Ingvi Hrafn fékk Bjarna í viðtal: „Hlýtur að fara í pirrurnar á þér“

Bjarni Bene­dikts­son sem hefur neitað að svara fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar, mætti í við­tal á ÍNN þar sem þátta­stjórn­and­inn, Ingvi Hrafn Jónsson, upp­nefndi nafn­greindan blaða­mann Stund­ar­innar „verk­færi“ og „böðul“. Bjarni gerði enga athuga­semd við slíkan mál­flutn­ing á meðan við­tal­inu stóð.

Ingvi Hrafn fékk Bjarna í viðtal: „Hlýtur að fara í pirrurnar á þér“
Bjarni í við­tali Bjarni Bene­dikts­son neitar að svara spurn­ingum Stund­ar­innar, en kom í við­tal hjá Ingva Hrafna Jónssyni sem kall­aði Bjarna „töffara“ og upp­nefndi blaðmann Stund­ar­innar „böðul“ og „verk­færi“. Mynd: Skjáskot/ÍNN

Bjarni Bene­dikts­son, sem ekki hefur svarað fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar varð­andi aðkomu sína að við­skiptum í aðdrag­anda banka­hruns­ins sam­hliða störfum sínum á Alþingi, veitti Ingva Hrafni Jónssyni hins vegar langt við­tal á ÍNN síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Ingvi Hrafn árétt­aði afstöðu sína í upp­hafi við­tals­ins, þar sem hann upp­nefndi blaða­menn Stund­ar­innar „götu­stráka“ og „pöru­pilta“ og kall­aði nafn­greindan blaða­mann Stund­ar­innar „verk­færi“ og „böðul“. Bjarni gerði enga athuga­semd við orða­lag þátta­stjórn­and­ans heldur leyfði ávirð­ing­unum að liggja í loft­inu. 

Áður en Ingvi Hrafn beindi fyrstu spurn­ing­unni að Bjarna hélt hann tölu um mörk tján­ing­ar­frelsis. Þar sagði hann meðal ann­ars: „Þegar allt þetta tal um mál­frelsi, tján­ing­ar­frelsi og standa vörð um rit­frelsi og allt þetta sem við blaða­menn og við sem störfum við fjöl­miðla og að miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings stöndum fyrir, ég velti fyrir mér hvenær hættir þetta að vera tján­ing­ar­frelsi? Hvar liggur línan á milli prent­frelsis og tján­ing­ar­frelsis og rit­frelsis og mál­frelsis og alls ann­ars, hvar liggur línan á milli þessa og rógs? Illvilja rógs, upp­spuna og svona Gróa á Leiti vinnu­brögð. Hvar eru þessi mörk?“

Spurði svo Bjarna hvort þetta færi ekki í „pirr­urnar“ á honum.

Bjarni, sem hefur fengið ítrek­aðar fyr­ir­spurnir frá Stund­inni, sagð­ist „feg­inn að fá tæki­færi“ til að tjá sig um málið. Hann hefði látið yfir sig „ganga umræðu um per­sónu­leg mál­efni sem eiga nákvæm­lega ekk­ert erindi í opin­bera umræðu og varða með engum hætti almanna­hags­muni“. Áður en sýslu­maður sam­þykkti lög­banns­kröfu á frek­ari frétta­flutn­ing upp úr gögnum sem sýna tengsl við­skipta og stjórn­mála hefði hann rætt við flesta fjöl­miðla um efni frétt­anna sem Stundin, Reykja­vík Media og The Guardian hafa flutt upp úr gögn­unum.

Hann hefur hins vegar ekki svarað spurn­ingum Stund­ar­innar um efn­is­at­riði frétt­anna, þar sem enn er mörgum spurn­ingum ósvarað, orðið við við­tals­beiðnum eða viljað koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi í miðl­inum. Í stað þess að koma frek­ari upp­lýs­ingum á fram­færi sakar hann fjöliðil­inn um „dylgjur“  og „hálf­sann­leik“ . 

„Mér hefur fund­ist margt sem hefur verið skrifað í þessum til­tekna fjöl­miðli vera bara hreinar dylgjur, menn geri í því að vera með hálf­sann­leik, menn skjóti undan upp­lýs­ingum sem gefi betri heild­ar­yf­ir­sýn yfir stöðu mála og svo fram­vegis,“ sagði Bjarni í við­tal­inu.  

„Svona götustrákar “

Í við­tal­inu fóru þeir Ingvi Hrafn og Bjarni um víð­ann völl, ræddu meðal ann­ars efna­hags­mál, atvinnu­lífið og stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þessum mála­flokkum, en hér að neðan má lesa þann hluta við­tals­ins sem snýr að umfjöllun Stund­ar­innar síð­ustu vikna, stöðu fjöl­miðla, tján­ing­ar­frels­inu og lög­bann­inu. 

Ingvi Hrafn: Sæl ver­iði. Hrafna­þing, þriðju­dagur 17. októ­ber. Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hjá mér hér á eftir. Við vissum ekki þegar þetta var ákveðið fyrir helgi að hann yrði að hann yrði hér í dag, að ham­far­irnar yrðu í póli­tíska heim­inum þegar Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík lagði lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media á mál­efni er varðar for­sæt­is­ráð­herr­ann sjálfan.

Í minni bók þá er Stundin, og þeir sem að þessu standa, þessum níð­skrifum um Bjarna Bene­dikts­son og hans fjöl­skyldu alla, svona götu­strákar sem eru með skír­teini frá Blaða­manna­fé­lagi Íslands og ég skamm­ast mín fyrir að vera í sama félagi og þessir, að því er ég kalla, pöru­piltar.

Ekki það, ekki mis­skilja mig, ef það væri eitt­hvað, ein­hvers staðar ein­hver ofboðs­legur leynd­ar­dómur, ein­hver svik, ein­hver spillin, eitt­hvað það sem snertir gjörðir Bjarna Bene­dikts­sonar þá myndi ég fyrstur standa að því að hann yrði gerður ábyrgur fyrir slíku. Málið er bara það að þetta fólk er búið að ráð­ast lát­laust að per­sónu Bjarna Bene­dikts­sonar frá því hann varð for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, má í raun og veru segja. 

Ég er allur fyrir mál­frelsi og tján­ing­ar­frelsi og rit­frelsi og ég veit ekki, allt það frelsi sem er, nákvæm­lega eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Ég er að velta fyrir mér, eins og til dæmis í Banda­ríkj­unum, þar sem Trump for­seti, Donald Trump, senni­lega aldrei í banda­rískri sögu hefur verið gerð jafn hörð atlaga að einum mann eins og þessum for­seta. Og hann stofnar alveg sjálfur til þeirra illinda sem hann vill gera.

En þegar allt þetta tal um mál­frelsi, tján­ing­ar­frelsi og standa vörð um rit­frelsi og allt þetta sem við blaða­menn og við sem störfum við fjöl­miðla og að miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings stöndum fyrir, ég velti fyrir mér hvenær hættir þetta að vera tján­ing­ar­frelsi? Hvar liggur línan á milli prent­frelsis og tján­ing­ar­frelsis og rit­frelsis og mál­frelsis og alls ann­ars, hvar liggur línan á milli þessa og rógs? Illvilja rógs, upp­spuna og svona Gróa á Leiti vinnu­brögð. Hvar eru þessi mörk? 

Ég fór að hugsa um það þegar ég horfði á þessa tvo pöru­pilta í beinni útsend­ingu frá gömlu frétta­stof­unni minni, RÚV, sjón­varps­ins, að þeir, þar sem þeir stóðu þarna, verj­endur lek­inna eða stol­inna gagna. Senni­lega með gögn og upp­lýs­ingar um banka­við­skipti þús­unda ein­stak­linga, þús­unda Íslend­inga, ég meðal ann­ars og aðrir, sem við teljum að sé verndað af banka­leynd. En þarna stóðu þessir pöru­piltar og eins og frétta­mað­ur­inn á RÚV í beinni útsend­ingu, í beinni, [klappar saman höndum, inn­skot blaða­manns] útsend­ingu.

Eins og Bogi segir; takk fyrir að koma hérna í mynd­verið í beina útsend­ingu. Mikið mál greini­lega að vera í beinni útsend­ingu en þarna var, að mínum dómi, verið að afhenda þessum pöru­piltum jóla­gjafir með því að setja þetta lög­bann á og senni­lega hefur ekk­ert komið sér, eða valdið Bjarna Bene­dikts­syni og Sjálf­stæð­is­flokknum jafn miklum erf­ið­leikum, ergi­leg­heitum og öðru slíku, eins og það að þessi flokkur stendur fyrir frelsi fólks til athafna, tján­ing­ar­frelsis og frelsi fjöl­miðla, að það hafi verið sett lög­bann á. En Bjarni Bene­dikts­son hefur ekk­ert að fela. Nákvæm­lega ekk­ert að fela. Ef hann hefði eitt­hvað að fela, væri eitt­hvað í poka­horn­inu sem ekki pass­aði, þá væri hann löngu far­inn. 

„Vinstra hyskið á Íslandi er að setja upp skilti“

Svo núna, þá er verið að setja upp skilti. Vinstra hyskið á Íslandi er að setja upp skilti, til dæmis í Hlíðunum, þar sem segir eitt­hvað á þá leið að Eng­eyj­a­rættin séu bófar. Við erum að breyt­ast í eitt­hvað skíta­þjóð­fé­lag. 

Heyrðu, for­sæt­is­ráð­herr­ann okkar og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, hérna eftir stutt aug­lýs­inga­hlé. Tæpitungu­laust hjá honum, ég lofa ykkur því. 

[Aug­lýs­ingar]

Ingvi Hrafn: Sæl aftur. Bjarni Bene­dikts­son, vel­kom­inn enn einu sinni á Hrafna­þing. 

Bjarni: Já, takk fyrir það. 

Ingvi Hrafn: Ég var í rækt­inni í hádeg­inu, sem er nú ekki frá­sögu­fær­andi…

Bjarni: Það ger­ist nú ekki oft.

Ingvi Hrafn: Nei. Svo fara menn í guf­una og menn eru í heita pott­inum. Þetta eru svona, þetta eru mikið þínir menn. Menn sem reka sín eigin fyr­ir­tæki og eru að reka fyr­ir­tæki og menn sem eru kannski að borga trygg­inga­gjald og eru ekk­ert ofboðs­lega glaðir með það. En það var mikið talað um þetta Stund­ar­mál og þegar menn fréttu það að þú yrðir hjá mér í kvöld þá sögðu þeir; Ingvi, þú verður að taka þetta!

Ég segi; já bíddu, taka hvað? Já, þú verður bara að spyrja hann um þetta. Já, ókei, ég skal spyrja hann út í þetta, en ef þetta er ekki neitt? Dettur ykkur til hugar að ef það væri eitt­hvað gruggugt, að Bjarni Bene­dikts­son væri að biðja um lög­bann á Stundina? 

Bjarni: Já, nei ég reyndar…

Ingvi Hrafn: Það hlýtur að, á ein­hverjum punkti, þá hlýtur þetta að fara í pirr­urnar á þér?

Bjarni: Ég er nú feg­inn að fá tæki­færi til að tjá mig aðeins um þetta. Mig langar að byrja á því að segja að frá því að ég gaf kost á mér til for­ystu í stjórn­málum þá hefur reglu­lega verið skrifað um þau ár sem ég var í við­skiptum. Og það hafa oft verið notuð gögn sem greini­lega voru ekki vel fengin.

Ég hef ávallt svarað því sem mér hefur fund­ist að þyrfti að bregð­ast við. Ég hef líka látið yfir mig ganga umræðu um per­sónu­leg mál­efni sem eiga nákvæm­lega ekk­ert erindi í opin­bera umræðu og varða með engum hætti almanna­hags­muni.

Ég hef líka tjáð mig um þessi nýj­ustu gögn sem menn eru núna að tala um og það hafa verið birtar tugir frétta um þau mál. Ég tal­aði við flesta fjöl­miðla um þau mál og gefið út yfir­lýs­ingu út af því.

Aldrei á nokkrum tíma­punkti hef ég reynt að stöðva fjöl­miðlaum­fjöllun, hvorki sem varðar þessi ár sem ég var í við­skiptum, per­sónu­leg mál um mig eða annað. Ég bað ekki um þetta lög­bann. Þetta lög­bann er í raun og veru að koma sér mjög illa fyrir mig.

Ég get ekki talað fyrir alla þá sem mér sýn­ist að Glitnir sé að reyna að vernda. Glitnir, sem er skelin af gamla bank­anum í eigu kröfu­hafa, stígur hér inn í atburða­rás á mjög óheppi­legum tíma. Það er eig­in­lega algjör­lega út í hött að menn tali þannig að það sé til þess að hjálpa mér, eða vernda mig.

„Ef það hefur verið hugs­unin, þá hefðu menn nú átt að hreyfa sig eitt­hvað fyrr, ekki satt? Áður heldur en að allir þessir tugir frétta birt­ust.“

Í fyrsta lagi hefðu menn þá átt að, ef það hefur verið hugs­unin, þá hefðu menn nú átt að hreyfa sig eitt­hvað fyrr, ekki satt? Áður heldur en að allir þessir tugir frétta birt­ust. En síðan er bara hitt að ég vil vera að tala um allt aðra hluti núna í aðdrag­anda kosn­inga heldur en lög­bann á fjöl­miðla. Ég hef bara enga hags­muni af því að þetta mál sé svona. 

Ingvi Hrafn: Menn spurðu líka, Bjarni…

Bjarni: Þetta er bein­línis að koma mér illa að þetta komi á þessum tíma­punkti. 

Ingvi Hrafn: En þeir spurðu líka; hvað hefur Bjarni Ben gert þessum feðgum sem gerir það að verkum að þeir virð­ast í öllum sínum vinnu­brögðum? Með mann sem heitir Ingi Freyr Vil­hjálms­son, sem hefur verið aðal­verk­færið eða böð­ull­inn, með blaða­manna­skír­teinið, til þess að taka á þessu. Og menn velta fyrir sér; hefur ein­hver ykkar gert þeim eitt­hvað þannig þetta fólk telur sig eiga ofboðs­legra harma að hefna? 

„Með mann sem heitir Ingi Freyr Vil­hjálms­son, sem hefur verið aðal­verk­færið eða böð­ull­inn“

Bjarni: Sko, hérna, veistu, ég er ekk­ert að velta því fyrir mér.

Það sem ég horfi á er þetta; þegar maður er í þeirri stöðu sem ég er í þá verða menn að sætta sig við að umfjöllun um þá, fjöl­miðla­um­ræða, jafn­vel frétta­flutn­ingur, er óvægn­ari heldur en almennt ger­ist með fólk.

Ég legg upp með því að verja rétt fjöl­miðla til þess að flytja fréttir. Ég vil standa vörð um tján­ing­ar­frelsið. Við höfum sem flokkur staðið fyrir fjöl­miðla­frelsi í þessu landi, til dæmis börð­umst fyrir frjálsu útvarpi á sínum tíma, og það finnst mér vera miklu göf­ugri bar­áttu­mál heldur en það að reyna að verja mig og mína per­sónu, þegar ég hef sjálfur tekið ákvörðun um að stíga út í  …

Ingvi Hrafn: Fenið!

Bjarni: Ja, ég ætl­aði að segja opin­bera umræðu eða bara inn á vett­vang stjórn­mál­anna. Þess vegna hef ég aldrei haft til­burði uppi til þess að stöðva umræðu um þessi mál. Þetta er bara hluti af því að vera í stjórn­málum í dag. Þetta getur verið mjög óvægið, já. Stundum mjög per­sónu­legt.

Mér hefur fund­ist margt sem hefur verið skrifað í þessum til­tekna fjöl­miðli vera bara hreinar dylgjur, menn geri í því að vera með hálf­sann­leik, menn skjóti undan upp­lýs­ingum sem gefi betri heild­ar­yf­ir­sýn yfir stöðu mála og svo fram­vegis.

En jafn­vel þótt menn gefi út slíkan fjöl­miðil þá vil ég vernda rétt manna til þess að gera það, og vera til, vegna þess að það er alltaf betra fyrir lýð­ræð­is­þróun í land­inu, heldur en hitt að þykj­ast geta setið í dóm­ara­sæti og sagt; já þessir eru ágætir, þeir mega tala, þessir eru ekki nægi­lega góðir, þeir geta ekki haldið áfram að skrifa. 

Ingvi Hrafn: Á hvaða punkti Bjarni, þú ert lög­lærður maður, með fram­halds­nám bæði í Evrópu og í Banda­ríkj­unum, Þýska­landi og í Suður-Flórída, þar sem ég þekki nú dálítið til. Mín spurn­ing er sú; á hvaða tíma hættir tján­ing­ar­frelsið að vera frelsi til tján­ingar og hvenær hættir mál­frelsið að vera frelsi til að tala og breyt­ist í róg og níð?

„Hvenær hættir mál­frelsið að vera frelsi til að tala og breyt­ist í róg og níð?“

Ég meina rógur og níður Bjarni, eru út af fyrir sig, hvað eigum við að segja, ein­hvers konar afbrot. Þú brýtur gegn, rógur rógar, og sá sem er með róg og aðdrótt­anir svo held­urðu áfram með lyg­ina svo lengi að þú ferð að trúa henni. Á hvaða punkti segja menn, bíddu, ahh. Af hverju kemur svo, nú Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­maður, hann er þá nátt­úr­lega tengdur inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sé Bjarna­maður þú veist, og þetta sé allt gert í…

Bjarni: Já, já, það er nátt­úr­lega allt gjör­sam­lega úr lausu lofti gripið. Ég hef ekki verið með nokkrum hætti aðili að þess­ari lög­banns­kröfu eða ákvörðun um hvernig það mál fór. Ég ætla bara…

Ingvi Hrafn: Hvenær breyt­ist þetta í róg Bjarni? 

Bjarni: Já, ég ætla bara að segja við þig þetta; reglan sem þarf að fylgja í þessu er að frels­inu fylgir ábyrgð. Fjöl­miðla­frels­inu, tján­ing­ar­frels­inu, fylgir ábyrgð. Að menn þurfi þá líka að sæta því, ef á það er látið reyna, að menn séu dregnir til ábyrgðar fyrir það sem ekki stenst skoðun eða veldur öðrum tjóni.

Og þarna erum við líka að tala aftur um það sem ég var að nefna áðan að þegar maður gefur sig í opin­ber störf þá þarf maður að sætta sig við að það er hægt að ganga nær manni heldur en á við um allan almenn­ing og stundum finnst manni það ekk­ert sér­stak­lega sann­gjarnt. En ef maður fellir sig ekki við það þá verður maður að fara að finna sér eitt­hvað annað að gera. Ég hef bara ein­fald­lega tekið því, ég hef ávallt brugð­ist við því sem mér hefur fund­ist að þyrfti að skýra. Ég gerði það bara nýlega, núna þegar menn eru að tala um Sjóð 9.

Ég nefni sem dæmi að menn eru með hálf­sann­leik og koma ekki með alla mynd­ina, mér fannst algjört hneyksli að fjöl­miðlar sem fjöll­uðu um það mál segðu ekki bara strax frá því að Sjóði 9 var lokað á mánu­degi og þriðju­degi, svo féll sjóð­ur­inn um sjö pró­sent á mið­viku­degi og ég sel á fimmtu­degi eftir að hafa tekið á mig það högg. Auðvitað hlaut það að vera hluti af frétta­flutn­ingi um þetta mál ef menn vildu tala um það sem hefði verið að ger­ast í þess­ari til­teknu viku.

„Ég þurfti að hafa fyrir því að koma því á fram­færi“

En ég þurfti að hafa fyrir því að koma því á fram­færi, almennt var ekki sagt frá því. Þetta fannst mér ekki sann­gjörn máls­með­ferð, eða sann­gjarn frétta­flutn­ingur, ef menn ætl­uðu af ein­hverri sann­girni og yfir­vegun að setja sér­stakt kast­ljós á það hvað var að ger­ast þessa til­teknu viku og hvaða ákvarð­anir ég hafði tekið. En þessu svar­aði ég bara, gott og vel, maður þarf stundum að taka daga í það og mér finnst vont núna í aðdrag­anda kosn­inga að þurfa að vera að eyða tíma í þetta mál.

Það er ekk­ert nýtt í þessum gögnum, það er ekk­ert sem stenst ekki skoðun. Öll þessi mál, öll þessi skjöl sem ég hef séð að hafa verið birt, nú veit ég ekki nákvæm­lega hvað menn eru með undir höndum, en allt sem ég hef séð hefur greini­lega komið til skoð­unar, til dæmis hjá slita­nefnd Glitnis, og hefur aldrei gefið til­efni til ein­hvers mála­rekst­urs eða rift­ana­mála eða neins slíks. Ekkert af öllum þessum málum sem þessir menn hafa verið að birta er þess eðlis að það stand­ist ekki skoðun.

Menn geta síðan alveg sagt; er ekki óeðli­legt að menn séu á sama tíma í við­skiptum og þeir eru inni á þingi? Og ég hef svarað því fyrir löngu, löngu, löngu síðan með því að stíga alfarið út úr við­skiptum, jú ég er sam­mála því. 

„Þú ert töffari, ég meina þú ferð ekk­ert úr jafn­vægi þó að ein­hverjir götu­strákar séu að atast í þér.“

Ingvi Hrafn: En hvað með, Bjarni, hvað með, þú ert kom­inn með skráp. Þú ert töffari, ég meina þú ferð ekk­ert úr jafn­vægi þó að ein­hverjir götu­strákar séu að atast í þér.

En þú átt eig­in­konu, þú átt börn og alveg frá Línu litlu, sem er hvað, fimm, sex ára og upp í full­orðið fólk. Þetta reynir á. Ég meina, ég veit ekki, verða krakk­arnir yfir ein­elti í skólum? Verður þú var við það að þetta sé að, þú veist, hvað eigum við að segja, raska ró kon­unnar þinnar og krakk­anna?

Bjarni: Já, já. Það eru alveg til dæmi um það. Já, já. Stundum þarf maður að taka fjöl­skyldufund og aðeins brynja menn fyrir umræð­unni og það gildir alveg niður í sex ára. Já, já, það kemur fyrir. 

Ingvi Hrafn: Heyrðu, þetta er nóg fyrir mig. Mig langar að tala um efna­hags­lífið á Íslandi. [...] 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár