Efri millistétt fær þrisvar sinnum meiri skattalækkun en lágtekjufólk

Lækkun neðra þreps tekju­skatts, sem ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur boðar í stefnu­yf­ir­lýs­ingu, kostar rík­is­sjóð 14 millj­arða ef miðað er við eitt pró­sent. Ábatinn dreif­ist með ójöfnum hætti milli tekju­hópa.

Efri millistétt fær þrisvar sinnum meiri skattalækkun en lágtekjufólk
Fjár­mála­ráð­herra með for­sæt­is­ráð­herra Fyr­ir­huguð skatta­lækkun rík­is­stjórnar undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur mun nýt­ast tekju­hærri hópnum mun betur en þeim tekju­lægri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lækkun tekju­skatts í neðra skatt­þrepi mun skila fólki sem er með meira en 835 þús­und króna heild­ar­laun á mán­uði þrisvar sinnum meiri skatta­lækkun en fólki á lág­marks­launum. 

Ólíkt þeim áhrifum sem til dæmis hækkun per­sónu­af­sláttar hefði mun ábat­inn af tekju­skatts­lækkun dreifast mjög ójafnt milli tekju­hópa. 

Að því er fram kemur í stjórn­ar­sátt­mála Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins ætlar ný rík­is­stjórn að „leggja áherslu á lækkun tekju­skatts í neðra þrepi“. 

Ekki kemur fram hve mikil lækk­unin verður, en í kosn­inga­bar­áttu sinni lof­aði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að lækka neðra þrep tekju­skatts­kerf­is­ins úr 36,94 pró­sentum í 35 pró­sent. 

Samkvæmt útreikn­ingum sem gerðir hafa verið í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu má gera ráð fyrir að 1 pró­sentu­stigs lækkun neðra þreps­ins myndi kosta rík­is­sjóð um 14 millj­arða á ári.

Tveggja pró­senta lækkun gæti því kostað rík­is­sjóð vel á þriðja tug millj­arða króna. Til sam­an­burðar má nefna að fram­lag rík­is­sjóðs til Háskóla Íslands nam 21,1 millj­arði á fjár­laga­ár­inu 2017, fram­lagið til Land­spít­al­ans nam um það bil 55 millj­örðum og fram­lagið til Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nam 4,5 millj­örðum. 

Fari svo að neðra þrep tekju­skatts verði lækkað niður í 35 pró­sent mun fólk sem er með meira en 835 þús­und króna heild­ar­laun á mán­uði fá skatta­lækkun sem nemur 16.199 krónum.

Skatta­af­slátt­ur­inn til þeirra sem eru á lægstu launum, með 280 þús­und króna laun á mán­uði, nemur aðeins þriðj­ung­inum af þessu, eða 5.432 kr.

Fólk við neðri fjórð­ungs­mörk launa, sem er með 470 þús­und krónur á mán­uði fær skatta­lækkun upp á 9.118 kr., en fólk við efri fjórð­ungs­mörk launa sem er með 761 þús­und krónur á mán­uði fær skatta­af­slátt upp á 14.763 kr. 

Hækkun per­sónu­af­sláttar hefði hins vegar skilað öllum tekju­hóp­unum jafn mik­illi skatta­lækkun. 

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vakti athygli á hinni ójöfnu dreif­ingu skatta­lækk­un­ar­innar með mynd­rænum hætti í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í vik­unni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár