Hringferð um tímann og sorgina

Tíma­garð­ur­inn eftir Guðmund S. Brynj­ólfs­son.

Hringferð um tímann og sorgina
Höf­und­ur­inn Guð­mundur fylgir les­anda úr hlaði með tveimur til­vitn­unum sem má bæði lesa sem ein­hvers konar man­i­festó og sem fyr­ir­fram svar til gagn­rýn­anda.

Samband gagn­rýnenda og rit­höf­unda á litla Íslandi getur verið eld­fimt í miðju jóla­bóka­flóði og áður en maður sekkur sér ofan í Tíma­garð­inn fylgir Guð­mundur les­anda úr hlaði með tveimur til­vitn­unum sem má bæði lesa sem ein­hvers konar man­i­festó og sem fyr­ir­fram svar til gagn­rýn­anda. 

Garð­ur­inn„Hvað höfum við mik­inn tíma inn­an­garðs? Hvað höfum við mik­inn tíma utan­garðs? Við erum öll utan­garðs­menn í raun, okkur var vísað burt fyrir ýmsar sakir; stórar og smáar.“

Annars vegar vitnar hann í orð Aristótel­esar um að saga þurfi ekki að vera heild, „því mörg og ótelj­andi atvik geta hent einn mann, án þess að sum þeirra falli í nokkra heild“. Þetta á ágæt­lega við sög­una, sem er oft á mörkum skáld­sögu og ljóða­bókar. Það er vissu­lega sögð nokkuð heild­ræn ferða­saga, þar sem aðal­per­sónan Binni lendir hálf­part­inn óvart í því að keyra hring­inn með Begga frænda sínum og eilífð­ar­fylli­bytt­unni Tóta í tauinu. En við þetta bland­ast minn­ingar um föð­ur­inn og bróð­ur­inn sem hurfu í sæinn og minn­ing­ar­leiftur þegar sú sorg sækir á. Kafl­arnir eru margir stuttir og sumir þeirra frekar eins og ljóð heldur en bókakaflar, og þeir bestu ná að kjarna sög­una ansi vel. Eins og til dæmis þessi kafli:

„Gráir klettar og súld. Mér finnst eins og okkur sé fylgt eftir í þokunni. Bláir hrafnar svífa á risa­vöxnum vængjum með­fram bílnum. Þeir boða enda­laust haust. Haustið sem ég dey. Haustið hennar mömmu. Hitt haustið hennar mömmu.

Fyrra haustið hennar var um vor.“

Það er ein­hver sannur og harm­rænn tónn í þess­ari laun­fyndnu bók, ljóð­rænar mót­sagnir sem kjarna til­vist­ar­vanda aðal­per­són­unnar. En er hún mögu­lega of vel stíluð, talar eitt­hvað nútíma ung­menni eins og hinn 23 ára gamli Binni? Þessu lætur höf­undur Þórberg Þórð­ar­son svara svona áður en sagan byrjar: „Íslenskir les­endur halda enn í dag, að allt sé lygi, sem ekki er dautt og lág­kúru­legt í frá­sögn.“

En ég skal samt alveg við­ur­kenna að ég átti erfitt með að stað­setja Binna og ferða­fé­laga hans í nútím­anum – þessi bók hefði örugg­lega verið miklu meira sann­fær­andi sam­tíma­saga ef hún hefði komið út fyrir svona 20–40 árum síðan. En að því sögðu reynd­ist Tíma­garð­ur­inn mun betri en hin sam­tíma­sagan sem ég er nýbú­inn að lesa, þótt sú væri sann­ar­lega mun meira sann­fær­andi nútími. Vissu­lega hljómar Binni ekki eins og Instagram­mað tví­tandi ung­menni, hann er nokk­urra ára­tuga gömul útgáfa af 23 ára strák – en þessi tíma­skekkja er ekki endi­lega galli, því góður skáld­skapur tekst á við eitt­hvað miklu meira en bara sam­tím­ann. Og vissu­lega eru mörg okkar alltaf pass­lega kyn­slóða­villt og ríma illa við sam­tím­ann sem við erum stað­sett í. Það má raunar finna mögu­lega vís­bend­ingu um af hverju Binni er svona forn í fasi í end­ur­minn­ing­ar­kafla þar sem amma hans kennir honum að lesa með því að láta hann lesa upp úr eld­gömlum blöðum. Þar þylur hann til dæmis upp fyrir hana speki Einars Olgeirs­sonar: „Ein höf­uð­lygi auð­valds­ins á vorum tímum er, að auð­valds­skipu­lag og lýð­ræði sé eitt og hið sama. Á þess­ari blekk­ingu bygg­ist mest allur áróður auð­valds­ins nú á tímum.“ Þetta les barnið á meðan maður kímir yfir inn­ræt­ingu ömm­unnar – en veltir um leið fyrir sér hvort hún hafi óvart frekar inn­rætt honum forna lund frekar en rót­tækan komm­ún­isma.

Andar liðinna drykkjutúra

Binni er dreif­ari í borg­inni, alinn upp í sveit­ar­fé­lag­inu Garði – og það eru ótal pæl­ingar í bók­inni um það að vera utan­garðs og innan garðs – sumar jafn­vel guð­fræði­legar. Morgun einn vaknar hann svo í rúmi ókunn­ugrar konu í vit­lausu sveit­ar­fé­lagi og biður Begga frænda sinn um að sækja sig. Sem hann og gerir – en keyrir hann lengri leið­ina heim. Sumsé hring­veg­inn allan.

Beggi reykir óhóf­lega og Binni er sífellt að skamma hann fyrir að henda stubb­unum út um glugg­ann. Í eitt skiptið fáum við svo þessa visku úr aft­ur­sæt­inu: „Fólk er tregt við að flokka rusl, mjög margir – allt of margir, að mínu mati. Þrátt fyrir stans­lausan áróður. En fólk virð­ist ekki þurfa á neinni hvatn­ingu að halda til þess að flokka annað fólk; aðrar mann­eskjur.“

„Það er ein­hver sannur og harm­rænn tónn í þess­ari laun­fyndnu bók.“

Röddin til­heyrir Tóta, köll­uðum Tóta í tauinu, sem má flokka sem ræki­lega virka fylli­byttu og alþýðu­spek­ing sem eitt sinn var von­ar­stjarna sinnar fjöl­skyldu en drakk allar þær vonir ræki­lega frá sér. Þeir tóku hann upp í á miðri leið og eru á leið­inni með hann í enn eina með­ferð­ina. Begga mætti svo flokka sem óvirkan alka og óvirkan ofbeld­is­mann, mann sem barði kon­una sína og getur aldrei fyr­ir­gefið sjálfum sér. Bók­mennta­lega séð má svo flokka þá báða sem anda lið­inna drykkju­túra, sagan dansar raunar svo oft á mörkum hins raun­veru­lega og drauga­lega að þeir gætu þess vegna verið raun­veru­legir andar.

Þeir eru að taka Binna í heima­til­búna með­ferð, þar sem þeir segja honum í löngu og ljóð­rænu máli, fullu af tor­ræðri speki og ljóð­rænu, að enda ekki eins og þeir. Torræð viska þeirra er oft heill­andi og kall­ast á við harm­inn sem Binni reynir að vinna úr. En þótt þeir tveir séu alkar er þetta ekki endi­lega áfeng­is­með­ferð, fók­us­inn er miklu frekar að berja í brest­ina hjá Binna og hjálpa honum að finna sig, ef það tekst er svo auka­at­riði hvort hann leggur bokkunni eða verður hóf­drykkju­maður í kjöl­farið. Aðal­málið er að fá hann til þess að takast á við sorg­ina sem hamlar öllu hans lífi. Allir þrír eru þeir brotnir menn – en Binna er ennþá hægt að tjasla saman.

Kómísk fortíðarþrá

En í for­tíð­ar­leg­inni nútíð­inni má líka greina söknuð eftir ver­öld sem var. Því er bæði lýst með rétt­látri reiði – eins og þegar Binni rifjar upp þennan böðul lands­byggð­ar­innar:

„Þriðji ætt­lið­ur­inn er staddur á bryggj­unni – heitir örugg­lega nafni afa síns. Hann er á nýjum Benz en hann veit ekk­ert út á hvað þetta gengur. Hann er með spegla­sól­gler­augu og talar í sím­ann. Mamma kenndi mér að þekkja týpuna. Það var eftir að pabbi dó. Hann hafði kennt henni, og sagt:

„Þetta eru gæj­arnir sem drepa byggð­irnar.““

„Svona slær húmor­inn reglu­lega á harm­inn.“

Byggða­póli­tíkin getur þó líka verið drep­fyndin – eins og sést í fyndn­ustu senu bók­ar­innar, en þar vill­ast þeir félagar inn á fund hjá örlitlu sveit­ar­fé­lagi og verða vitni að langri og kostu­legri ein­ræðu odd­vit­ans, sem afgreiðir tann­lækn­ana að sunnan með því að vísa í ein­tenntan mann og full­yrða: „Svona á þetta að vera. Þetta er eðli­legt. Svona eiga tenn­urnar að slitna með manns­lík­am­anum. Öll þessi tann­smíði er óþarfi og ekk­ert annað en sam­særi plast- og postu­líns­iðn­að­ar­ins í Danmörku.“

Svona slær húmor­inn reglu­lega á harm­inn. Mann­lífs­lýs­ingar Guð­mundar eru gáska­fullar sem og fullar gæsku. Við sjáum þennan drengstaula, Binna, sem lifir ann­ars vegar í heimi sér miklu eldra fólks og svo ótal kvenna sem hann á erfitt með að finna ham­ingj­una hjá. Það vekur athygli að þarna eru engir karl­kyns vinir á sama reki, hann er hættur að fara á sjó­inn eftir slysið en það er dálítið eins og í bílnum hafi hann fundið tvö föð­ur­í­gildi og sé sjálfur bæði í hlut­verki bróð­ur­ins látna og sjálfs síns. Þeir keyra eftir strönd­inni og hafið er alltum­lykj­andi og hinir dauðu renna stundum saman við þá lif­andi – og sumar per­sónur virð­ast vera þarna ein­hvers staðar á mörk­unum. Til dæmis birt­ist okkur tvisvar lítil stúlka sem er afskap­lega sann­fær­andi karakter en maður efast samt ein­hvern veg­inn um að sé af þessum heimi. Kápan kall­ast á við þetta, á henni er haf­flötur eða vegur, það er vilj­andi óljóst – og skugga­verur. Binni er sjálf­sagt ein af þeim, þessi ferð snýst um að hjálpa honum að koma í ljós og fóta sig í heim­inum handan þess skerja­garðs sem Tíma­garð­ur­inn er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár