Óperusöngvara meinað að taka mynd af gjaldskylduskilti við salerni í Hörpu

Kristinn Sig­munds­son óperu­söngv­ari vildi taka mynd af skiltum sem kynna gjald­heimtu við sal­ernin í Hörpu. Starfs­maður bann­aði honum það. „It's a free country,“ sagði Kristinn, sem telur að starfs­menn Hörpu ættu að kunna íslensku.

Óperusöngvara meinað að taka mynd af gjaldskylduskilti við salerni í Hörpu
Harpa Slagorð tón­list­ar­húss­ins er „Harpa - húsið þitt“. Mynd: Harpa.is

Einn far­sæl­asti tón­list­ar­maður Íslands, óperu­söngv­ar­inn Kristinn Sig­munds­son, fékk ákúrur frá gjald­heimtu­manni við sal­ernin í tón­list­ar­hús­inu Hörpu, vegna þess að hann tók ljós­myndir af frum­legum skiltum sem kynna sal­ern­is­að­stöð­una og verð­lagn­ingu á henni.

Kristinn Sig­munds­sonHefur meðal ann­ars komið fram með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands í Hörpu. Auk þess hefur hann komið fram í helstu óperu­húsum heims.

„We don't take pictures here,“ sagði starfs­maður gjald­heimtu í sal­erni Hörpu við Kristinn, sam­kvæmt end­ur­sögn hans á Facebook. „Ég sagði honum: „It's a free country“.

„Not here,“ svar­aði starfs­mað­ur­inn, og benti aftur fyrir sig.“

Kynning á gjald­heimtu við sal­ernin hefur verið stillt þannig fram að með skáletr­uðu mis­stóru letri stendur stórum stöfum: „Dream a little dream of WC“, og í smáu letri greint frá 300 króna gjaldi. „Hello, is it wc you're looking for“ segir í öðru skilti. 

Færsla KristinsHann varð fyrir óþægi­legri reynslu í Hörpu.

„Ég er ekki alveg viss um hvað mér á að finn­ast um gjald­skyld­una en þessi skilti eru fyrir neðan allt. Hall­æris­leg að öllu leyti, og þar að auki bara á ensku. Og það í einu af helstu menn­ing­ar­húsum á Íslandi. Þegar ég tók mynd­irnar æpti hland­ker­inn á mig á vondri ensku með slav­neskum hreim „We don't take pictures here.“

Miklar umræður hafa skap­ast um þá ákvörðun Hörpu að hefja inn­heimtu við sal­ernin í hús­inu. Harpa, sem notar slag­orðið „Húsið þitt“, byrj­aði í sumar að rukka 300 krónur fyrir hverja sal­ern­is­ferð. Píanó­leik­ar­inn Ingi Bjarni Skúlason sagði frá því fyrr í mán­uð­inum að hann hefði séð konu hafa hægðir milli bif­reiða á bíla­stæð­inu við Hörpu. „Ég horfði á það ger­ast! Ég hef aldrei séð annað eins!“ greindi hann frá á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár