Líf­eyr­is­sjóðs Vest­mann­eyja um gjald­þrot Pressunnar ehf. vegna van­greiddra iðgjalda starfs­manns félags­ins var lögð fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur fyrir tveimur vikum. Björn Ingi Hrafns­son var eig­andi og stjórn­ar­for­maður Pressunnar ehf. Mynd: Skjáskot af ÍNN

2,7 millj­óna króna skuld út af leigu á Land­rover-jeppa fyrir Björn Inga Hrafns­son er útistan­andi í bók­haldi Pressunnar ehf. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar. Eins og mið­il­inn greindi frá fyrir síð­ustu helgi fékk Björn Ingi Hrafns­son, eig­andi og útgef­andi fjöl­miðla Pressunnar ehf., afnot af jepp­anum sem hluta af starfs­kjörum sínum síð­ast­liðin ár. Leigan á bílnum var 350 þús­und krónur á mán­uði. Heim­ildir Stund­ar­innar herma að ein­ungis 8,3 millj­ónir af tæp­lega 11 millj­óna leigu bíls­ins hafi verið greiddar til bíla­leig­unnar Arma ehf. Þetta þýðir að Pressan ehf. greiddi ekki af bílnum í meira en sjö mán­uði á meðan Björn Ingi hafði afnot af honum. 

Pressan ehf. var móð­ur­fé­lag fjöl­miðla­fyr­ir­tækis sem Björn Ingi kom á lagg­irnar sem átti meðal ann­ars Eyjuna, Pressuna, DV, Bleikt og ýmis hér­aðs­frétta­blöð. Björn Ingi tjáði sig sjálfur um jepp­ann í síð­ustu viku og sagði Stund­inni frá því að hann væri búinn að skila jepp­anum; hann sagð­ist hafa fengið reikn­ing fyrir des­em­ber­mánuð sendan á sína kenni­tölu. Í færslu á Facebook sagði hann frá því að jepp­inn hefði verið hluti af „starfs­kjörum“ hans. Björn Ingi var sjálfur stjórn­ar­for­maður Pressunnar ehf. og stýrði stjórn­inni við annan manns, Arnar Ægisson, sem er við­skipta­fé­lagi hans til margra ára sem stýrt hefur fjár­málum fjöl­miðla Björns Inga.

Greiddu ekki iðgjöld starfsmanns

Farið hefur verið fram á að Pressan ehf. verði tekin til gjald­þrota­skipta. Þetta var í gert í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á mið­viku­dag­inn fyrir tveimur vikum. Gjald­þrota­beiðnin kom frá Líf­eyr­is­sjóði Vest­manna­eyja.  Úrskurður um hvort fyr­ir­tækið verður tekið gjald­þrota­skipta eða ekki verður kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á mið­viku­dag­inn kemur, á morgun það er að segja. Krafa líf­eyr­is­sjóðs­ins hljóðar upp á rúm­lega 2.8 millj­ónir króna en þar af er höf­uð­stóll kröf­unnar rúm­lega 2 millj­ónir króna. 

„Þetta eru iðgjöld laun­þega sem eru í van­skilum“

Í sam­tali við Stundina segir Haukur Jónsson, for­stjóri Líf­eyr­is­sjóðs Vest­manna­eyja, að sjóð­ur­inn hafi lagt beiðn­ina fram vegna ógreiddra iðgjalda af einum sjóðs­fé­laga. Pressan ehf. greiddi ekki iðgjöld af launum starfs­manns­ins frá seinni hluta síð­asta árs og fram á þetta ár segir Haukur. „Þetta eru iðgjöld laun­þega sem eru í van­skilum og við erum bara að reyna að tryggja kröf­una með eðli­legum hætti. Þetta eru nokkrir mán­uðir sem eru í van­skilum og myndar þokka­lega kröfu. Við erum bara að fylgja hefð­bundnum verk­lags­reglum,“ segir for­stjór­inn en umrædd van­skil áttu sér stað í eig­enda­tíð Björns Inga Hrafns­sonar þegar Pressan ehf. var móð­ur­fé­lag DV ehf., Pressunnar, Eyjunnar og fleiri fjöl­miðla. Hann segir að Pressan ehf. hafi ekki haft sam­band við líf­eyr­is­sjóð­inn til að greiða kröf­una upp og eftir atvikum reyna að forð­ast gjald­þrota­skipti félags­ins. 

Haukur segir því að af öllu óbreyttu þá stefni Pressan ehf. í gjald­þrot út af mál­inu. For­stjór­inn segir að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi lagt fram trygg­ingu fyrir skipta­kostn­aði í mál­inu, 300 þús­und krónur.   

Harðar deilur staðið yfir

Miklar deilur hafa staðið yfir vegna eign­ar­halds Pressunnar ehf. og tengdra félaga síð­ast­liðna mán­uði á milli Björns Inga Hrafns­sonar og aðila honum tengdum og Róberts Wessmann og aðila honum tengdum. Félag tengt Róberti, Dalurinn ehf., setti tug­millj­óna króna hlutafé inn í Pressuna ehf. fyrr á árinu en stjórn Pressunnar ehf. ákvað eftir þetta að selja allar helstu eignir félags­ins út úr því og til fyr­ir­tæk­is­ins Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf. sem lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son fer fyrir. Þetta var gert án vit­neskju Dalsins ehf. og þýddi í reynd að Pressan ehf. var búin að selja þær eignir sem Dalurinn ehf. var nýbú­inn að kaupa í.  Litlar eignir eru því eftir inni í félag­inu Pressan ehf. og óljóst hversu mikið kröfu­hafar félags­ins muni fá upp í kröfur sínar.

Síðan þetta gerð­ist hefur verið skipuð ný stjórn yfir Pressuna ehf. sem er nú mönnuð aðilum á vegum Dalsins, meðal ann­ars Ómari Valdi­mars­syni. Hin nýja stjórn vill að félagið verði tekið til gjald­þrota­skipta þar sem búið er að rýra eignir þess svo mikið með söl­unni á fjöl­miðl­unum til Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf. 

Í ljós hefur komið að heild­ar­skuldir Pressunnar ehf. og tengdra félaga við opin­bera aðila eins og toll­stjóra út af rimla­gjöldum nam um 500 millj­ónum króna í lok síð­asta árs. Kröfur á hendur Press­unni ehf. munu því að öllum lík­indum verða veru­legar en auk þess á félagið Útvörður ehf. í mála­ferlum við Pressuna út af 90 millj­óna króna láni sem veitt var árið 2014 til að kaupa DV ehf. Þá hefur sænskt ráð­gjafa­fyr­ir­tæki stefnt Press­unni út af 40 millj­óna króna skuld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár