Fjármálaeftirlitið leit á þingmenn sem innherja

Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var í hópi þeirra sem Fjár­mála­eft­ir­litið skil­greindi sem inn­herja sam­kvæmt skýrslu sem KPMG vann fyrir skila­nefnd Glitnis í lok árs­ins 2008.

Fjármálaeftirlitið leit á þingmenn sem innherja
Metinn inn­herji Strangar reglur gilda um inn­herj­a­við­skipti. Mynd: Johannes Jansson

Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var í hópi þeirra sem Fjár­mála­eft­ir­litið skil­greindi sem inn­herja sam­kvæmt skýrslu sem KPMG vann fyrir skila­nefnd Glitnis í lok árs­ins 2008. RÚV greindi frá þessu í gær­kvöldi, en Stundin hafði fjallað ítar­lega um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og skyld­menna hans á grund­velli gagna úr Glitni banka áður en Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­þykkti lög­banns­beiðni á frek­ari frétta­flutn­ing byggðan á umræddum gögnum í síð­ustu viku. 

Í frétt RÚV kemur fram að FME hafi skil­greint þá sem komu að und­ir­bún­ingi þjóð­nýt­ingar Glitnis sem inn­herja, meðal ann­ars þing­menn, emb­ætt­is­menn og ýmsa ráð­gjafa. Í lögum um verð­bréfa­við­skipti er inn­herji skil­greindur sem aðili sem hefur að jafn­aði aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum, svo sem vegna aðildar að stjórn, rekstri eða eft­ir­liti eða vegna ann­arra starfa á vegum útgef­anda fjár­mála­gern­inga, eða býr yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum af öðrum ástæðum.

Bjarni Bene­dikts­son var við­staddur neyð­ar­fund um fram­tíð Glitnis í höf­uð­stöðvum Stoða, stærsta hlut­hafa Glitnis, nótt­ina áður en íslenska ríkið fékk bank­ann í fangið þann 29. sept­em­ber 2008. Frá þess­ari aðkomu Bjarna var greint í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, en á fund­inum kom fram að staða Glitnis væri „gríð­ar­lega alvar­leg“ eins og haft er eftir einum fund­ar­manni í skýrsl­unni. 

Stundin, Reykja­vik Media og The Guardian greindu frá því þann 6. októ­ber síð­ast­lið­inn að Bjarni Bene­dikts­son hefði selt allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dag­ana 2. til 6. októ­ber árið 2008.

Í kjöl­farið steig Bjarni fram í fjöl­miðla­við­tölum, meðal ann­ars RÚV, Stöð 2 og í Morg­un­blað­inu, og þvertók fyrir að hafa á þeim tíma búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum eða trún­að­ar­upp­lýs­ingum af neinu tagi um Glitni. 

Engu að síður voru Bjarni og aðrir þing­menn á lista Fjár­mála­eft­ir­lits­ins yfir inn­herja hjá Glitni. Í því felst að litið var svo á að vegna stöðu sinnar hefðu þeir aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum eða byggju yfir vit­neskju sem teld­ist til inn­herj­a­upp­lýs­inga.

Áður hefur Stundin greint frá því að svo virð­ist sem Bjarni hafi miðlað upp­lýs­ingum um starf­semi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til Glitn­is­manna, en Bjarni hefur vísað því alfarið á bug að hafa búið yfir trún­að­ar­upp­lýs­ingum um það sem fram fór hjá FME þessa daga. 

Stundin hefur áður fjallað um það hvernig Bjarni Bene­dikts­son var los­aður undan skuld­bind­ingum vegna 50 millj­óna kúlu­láns sem hann hafði tekið per­sónu­lega hjá Glitni og skuldin færð yfir á eign­ar­halds­fé­lag föður hans, Haf­silfur ehf, sem síðar var slitið eftir að skuldir þess höfðu rokið upp úr öllu valdi.

Slita­stjórn bank­ans tók málið til sér­stakrar skoð­unar eftir hrun og taldi að með skuld­skeyt­ing­unni hefði bank­inn gefið eftir kröfur sem ellegar hefðu verið meiri líkur á að greidd­ust. Var sér­stak­lega bent á að hvergi væri fjallað um gjörn­ing­inn í fund­ar­gerðum bank­ans og enga bókun væri að finna um málið. Slita­stjórnin taldi sig ekki geta farið fram á að skuld­skeyt­ing­unni yrði rift í ljósi þess að of langt var liðið frá því að gjörn­ing­ur­inn átti sér stað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna Benediktssonar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár