Hallærisleg þessi hafmeyja! Dagbók frá Kaupmannahöfn XIII

Illugi Jök­uls­son braut lof­orð við sjálfan sig og fór að skoða Litlu haf­meyj­una í Kaup­manna­höfn

Hallærisleg þessi hafmeyja! Dagbók frá Kaupmannahöfn XIII
Litla haf­meyjan rétt áðan.

Að því marki sem ég hef haft skoðun á Litlu haf­meyj­unni í Kaup­manna­höfn í gegnum tíð­ina, þá hefur mér ævin­lega fund­ist hún heldur fáfengi­legt og hall­æris­legt verk.

Og ótrú­legt að svona lítil og umkomu­laus stytta skyldi ein­hvern veg­inn ná því að verða tákn­mynd heillar þjóðar, þeirrar dönsku.

Eða alla vega tákn­mynd stór­borg­ar­innar Kaup­manna­hafnar.

Hlægi­legt! Og er það rétt að hún sé ekki nema 60 sentí­metra há!

Ég hef oft komið til Kaup­manna­hafnar en aldrei farið að sjá Litlu haf­meyj­una, og var raunar löngu búinn að lofa sjálfum mér að það ætl­aði ég aldrei að gera.

Maður lætur nú ekki hafa sig í hvaða túrista­stöff sem er!

En áðan átti ég erindi í Toll­búð­ina á Löngu­línu og vissi að Litla haf­meyjan var í næsta nágrenni.

Og þar sem ég hjólaði burt, þá ákvað ég að brjóta nú þetta lof­orð - og líta aðeins á Haf­meyj­una.

Og svei mér þá, þar sem ég horfði á hana umkringda ferða­mönnum sem voru að taka myndir af henni - eins og ég - þá fannst mér hún allt í einu bara svo ágæt.

Örlítið und­ir­leit, kurt­eis og kyrr­lát situr hún þarna á steini.

Ekki með gassa­gang, læti, belg­ing eða hroka.

Bara hyggelig.

Og yfir­læt­is­laus.

Er nú ekki bara betra og mann­úð­legra og fal­legra að eiga svo­leiðis lít­il­þægt, frið­sælt tákn heldur en tákn­myndir sumra ann­arra þjóða og borga?

Til dæmis okkar?

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár