Áslaug segir ESB verða að líta í eigin barm

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, full­yrðir að fyrst nú sé Evr­ópu­sam­bandið að við­ur­kenna að Bretar séu á útleið úr sam­band­inu. Hún gagn­rýnir for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB á Twitter.

Áslaug segir ESB verða að líta í eigin barm

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, gagn­rýnir stefnu­ræðu Jean-Claude Juncker, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sem hann hélt á Evr­ópu­þing­inu í morgun. Telur Áslaug að Evr­ópu­sam­bandið þurfi að líta í eigin barm og end­ur­skoða það fyr­ir­komu­lag sem nú er við lýði. „Loksins við­ur­kennt að UK sé að fara en ekki við­ur­kennt að þurfi að líta í eigin barm,“ skrifar Áslaug á Twitter. Þá útskýrir hún mál sitt með eft­ir­far­andi hætti:

„Ég meina hvort þau teldu sig þurfa að end­ur­skoða ESB að ein­hverju leyti eftir að nið­ur­staða Breta varð Brexit. Afhverju, er ESB td orðið of stórt, of viða­mikið, tekur það of margar ákvarð­anir fyrir þjóð­þingin, eða hvort þetta hvetji þau í að verða enn stærra sam­band með enn fleira sam­eig­in­legt. Ég td velti stundum fyrir mér eins og með laga­setn­ingu ESB um rafrettur - lítið og ómerki­legt dæmi, en áhuga­vert að svona litlar ákvarð­anir um hert­ari boð og bönn séu tekin á Evr­ópu­stigi en ekki ákvarð­anir ein­staka þjóða eða jafn­vel sveit­ar­fé­laga.“ 

Juncker hefur oft tjáð sig um þá stað­reynd að Bretar ætli að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu og meðal ann­ars tekið skýrt fram að Bret­landi verði ekki refsað fyrir nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar í fyrra. Í stefnu­ræðu sinni í morgun gerði Juncker sér­stak­lega að umtals­efni að Evr­ópu­sam­bandið ætti ekki að skipta sér af dag­legu lífi borg­ar­anna, setja reglu­gerðir um allt og alla eða taka fram fyrir hend­urnar á þjóð­þingum með mörgum og stórum ákvörð­unum. Þannig var mál­flutn­ingur Junckers í anda svo­kall­aðrar nálægðar- eða dreifræð­is­reglu Evr­ópu­sam­bands­ins sem felur í sér vörn gegn mið­stýr­ingu og er ætlað að tryggja vald­dreif­ingu milli aðild­ar­ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár