Borgarfulltrúi stígur fram sem gerandi í kynferðisbrotamálum til að kenna ábyrgð

„Ég er ekki bara kyn­ferð­is­brota­þoli heldur er ég líka ger­andi,“ segir Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, sem stígur fram með það að marki að sýna hvernig eigi að axla ábyrgð. Hann seg­ist til­bú­inn til þess að gera allt sem í hans valdi stendur til að lina þján­ingar þeirra sem hann skað­aði með gjörðum sínum.

Borgarfulltrúi stígur fram sem gerandi í kynferðisbrotamálum til að kenna ábyrgð
Halldór Auðar Svansson Borg­ar­full­trúi Pírata hefur áður stigið fram og greint frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hann var beittur. Mynd: Píratar

Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, greindi frá því í morgun að hann hefði ekki aðeins verið beittur kyn­ferð­is­of­beldi heldur hefði hann einnig beitt því sjálfur. Hann seg­ist með þessu vilja sýna hvernig eigi að axla ábyrgð.

„Ég hef valdið þján­ingum sjálfur. Það er mögu­lega ennþá fólk þarna úti sem er í sárum og það er á minni ábyrgð,“ sagði Halldór í Facebook-færslu um málið.

Halldór tekur fram að það væri hins vegar ekki hans að meta hvort hann hefði axlað ábyrgð að fullu með þessu, heldur muni það koma í ljós í kjöl­farið hvað hann þarf að gera frekar.

Halldór sagð­ist hafa ýjað að þessu í við­tali um reynslu sína sem þol­andi, en það hefði ekki verið sagt nógu hreint út. Hann væri til­bú­inn til þess að gera allt til að binda enda á þján­ingar þeirra sem hann meiddi. Hann væri ekki með nöfn þolenda sinna en þeir mættu leita til hans, ef þeir þekktu hann og treystu sér til. „Það má líka auð­vitað stíga fram. Það má alltaf stíga fram,“ segir Halldór, sem var á meðal þeirra sem sendu frá sér yfir­lýs­ingu um að karl­kyns Píratar styddu átakið sem fór fram undir myllu­merk­inu #höf­um­hátt, þar sem þolendur og aðstand­endur greindu frá reynslu sinni af kyn­ferð­is­legu ofbeldi. 

Þá sagði Halldór að áfengi væri hræði­legur þján­inga­valdur sem eyðir mörkum á milli fólks. Hann væri ekki viss um að hann myndi eftir öllu sem hann hefði gert. „Mín var ábyrgðin að átta mig ekki á áhrif­unum sem það hafði á mig og aðra og gera eitt­hvað í því.“

 Áfengi hræðilegur þjáningarvaldur

Færslu Halldórs má sjá hér að neðan:

„Ég mun núna sýna hvernig ábygð er öxluð.

Það er ekki mitt að meta hvort hún hefur með þessu verið öxluð að fullu, það kemur í ljós hvað ég þarf að gera frekar.

Ég er ekki bara kyn­ferð­is­brota­þoli heldur er ég líka ger­andi. Ég hef ýjað að þessu í við­tali um mína reynslu en ekki sagt það nógu hreint út - ég hef valdið þján­ingum sjálfur. Það er mögu­lega ennþá fólk þarna úti sem er í sárum og það er á minni ábyrgð. Ég er til­bú­inn að gera allt sem ég get gert til að binda enda á þær þján­ingar. Ég myndi leita til þess sjálfur en ég er ekki með nöfn þeirra. Það má hins vegar leita til mín, þekki það mig og treysti það sér til þess. Það má líka auð­vitað stíga fram. Það má alltaf stíga fram.

„Ég er til­bú­inn að gera allt sem ég get gert“

Ég man líka örugg­lega ekki allt sem ég hef gert. Áfengi er hræði­legur þján­ing­ar­valdur og það eyðir mörk­unum milli fólks. Ég hefði átt að hætta að drekka fyrir löngu síðan. Mín var ábyrgðin að átta mig á áhrif­unum sem það hafði á mig og aðra og gera eitt­hvað í því. Þessum áhrifum verður ekki stjórnað með því að stjórna aðgengi að áfengi heldur með því að draga fólk til ábyrgðar á drykkj­unni.“

Atvik í æsku hafði áhrif 

Í við­tali við Pressuna árið 2015 greindi Halldór Auðar frá atviki sem átti sér stað þegar hann var um fjög­urra eða fimm ára gam­all og eldri piltar kró­uðu hann af og létu hann bera sig. Hann var með bróður sínum en þótt hann hafi verið hræddur, skelk­aður og nið­ur­lægður ræddu þeir atvikið ekki fyrr en mörgum árum síðar. Greindi hann frá því að það hefði haft mikil áhrif á hann að vera sviptur sak­leysi sínu á þennan hátt. Hann hefði átt erfitt með að treysta fólki og eiga heil­brigð lík­am­leg og til­finn­inga­leg sam­skipti við annað fólk. Í við­tali við DV greindi hann síðan frá því að til­finn­ing­arnar hefðu kraumað innra með honum og magn­ast upp í þögn­ini með þeim afleið­ingum að hann glímdi við þung­lyndi, félags­lega erf­ið­leika og brenglaða til­finn­ingu fyrir því hvar mörkin liggja í sam­skiptum við annað fólk. 

Um leið sagð­ist hann ekki líta á sig sem sak­lausan brota­þola þar sem hann hefði ekki alltaf virt mörk ann­arra eftir að hann varð sjálfur full­orð­inn maður. „Þá hef ég oftar en ekki verið undir áhrifum áfengis, “ segir hann. „Og ég vil ekki úti­loka að atvikið á leik­skóla­lóð­inni spili þar inní. Án þess þó að ég ætli að kenna því um. Ábyrgðin er algjör­lega mín.“

Þá sagð­ist hann hafa sterkar skoð­anir á kyn­ferð­is­brota­málum og með­höndlun dóms­kerf­is­ins á þeim. Það svíði meðal ann­ars hvernig for­sendur ger­enda í kyn­ferð­is­brota­málum hafi áhrif á það hvort litið sé á brotið sem kyn­ferð­is­brot eða ekki. 

Áður hefur Halldór greint frá erf­ið­leikum sem hann glímdi við vegna neyslu vímu­efna, en hann fékk geð­rof í kjöl­far gras­reyk­inga. Hann hafði þá hætt neyslu og fengið aðstoð við að vinna úr sínum málum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár