Þrýsti á fjölmiðlaeiganda vegna umfjöllunar um Vafningsmálið en segist aldrei hafa reynt að stöðva fréttaflutning

Bjarni Bene­dikts­son hefur ekki svarað spurn­ingum Stund­ar­innar um við­skipti hans í Glitni fyrir hrun né orðið við við­tals­beiðnum. „Ég hef aldrei veigrað mér við því að koma með skýr­ingar og svör við því sem menn vilja vita um mín mál­efni,“ sagði hann samt í við­tali við RÚV í gær.

Þrýsti á fjölmiðlaeiganda vegna umfjöllunar um Vafningsmálið en segist aldrei hafa reynt að stöðva fréttaflutning
Vildi stöðva umfjöllun um Vafn­ings­málið Bjarni Bene­dikts­son seg­ist nú aldrei hafa gert til­raun til að stöðva frétta­flutn­ing. Hreinn Loftsson, þá aðal­eig­andi DV, greindi hins vegar frá því árið 2009 að Bjarni hefði reynt að hafa áhrif á frétta­flutn­ing blaðs­ins af Vafn­ings­mál­inu. Mynd: xd.is

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, full­yrti í frétta­við­tali við RÚV í gær að hann hefði aldrei gert til­raun til að stöðva umfjöllun um við­skipta­gjörn­inga sína í aðdrag­anda hruns­ins. „Ég hef aldrei gert neina til­raun til að stöðva slíkan frétta­flutn­ing. Ég hef bara leit­ast við að koma fram með svör,“ sagði hann. 

Raunin er hins vegar sú að þegar DV hóf umfjöllun um Vafn­ings­við­skiptin og aðkomu Bjarna Bene­dikts­sonar að þeim árið 2009, brást Bjarni við með því að hringja í eig­anda blaðs­ins og reyna þannig að hafa áhrif á frétta­flutn­ing­inn. „Hann var ekk­ert að skafa af því, hann ætl­að­ist til þess að ég stöðv­aði þennan frétta­flutn­ing,“ sagði Hreinn Loftsson, aðal­eig­andi DV, þegar hann lýsti sím­tali Bjarna árið 2009. Sjálfur við­ur­kenndi Bjarni að hafa beitt sér gagn­vart eig­and­anum en hafn­aði því að hafa reynt að stöðva frétta­flutn­ing­inn. 

Segist hafa „leitast við að koma fram með svör“

Bjarni sagði í við­tali við RÚV í gær að hann teldi lög­bann sýslu­manns á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Reykja­vik Media upp úr gögnum Glitnis vera fjar­stæðu­kennt og koma sjálfum sér illa.

Í við­tal­inu full­yrðir Bjarni ekki aðeins að hann hafi aldrei reynt að stöðva frétta­flutn­ing af sínum málum heldur einnig að hann hafi sjálfur alltaf reynt að gefa skýr­ingar og svara spurn­ingum um fjár­mál sín og við­skipta­gjörn­inga.

„Ég hef bara leit­ast við að koma fram með svör. Og ég tel að við eigum að byggja okkar opna sam­fé­lag upp með þeim hætti að fjöl­miðlar séu frjálsir af því að flytja fréttir, fjalla um mál­efni, sér­stak­lega þau sem varða almenn­ing,“ sagði Bjarni orð­rétt í við­tali við RÚV í gær.

Und­an­farnar vikur hefur Stundin ítrekað óskað eftir við­tali við Bjarna Bene­dikts­son vegna umfjöll­unar blaðs­ins um fjár­mál hans og fjöl­skyldu hans í aðdrag­anda hruns­ins. Við því hefur ekki verið orðið. Þá hefur Stundin sent Bjarna spurn­ingar um ein­stök atriði sem fjallað hefur verið um en ekki fengið svör. 

Blaðamaður Guardian leiðrétti Bjarna

Bjarni hefur hins vegar tjáð sig um málið á öðrum vett­vangi og gagn­rýnt fjöl­miðla harð­lega.

Daginn sem Stundin, Guardian og Reykja­vik Media birtu fyrstu umfjöll­un­ina sem byggði á gögnum Glitnis full­yrti Bjarni að tíma­setn­ingu frétta hefði verið hag­rætt til að koma höggi á sig. „Blaða­mað­ur­inn sem hringdi í mig frá Bret­landi, hann bein­línis sagði mér að þeir hefðu haft þessi gögn, þessar upp­lýs­ingar, í margar vikur og að þeir hefðu beðið eftir réttu tíma­setn­ing­unni,“ sagði Bjarni.

Í kjöl­farið sendi blaða­maður Guardian, Jon Henley, frá sér yfir­lýs­ingu og sagði for­sæt­is­ráð­herra hafa lagt sér orð í munn og fara með kol­rangt mál. 

Gögnin afjúpuðu villandi málflutning

„Ég hef aldrei veigrað mér við því að koma með skýr­ingar og svör við því sem menn vilja vita um mín mál­efni,“ sagði Bjarni í við­tal­inu við RÚV í gær. „Maður fórnar miklu með því að fara í póli­tík af per­sónu­frelsi sínu. Og það er stað­reynd sem ég hef fyrir löngu sætt mig við.“

Umfjöllun Stund­ar­innar á grund­velli Glitn­is­gagn­anna hefur varpað ljósi á að „skýr­ingar og svör [for­sæt­is­ráð­herra] við því sem menn vilja vita“ hafa í gegnum árin oft verið vill­andi eða falið í sér rang­færslur.

Dæmi um þetta er vitn­is­burður hans í Vafn­ings­mál­inu, þar sem hann sagð­ist enga aðkomu hafa átt að Vafn­ings­flétt­unni aðra en að skrifa undir skjöl fyrir hönd ætt­ingja sinna. 

Eins og Stundin hefur greint frá benda Glitn­is­gögnin til þess að aðkoma Bjarna og vit­neskja hafi verið meiri og að það sem Bjarni hefur lýst sem „þriðja aðila“ hafi verið félag sem var að mestu stýrt af Bjarna sjálfum. 

Annað dæmi eru ummæli Bjarna fyrir tæpu ári um að hann hefði ekki átt „neitt sem máli skipti“ í pen­inga­mark­aðs­sjóðnum Sjóði 9 fyrir hrun.

Raunin er sú að hann átti 165 millj­ónir króna í sjóðnum nokkrum mán­uðum fyrir hrun og inn­leysti rúm­lega 50 millj­ónir úr sjóðnum dag­ana 2. til 6. októ­ber 2008. 

Fleiri sams konar dæmi um ýmist vill­andi eða rangan mál­flutn­ing Bjarna verða rakin í næsta tölu­blaði Stund­ar­innar sem kemur út á föstu­dag. Vegna lög­banns­ins sem sett hefur verið á umfjöllun á grund­velli Glitn­is­gagn­anna getur blaðið þó ekki byggt á frek­ari upp­lýs­ingum úr gögn­unum en nú þegar hafa komið fram í fréttum Stund­ar­innar.

Viðurkenndi að hafa beitt sér gagnvart eiganda

Þegar Bjarni var sak­aður um að hafa reynt að stöðva frétta­flutn­ing DV á sínum tíma stað­festi hann að hafa hringt í eig­anda til að kvarta undan umfjöll­un­inni. „Ætlun mín var ein­fald­lega sú að segja eig­anda blaðs­ins skoðun mína á óásætt­an­legum vinnu­brögðum blaða­manns sem þar starfar og útskýra fyrir honum í hverju ég teldi rang­færslur þess liggja,“ sagði Bjarni í sam­tali við Pressuna á sínum tíma.

„Hann svar­aði því til að ég ætti
að stöðva þennan frétta­flutn­ing“

Hreinn Loftsson brást við og sagð­ist standa við yfir­lýs­ingu sína. „Bjarni Bene­dikts­son er ómerk­ingur og ætti ekki að koma nálægt stjórn­málum. Hann lýgur því að Press­unni að ég hafi ekki borið upp þá spurn­ingu við hann, hvers hann ætl­að­ist til af mér í fram­haldi af athuga­semdum hans við frétta­flutn­ing DV í sím­tali fyrr í dag,“ sagði Hreinn. „Þessa spurn­ingu bar ég fram og hann svar­aði því til að ég ætti að stöðva þennan frétta­flutn­ing. Þetta var ekki langt sam­tal, það er rétt hjá Bjarna, því ég sagð­ist ekki lúta boð­valdi hans og hann skyldi gera athuga­semdir við rit­stjórn DV, ef hann teldi ekki rétt með farið varð­andi þessar fréttir. Þá er það einnig rétt hjá Bjarna, að ég skellti á hann, enda er ég ekki vanur að eiga löng sam­töl við síma­dóna af þessu tagi.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna Benediktssonar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár