Vill bregðast við ákalli þolenda fyrir þinglok

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, leggur fram frum­varp til að fyr­ir­byggja að barn­a­níð­ingar geti öðl­ast lög­manns­rétt­indi.

Vill bregðast við ákalli þolenda fyrir þinglok

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, kallar eftir því að Alþingi bregð­ist við ákalli þolenda kyn­ferð­is­of­beldis áður en þingi verður slitið og setji lög gegn því að menn sem dæmdir hafa verið fyrir kyn­ferð­is­glæpi, barn­a­níð og fleiri sví­virði­leg brot geti öðl­ast lög­manns­rétt­indi. 

Ekki náð­ist sam­staða innan alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um að leggja fram slíkt frum­varp í síð­ustu viku, en Þór­hildur samdi drög að frum­varpi til laga um breyt­ingu á lögum um lög­menn og óskaði með­flutn­ings allra þing­manna um helg­ina. Þingmenn Pírata eru með­flutn­ings­menn og seg­ist Þór­hildur von­ast eftir breiðum stuðn­ingi meðal allra flokka.

„Með frum­varpi þessu er lagt til að ein­stak­lingar sem hlotið hafa dóm fyrir nauðgun, kyn­ferð­is­lega mis­neyt­ingu, kyn­ferð­is­brot gegn börnum, hag­nýt­ingu vændis barna, þátt­töku barna í nekt­ar­sýn­ingum, sem og ein­stak­lingar sem hafa verið sak­felldir fyrir mann­dráp, geti ekki öðl­ast lög­manns­rétt­indi,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna. „Það er mat flutn­ings­manna að ein­stak­lingar sem gerst hafa brot­legir við fram­an­greind ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga geti ekki talist hæfir til þess að sinna lög­manns­störfum hvers helsta hlut­verk er að „[...] efla rétt og hrinda órétti”, sbr. 1. gr. siða­reglna lög­manna.“ 

Þá kemur fram að kveikjan að fram­lagn­ingu frum­varps­ins hafi verið frétta­flutn­ingur og umræða um end­ur­heimt lög­manns­rétt­inda kyn­ferð­is­brota­manns­ins Roberts Downey í kjöl­far þess að hann fékk upp­reist æru.

Bent er á að lög­menn njóti vissra for­rétt­inda og hafi í störfum sínum aðgang að ýmsum þáttum rétt­ar­kerf­is­ins umfram almenn­ing. Lögmenn sem sinna verj­anda­störfum geti t.d. haft aðgang að vitna­leiðslum og skýrslu­tökum af börnum í Barna­húsi, sem eðli máls sam­kvæmt séu í mjög við­kvæmri stöðu.

„Að óbreyttum lögum um lög­menn geta ein­stak­lingar sem gerst hafa sekir um alvar­leg kyn­ferðis- og ofbeld­is­brot verið við­staddir þessar skýrslu­tökur. Þannig geta vitni og brota­þolar í ofbeldis- og kyn­ferð­is­brota­málum þurft að gefa skýrslu þar sem fyrrum dóm­þoli í slíku máli er við­staddur og hefur, þegar um er að ræða þing­hald í saka­máli sbr. 10. gr. laga um með­ferð saka­mála nr. 88/2008 rétt til að spyrja eða koma spurn­ingum til vitnis eða brota­þola áleiðis,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

„Það verður að telj­ast óeðli­legt að ein­stak­lingar sem hafa gerst sekir um þá hátt­semi sem greinir í 1. gr. frum­varps þessa geti haft með höndum svo við­kvæm en þó mik­il­væg störf sem hér að ofan hefur verið fjallað um. Viðvera þeirra og aðkoma að við­kvæmum málum getur haft afar nei­kvæð áhrif á vitni og brota­þola og getur þannig dregið úr áhrifa­mætti og skil­virkni rétt­ar­kerf­is­ins.

Grein­ar­gerð­ina í heild má sjá hér að neðan, en frum­varpið verður sent þing­fund­ar­skrif­stofu til útbýt­ingar í dag. 

I. Inn­gangur.

Með frum­varpi þessu er lagt til að ein­stak­lingar sem hlotið hafa dóm fyrir nauðgun, kyn­ferð­is­lega mis­neyt­ingu, kyn­ferð­is­brot gegn börnum, hag­nýt­ingu vændis barna, þátt­töku barna í nekt­ar­sýn­ingum, sem og ein­stak­lingar sem hafa verið sak­felldir fyrir mann­dráp, geti ekki öðl­ast lög­manns­rétt­indi. Það er mat flutn­ings­manna að ein­stak­lingar sem gerst hafa brot­legir við fram­an­greind ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga geti ekki talist hæfir til þess að sinna lög­manns­störfum hvers helsta hlut­verk er að „ [...] efla rétt og hrinda órétti”, sbr. 1. gr. siða­reglna lög­manna.

II. Tilefni og nauð­syn laga­setn­ingar.

I. Aðdrag­andi.

Aðdrag­and­inn að fram­lagn­ingu frum­varps þessa er sá að um mitt ár 2017 birt­ust fréttir þess efnis að dæmdum kyn­ferð­is­brota­manni sem dæmdur hafði verið fyrir brot geg fimm stúlkum hafði hlotið upp­reist æru. Maðurinn starf­aði sem lög­maður þegar brotin voru framin og var hann sviptur rétt­indum sínum með dómi Hæsta­réttar 15. maí 2008. Í kjöl­far upp­reist æru manns­ins fór hann þess á leit við dóm­stóla að svipt­ing rétt­inda hans yrði nið­ur­felld. Með dómi Hæsta­réttar 15. júní 2017 var úrskurður hér­aðs­dóms stað­festur þar sem svipt­ing rétt­inda hans til að vera hér­aðs­dóms­lög­maður var felld niður. Honum var þá mögu­legt að sækja það aftur að öðl­ast rétt­indi til að vera lög­maður. 

Fregnir af fram­an­greindu urðu þess vald­andi að brota­þolar manns­ins og aðstand­endur þeirra hafa stigið fram einn af öðrum og tjáð sig opin­ber­lega um málið.

Fyrsti brota­þol­inn til að stíga fram og tjá sig um upp­reist æru umrædds kyn­ferð­is­brota­manns var Nína Rún Bergs­dóttir, en sama dag og úrskurður féll í Hæsta­rétti tjáði hún sig opin­ber­lega um málið. Í kjöl­farið stigu margir brota­þola í mál­inu og aðstand­endur þeirra fram og tjáðu sig opin­ber­lega, en þau eru Halla Ólöf Jóns­dóttir, Anna Katrín Snorra­dóttir, Glódís Tara Fann­ars­dóttir, Bergur Þór Ing­ólfs­son, Eva Vala Guð­jóns­dóttir, Pálína Hildur Sig­urð­ar­dóttir, Rafnkell Jónsson auk ann­arra sem ekki gefst færi á að nefna hér. Gagn­rýndu þau með­ferð íslenskra stjórn­valda á umsókn dóm­fellda um upp­reist æru og því að honum yrði gert kleift að nýju að starfa sem lög­maður. Þá gagn­rýndu þau við­horf og við­mót stjórn­valda gagn­vart brota­þolum, leynd­ar­hyggju og lokað eðli stjórn­sýsl­unnar ásamt smættun brot­anna sem um ræðir sem og sein og ófull­nægj­andi við­brögð við ákalli þeirra um upp­lýs­ingar um máls­með­ferð­ina.

Á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar 30. ágúst 2017 kom m.a. Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir Nínu Rúnar, fyrir nefnd­ina og ræddi við nefnd­ina um lög um upp­reist æru. Bergur Þór lýsti fyrir nefnd­inni þeim alvar­legu nei­kvæðu afleið­ingum sem fregn­irnar af dómi Hæsta­réttar hefðu haft á brota­þola og aðstand­endur þeirra. Þá ræddi hann sér­stak­lega við­horf brota­þola og aðstand­enda gagn­vart máls­með­ferð stjórn­valda og dóm­stóla á upp­reist æru brota­manns­ins. Bergur Þór sagði þau hafa þurft að hafa hátt í 77 daga sam­fleytt. Að þau hefðu þurft að skrifa greinar, fara í fjöl­miðla­við­töl, skrifa hvern ein­asta dag inn á net­miðla til að það heyrð­ist í þeim. Líkti hann því við að vekja stein­runnið tröll af dvala. Barátta brota­þola og aðstand­enda þeirra og umfjöllun fljöl­miðla, Alþingis og stjórn­valda í kjöl­farið hefur leitt í ljós að ferlið við upp­reist æru er stór­gallað og úrelt. 

Æra er gam­alt hug­tak í íslenskri lög­fræði sem á rætur sínar að rekja til Grá­gás­ar­laga, Járnsíðu og Jóns­bókar, elstu laga­bálka Íslands. Í íslenskri rétt­ar­sögu hefur æra manna aðal­lega verið notuð í þeim til­gangi að stefna eða kæra þann sem brýtur gegn henni, með því sem áður nefnd­ust full­rétt­is­orð eða fjöl­mæli og nefn­ast í dag æru­meið­ingar. Hugtakið upp­reist æra kom fyrst inn í íslensk lög með dönskum laga­boðum um mann­orðs­bót sem sam­þykkt var á Alþingi að skyldi lög­leiða á Íslandi árið 1869. Í stjórn­ar­skrá um hin sjer­stak­legu mál­efni Íslands nr. 1/1874 var m.a. kveðið á um í 17. gr. að eitt skil­yrði þess að hafa kosn­inga­rétt til Alþing­is­kosn­inga var óflekkað mann­orð. Til þess að öðl­ast óflekkað mann­orð skv. laga­bót­inni um mann­orðs­bót skyldi bón­ar­bréf sent til lög­gæslu­ráð­herra með vitn­is­burði áreið­an­legra manna, þó aðeins 5 árum eftir að hegn­ingu við­kom­andi lauk. Svipar þess­ari tæp­lega 150 ára fram­kvæmd mjög til þeirrar fram­kvæmdar sem nú er í gildi varð­andi upp­reist æru. Í 3. gr. laga­bót­ar­innar um mann­orðs­bót kom þó m.a. fram:

„Álíti löggæzluráðherrann, þegar hann er búinn að fá álits­skjöl frá þeim dóm­stóli, við hvern hlut­að­eig­andi var dæmdur, eða, að því leyti hann var dæmdur við stríðs­rétt, frá háyf­ir­dóm­ara her­liðs­ins, að hann geti mælt fram með bón­ar­bréf­inu, ber að leggja málið fyrir kon­ung til hans úrskurðar.“ 

Eins og sjá má var í eldri lögum skýrt kveðið á um að löggæzluráðherra skyldi leggja sjálfur mat á það hvort hann gæti mælt með að umsækj­andi um mann­orðs­bót skyldi hljóta hana. Ákvæði um upp­reist æru voru síðar færð í 84. og 85. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, nr. 19/1940, og hafa þau staðið þar, óbreytt að mestu, frá því fyrir þann tíma er Ísland hlaut sjálf­stæði. Á þeim tíma hefur þróun fjar­lægst þeirri hug­mynd að ráð­herra leggi sjálf­stætt mat á umsóknir um upp­reist æru, og hefur nú fram­kvæmdin orðið að fullu sjálf­virk að því er virð­ist, þar sem ein­ungis er lagt mat á hvort lög­form­leg skil­yrði telj­ist upp­fyllt.

Ferlið er eftir sem áður laga­legt úrræði fyrir ein­stak­linga sem hlotið hafa lengri fang­els­is­dóma til þess að hlotn­ast óflekkað mann­orð, sem er m.a. skil­yrði fyrir kjör­gengi til Alþingis, fyrir veit­ingu lög­manns­rétt­inda og starfs­rétt­indum fyrir end­ur­skoð­endur. Sömu­leiðis er krafa um óflekkað mann­orð gjarnan skil­yrði fyrir setu í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opin­bera.

Máls­með­ferðin á umsóknum dóm­fellda um upp­reist æru færð­ist frá svo­kall­aðri náð­un­ar­nefnd til starfs­hóps í dóms­mála­ráðu­neyt­inu sem fram­kvæmir ekki efn­is­legt, heldur ein­ungis form­legt mat á því hvort að viss skil­yrði til veit­ingu upp­reist æru séu upp­fyllt. Hefur til að mynda verið gagn­rýnt að ferlið sem telst stjórn­sýslu­á­kvörðun upp­fylli harla ákvæði stjórn­sýslu­laga um rann­sókn­ar­skyldu stjórn­valda. Sömu­leiðis hefur það sætt umtals­verðri gagn­rýni að ferlið feli ekki í sér öfl­unar umsagnar brota­þola við­kom­andi umsækj­anda þegar við á. Þá hefur dóms­mála­ráð­herra lýst ferl­inu sem „vél­rænu” ferli án svig­rúms til sjálf­stæðs mats ráð­herra á hverju máli fyrir sig. 

Að mati flutn­ings­manna hlýtur slíkt sjálf­stætt mat þó að vera nauð­syn­legt til þess að stað­festa and­lega getu eða hæfi ein­stak­linga sem kunna að hafa framið alvar­leg kyn­ferðis- eða ofbeld­is­brot til þess að gegna lög­manns­störfum. Það verður því að telj­ast bæði rétt og nauð­syn­legt á þessum tíma­punkti að breyta þeim skil­yrðum sem þarf að upp­fylla til að geta starfað sem lög­maður á Íslandi.

II. Núgild­andi lög­gjöf.

Hæfn­is­skil­yrði umsækj­enda um lög­manns­rétt­indi er að finna í 6. gr. laga um lög­menn, nr. 77/1998. Þau skil­yrði sem lögin setja fyrir veit­ingu lög­manns­rétt­inda hafa hingað til ekki þótt gefa til­efni til þess að neita ein­stak­lingum um lög­manns­rétt­indi sem gerst hafa sekir um brot af því tagi sem talin hafa verið í frum­varpi þessu, upp­fylli þeir önnur skil­yrði fyrir veit­ingu lög­manns­rétt­inda og að því gefnu að þeir hafi hlotið upp­reist æru sinnar og þar með „óflekkað mann­orð, svo sem áskilið er til kjör­gengis við kosn­ingar til Alþingis,“ sbr. 3. tölul. 1. mgr. 6. gr. lag­anna.

Í 1. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um lög­menn, nr. 77/1998, er m.a. kveðið á um að umsækj­andi um lög­manns­rétt­indi skuli vera svo á sig kom­inn and­lega að hann sé fær um að gegna störfum lög­manns. Túlka má grein­ina svo að vilji lög­gjafans hafi staðið til þess að sjálf­stætt efn­is­legt mat færi fram á þessum þætti. Þrátt fyrir til­vist þessa ákvæðis virðast­til þess bærir innan stjórn­sýsl­unnar hafa litið svo á að hafi ein­stak­lingur sem sæk­ist eftir lög­manns­rétt­indum áður verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn börnum beri ekki að meta það sér­stak­lega hvort slík brot geri þá and­lega van­hæfa til að gegna störfum lög­manns.

Áður en að dóm­þoli í saka­máli getur hlotið lög­manns­rétt­indi að nýju þarf hann að upp­fylla skil­yrði 3. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga um lög­menn sem kveður á um óflekkað mann­orð. Í 1. mgr. 5. gr. laga um kosn­ingar til Alþingis, nr. 24/2000, er skil­greint hvenær dómur hefur flekkun mann­orðs í för með sér. Hafi ein­stak­lingur gerst sekur eftir dómi um verk sem er sví­virði­legt að almenn­ings­á­liti telst hann ekki hafa óflekkað mann­orð nema að sá hinn sami hafi fengið upp­reist æru sinnar. Í 2. mgr. 5. gr. sömu laga er síðan skýrt út hvenær verkn­aður er sví­virði­legur að almenn­ings­á­liti. Flutn­ings­menn þessa frum­varps telja þau brot sem fjallað er um í 1. gr. frum­varps þessa falli undir þá skil­grein­ingu að telj­ast sví­virði­leg að almenn­ings­á­liti.

Ljóst verður þó að telja að full ástæða er til í þeim málum þar sem umsækj­andi hefur þurft að sækja um upp­reist æru, að kanna sér­stak­lega hvort að var­huga­vert geti verið að veita til­teknum aðila lög­manns­rétt­indi, með vísan til þess að lög­menn gegni mik­il­vægu hlut­verki í rétt­ar­kerf­inu og eðli starfa þeirra getur oft á tíðum verið við­kvæmt. Ekki getur talist rétt að menn sem gerst hafa sekir fyrir þá refsi­verðu hátt­semi sem fjallað er um í 1. gr. frum­varps­ins hljóti lög­manns­rétt­indi sín á ný. Verður því að álykta sem svo að full ástæða sé til að end­ur­skoða 6. gr. laga um lög­menn, nr. 77/1998.

2.1 Staða lög­manna.

Lögmenn hafa í störfum sínum auk­inn aðgang að rétt­ar­kerf­inu og ýmis konar upp­lýs­ingum sem alla jafna eru ekki aðgengi­legar almenn­ingi. Lögmenn njóta því vissra for­rétt­inda. Sem dæmi um aðgang lög­manna að þáttum rétt­ar­kerf­is­ins umfram hinn almenna borg­ara má m.a. nefna að ein­ungis lög­menn geta gegnt hlut­verki verj­anda í saka­máli, en verj­endur hafa rétt til að vera við­staddir skýrslu­tökur af öðrum sak­born­ingum og vitnum við rann­sókn mála og í þing­haldi sbr. 36. gr. laga um með­ferð saka­mála, nr. 88/2008. Þessi réttur getur einnig náð til til­vika þegar brota­þolar eru yngri en 15 ára og gefa skýrslu í sér­út­búnu hús­næði sbr. 2. málsl. 9. gr. sömu laga. Þá má einnig nefna að verj­andi í saka­máli hefur rétt til aðgangs að gögnum í saka­máli sbr. 37. gr. sömu laga. Önnur dæmi um aðgang lög­manna að rétt­ar­kerf­inu eru aðgangur að gögnum máls í barna­vernd­ar­máli skv. 2. mgr. 45. gr. barna­vernd­ar­laga, nr. 80/2002, réttur lög­manna til að stunda inn­heimtu án inn­heimtu­leyfis skv. 2. mgr. 3. gr. inn­heimtu­laga, nr. 95/2008, lög­bundið hlut­verk lög­manna í lög­ræð­is­svipt­ing­ar­málum skv. 3. mgr. 10. gr. lög­ræð­islaga, nr. 71/1997, og mögu­leiki lög­manna á að koma fram fyrir hönd ein­stak­linga í greiðslu­stöðvun skv. 1. mgr. 10. gr. laga um gjald­þrota­skipti o.fl., nr. 21/1991.

Lögmenn sem hafa með höndum störf verj­anda geta haft aðgang að vitna­leiðslum og skýrslu­tökum af börnum í Barna­húsi, sem eðli máls sam­kvæmt, geta verið í mjög við­kvæmri stöðu. Að óbreyttum lögum um lög­menn geta ein­stak­lingar sem gerst hafa sekir um alvar­leg kyn­ferðis- og ofbeld­is­brot verið við­staddir þessar skýrslu­tökur. Þannig geta vitni og brota­þolar í ofbeldis- og kyn­ferð­is­brota­málum þurft að gefa skýrslu þar sem fyrrum dóm­þoli í slíku máli er við­staddur og hefur, þegar um er að ræða þing­hald í saka­máli sbr. 10. gr. laga um með­ferð saka­mála nr. 88/2008 rétt til að spyrja eða koma spurn­ingum til vitnis eða brota­þola áleiðis.

Það verður að telj­ast óeðli­legt að ein­stak­lingar sem hafa gerst sekir um þá hátt­semi sem greinir í 1. gr. frum­varps þessa geti haft með höndum svo við­kvæm en þó mik­il­væg störf sem hér að ofan hefur verið fjallað um. Viðvera þeirra og aðkoma að við­kvæmum málum getur haft afar nei­kvæð áhrif á vitni og brota­þola og getur þannig dregið úr áhrifa­mætti og skil­virkni rétt­ar­kerf­is­ins.

2.2. Skýr­leiki laga.

Þegar lögin kveða ekki skýrt á um skyldur og heim­ildir dóm­stóla og stjórn­sýsl­unnar kemur það í hlut lög­gjafans að skýra ákvæði laga svo að beita megi þeim með áhrifa­ríkum hætti. 

Í dómi Hæsta­réttar 15. júní 2017 var felld niður rétt­inda­svipt­ing lög­manns sem hafði framið kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum og brotið þannig gegn 3. og 4. mgr. 202. gr. og 209. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940. Þrátt fyrir að brotin hefðu verið alvar­leg taldi Hæsti­réttur ekki að sýnt hefði verið fram á að var­huga­vert væri að rétt­inda­svipt­ingin yrði látin niður falla. Í for­sendum Hæsta­réttar var vísað til eldri dóms Hæsta­réttar frá 16. októ­ber 1980 í máli nr. 187/1980, en þar hafði svipt­ing lög­manns­rétt­inda manns, sem sak­felldur hafði verið fyrir mann­dráp skv. 211. gr. almennra hegn­ing­ar­laga og dæmdur í 16 ára fang­elsi, verið felld niður.  Hæsti­réttur taldi af þeirri nið­ur­stöðu yrði ráðið að jafn­vel svo alvar­legt brot stæði því ekki í vegi að svipt­ing lög­manns­rétt­inda yrði felld niður. 

Með vísan til fram­an­greindra dóma verður að álykta sem svo að dóm­stólar túlki lögin sem svo að dómar fyrir alvar­leg­ustu brot skv. almennum hegn­ing­ar­lögum  standi því ekki í vegi að rétt­inda­svipt­ing lög­manna verði felld niður, að því gefnu að við­kom­andi aðili hafi hlotið upp­reist æru. Að mati flutn­ings­manna er það hlut­verk lög­gjafans að tryggja að lögin í land­inu séu lif­andi verk­færi sem þró­ist í takt við breytta tíma. Fordæmið sem Hæsti­réttur vís­aði til er nokk­urra ára­tuga gam­alt og verður að líta svo á að við­horf þjóð­fé­lags­ins gagn­vart ofbeldi sem þessu hafi breyst. Sömu­leiðis hefur orðið við­horfs­breyt­ing gagn­vart kyn­ferð­is­brota­málum og þolendum kyn­ferð­is­brota. Lagaleg skil­yrði þess efnis að lög­menn hafi ekki verið dæmdir fyrir mann­dráp eða kyn­ferð­is­brot eru því eðli­leg afleið­ing af þess­ari þróun.

2.3 Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á lögum er varða upp­reist æru.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá dóms­mála­ráð­herra er fyr­ir­hugað að end­ur­skoða laga­á­kvæði um upp­reist æru og er ætl­unin að leggja fram frum­varp sem fellir þá fram­kvæmd alfarið úr íslenskum lögum. Þess í stað verði sett sér­á­kvæði um starfs­stéttir, nefndir og ráð sem kveða á um skil­yrði þess efnis að ein­stak­lingar skuli ekki hafa hlotið dóm fyrir til­tekna refsi­verða hátt­semi. Þá muni þessum sér­á­kvæðum fylgja ákveðin tíma­mörk sem hafa það í för með sér að ein­stak­lingar sem dæmdir eru fyrir alvar­leg brot þurfi að bíða lengur eftir því að geta aftur hlotið nauð­syn­leg rétt­indi til að sinna þessum til­teknu störfum.

Frum­varpi þessu er ætlað að vera fyrsta skref af mörgum sem taka þarf til þess að breyta lögum og fram­kvæmd um upp­reist æru. Störf lög­manna eru þess eðlis að and­leg færni þeirra til þess að rækja starf sitt skiptir máli í víðum skiln­ingi þess orðs. Ein­stak­lingar sem dæmdir hafa verið fyrir mann­dráp, nauðgun og kyn­ferð­is­brot gegn börnum eiga að mati flutn­ings­manna ekki að telj­ast and­lega færir til þess að gegna lög­manns­störfum. Vissu­lega má færa rök fyrir því að önnur brot ættu jafn­framt að hafa svipt­ingu lög­manns­rétt­inda í för með sér. Þó er hægt að sjá fyrir sér að boð­aðar laga­breyt­ingar dóms­mála­ráð­herra muni taka á þeim brotum og mögu­legum skil­yrðum við end­ur­heimt rétt­ind­anna að ákveðnum tíma liðnum og að upp­fylltum öðrum skil­yrðum. 

III. Meg­in­efni frum­varps­ins.

Með frum­varpi þessu er lagt til nýtt hæfn­is­skil­yrði við 1. mgr. 6. gr. laga um lög­menn sem eiga að koma í veg fyrir að ein­stak­lingar sem hafa framið ákveðin kyn­ferðis- eða ofbeld­is­brot geti hlotið rétt­indi til að starfa sem lög­menn. Með frum­varp­inu á að eyða laga­legri óvissu varð­andi mat á hæfni umsækj­enda sem þolað hafa rétt­inda­svipt­ingu. Frekari umfjöllun um hvaða brot geta leitt til þess að umsækj­andi geti ekki hlotið lög­manns­rétt­indi á ný eftir rétt­inda­svipt­ingu er að finna í athuga­semdum við 1. gr. frum­varps­ins.

IV. Samræmi við stjórn­ar­skrá og alþjóð­legar skuld­bind­ingar.

Rétt­ur­inn til að stunda þá atvinnu sem menn kjósa er vernd­aður af 75. gr. stjórn­ar­skrár­innar, en sam­kvæmt henni er öllum frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Í 2. málsl. 1. mgr. 75. gr. kemur þó fram að þessu frelsi megi setja skorður með lögum, enda krefj­ist almanna­hags­munir þess. Lög þessi setja atvinnu­frelsi til­tek­inna ein­stak­linga vissu­lega skorður, en þó með vísan til þeirra ríku almanna­hags­muna sem fel­ast í trausti almenn­ings gagn­vart rétt­ar­kerf­inu og dóm­stólum og vernd þolenda kyn­ferðis- eða ofbeld­is­brota. Frum­varpið kallar ekki á sér­staka skoðun á sam­ræmi við alþjóð­legar skuld­bind­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár