Dómari við Landsrétt: Skilaboð MDE „nokkuð misvísandi“

Davíð Þór Björg­vins­son, fyrr­ver­andi dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, telur nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins í máli Egils Ein­ars­sonar gegn Íslandi ekki hafna yfir gagn­rýni.

Dómari við Landsrétt: Skilaboð MDE „nokkuð misvísandi“

Davíð Þór Björg­vins­son, fyrr­ver­andi dóm­ari við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu og nýskip­aður dóm­ari við Lands­rétt, segir að dóm­ar­arnir sem skil­uðu sér­at­kvæðum í máli Egils Ein­ars­sonar gegn Íslandi, þau Paul Lemmens frá Belgíu og Stép­hanie Mourou-Vikström frá Mónakó, hafi tals­vert til síns máls. Þegar horft sé til dóma sem fallið hafa í tján­ing­ar­frelsis- og æru­meið­ing­ar­málum und­an­farin ár og svo dóms­ins sem féll gegn íslenska rík­inu í gær megi vel halda því fram að skila­boð Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu til íslenskra dóm­stóla séu mis­vísandi í þessum efnum og til þess fallin að tor­velda lands­dóm­stólum að full­nægja þeim kröfum sem leiði af dóma­fram­kvæmd­inni í Strass­borg.

Þetta kemur fram í pistli Davíðs Þórs á vef­síðu hans þar sem hann fjallar um dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í máli Egils Ein­ars­sonar gegn Íslandi sem féll í gær. 

„Sér­at­kvæðin, nánar til­tekið þau bæði saman, hafa tals­vert til síns máls, þ.e. að mat Hæsta­réttar sé ígrundað og styðj­ist við við­eig­andi rök sem MDE hefði vel getað unað við, og til við­bótar að með fyrri fram­göngu sinni í opin­berri umræðu hefði Agli mátt vera ljóst að hann kynni að kalla yfir sig hvöss við­brögð sem hann yrði að una. Hann hafi með öðrum orðum sjálfur slegið tón umræð­unnar með þátt­töku sinni í opin­berri umræðu  í bráð og lengd.“, skrifar Davíð. 

Hann bendir á að kröfu Egils Ein­ars­sonar um 10 þús­und evra miska­bætur hafi verið hafnað á þeim grund­velli að við­ur­kenn­ing á broti gagn­vart Agli fæli í sér nægi­lega upp­reist honum til handa. „Þetta er ekki for­dæma­laust en heyrir þó fremur til und­an­tekn­inga, því miska­bætur eru oft­ast dæmdar í slíkum málum ef um brot er að ræða. Þetta er ekki sér­stak­lega rök­stutt í dóm­inum, en má túlka svo að MDE fall­ist á sinn hátt á að Egill, sem væri þekkt per­sóna, hefði með eigin fram­göngu að nokkru kallað þessi við­brögð yfir sig og ekki rétt að dæma honum miska­bætur við þær aðstæður,“ skrifar Davíð Þór.

Þetta er í sam­ræmi við túlkun lög­fræð­inga sem þekkja til dóma­fram­kvæmdar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sem Stundin hefur rætt við und­an­farna daga.

„Ef horft er til allra þeirra dóma sem fallið hafa í tján­ing­ar­frelsis- og æru­meið­ing­ar­málum gegn Íslandi síð­ustu árin má með nokkrum rétti halda því fram að skila­boðin frá MDE séu nokkuð mis­vísandi og til þess fallin að gera  lands­dóm­stólum fremur erfitt fyrir um að full­nægja þeim kröfum sem telja má að í dóma­fram­kvæmd MDE felist, þrátt fyrir vilja til þess. Erfitt getur verið að átta sig á hvenær og á hvaða grund­velli MDE unir mati lands­dóm­stóla og hvenær ekki,“ skrifar Davíð. 

Hann telur að nið­ur­staða Hæsta­réttar þann 20. nóv­em­ber 2014, um að líta bæri á tján­ingu Inga Krist­jáns Sig­ur­mars­sonar – ummælin „Fuck you Rapist Bastard“ – sem gild­is­dóm hafi verið ágæt­lega rök­studd, sann­fær­andi og innan þess svig­rúms til mats sem Hæsti­réttur mátti með sann­girni ætla að hann hefði þegar horft er til dóma­fram­kvæmdar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins und­an­farin ár.

„Með sann­girni má segja að dómur Hæsta­réttar hafi falið í sér raun­veru­lega og rök­studda til­raun til að taka mið af þeim sjón­ar­miðum sem MDE hefur þróað, einkum í málum sem varða tján­ing­ar­frelsi og frið­helgi einka­lífs. En allt kom það fyrir ekki að þessu sinni. Þrátt fyrir þetta bakslag verður engu að síður að hvetja íslenska dóm­stóla til að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið síð­ustu miss­eri um að taka í vax­andi mæli mið af dóma­fram­kvæmd MDE þar sem við á,“ skrifar Davíð. 

„Hætt er þó við að þessi dómur MDE, sem hér hefur verið gerður að umtals­efni, virki letj­andi á íslenska dóm­ara í þeim efnum. Þeir eru vafa­laust margir ósáttir við þennan dóm enda hafi Hæsti­réttur í góðri trú beitt í dómi sínum þeim sjón­ar­miðum sem MDE hefur mótað í sinni fram­kvæmd um jafn­vægið milli tján­ing­ar­frelsis og frið­helgi einka­lífs.“ Hér má lesa grein Davíðs Þórs Björg­vins­sonar í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár