Lindarhvoll: 39 milljónir til Steinars og 12 milljónir til stjórnarmanna

Lind­ar­hvoll, einka­hluta­fé­lagið sem ann­ast sölu á stöð­ug­leika­eignum rík­is­ins, greiddi lög­manns­stofu Steinars Þórs Guð­geirs­sonar 38,8 millj­ónir króna í fyrra.

Lindarhvoll: 39 milljónir til Steinars og 12 milljónir til stjórnarmanna

Lind­ar­hvoll, einka­hluta­fé­lagið sem var sett á lagg­irnar til að halda utan um stöð­ug­leika­eignir rík­is­sjóðs og koma þeim í verð, greiddi lög­manns­stof­unni Íslög ehf. 38,8 millj­ónir króna í fyrra. 

Rekstur Lind­ar­hvols hefur að mestu verið í höndum Steinars Þórs Guð­geirs­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns og eig­anda Íslaga, en stjórn Lind­ar­hvols fól honum með samn­ingi þann 28. apríl 2017 að veita ráð­gjöf við dag­legan rekstur þeirra eigna sem Lind­ar­hvoli var falin umsýsla með. 

Að því er fram kemur í grein­ar­gerð um starf­semi Lind­ar­hvols frá því í fyrra var samið við Steinar með vísan til þess að hann hefði „séð um gerð stöð­ug­leika­samn­ing­anna við öll þau átta slitabú sem inntu þau af hendi  auk þess að hafa haft umsjón með mót­töku og dag­legum rekstri þess­ara eigna, fyrst í umboði Seðla­banka Íslands og svo í umboði rík­is­sjóðs“. 

Samkvæmt árs­reikn­ingi Lind­ar­hvols, sem barst rík­is­skatt­stjóra fyrr í þessum mán­uði, nam rekstr­ar­kostn­aður félags­ins 56,6 millj­ónum í fyrra. Þar af runnu tæpar 39 millj­ónir til Íslaga ehf vegna aðkeyptrar þjón­ustu, þ.e. ráð­gjafar Steinars Þórs. Mark­að­ur­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins, fjall­aði fyrst um greiðsl­urnar til Steinars í dag. 

Stjórn­ar­menn Lind­ar­hvols eru þau Ása Ólafs­dóttir, Haukur C. Bene­dikts­son og Þór­hallur Arason, stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols sem nýlega lét af störfum sem skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Fram kemur í árs­reikn­ingnum að stjórn­ar­laun á árinu 2016 hafi numið rúmum 12 millj­ónum og að launa­tengd gjöld hafi verið tæpar 2 millj­ónir. 

Lind­ar­hvoll ehf var sett á fót í árs­byrjun 2016 til að ann­ast umsýslu, fulln­ustu og sölu þeirra eigna sem runnu rík­is­sjóði í skaut eftir að kröfu­hafar fall­inna við­skipta­banka og spari­sjóða reiddu fram svo­nefnd stöð­ug­leika­fram­lög. Málefni félags­ins heyra undir fjár­mála­ráðu­neytið. 

Eign­irnar eru seldar í opnu sölu­ferli en í ljósi þess að Lind­ar­hvoll er einka­að­ili lýtur félagið ekki stjórn­sýslu­lögum ólíkt því sem venju­lega tíðkast þegar höndlað er með eignir rík­is­sjóðs. Þannig tekur til dæmis eft­ir­lits­hlut­verk umboðs­manns Alþingis ekki til starf­semi félags­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár