Ástin kviknar í Kaupmannahöfn. Dagbók XI.

Illugi Jök­uls­son varð vitni að fal­legum sam­ræðum á tæí­lenskum veit­inga­stað.

Ástin kviknar í Kaupmannahöfn. Dagbók XI.
Krist­jáns­borg­ar­höll. Því skyldi ástin ekki geta kviknað hér eins og ann­ars staðar?

Ég sat í gær eða fyrra­dag utandyra á tælenskum veit­inga­stað hér í Kaup­manna­höfn og snæddi kjúkling með kasjú­hnetum. Við hlið­ina á mér sátu tveir ungir Amer­ík­anar, piltur og stúlka, svona 25 ára, og höfðu greini­lega kynnst rúmum klukku­tíma fyrr þegar þau voru að skoða Krist­jáns­borg­ar­höll hvort í sínu lagi.

Og höfðu þá tekið tal saman.

Samræður þeirra nú sner­ust samt ekk­ert um Krist­jáns­borg­ar­höll né annað það sem þau höfðu upp­lifað í ferða­lögum sínum um Danmörku og fleiri Evr­ópu­lönd.

Og heldur ekki um þau sjálf, ævi þeirra og ævin­týri.

Nei, þau töl­uðu bara um tækin sín.

Símana sem þau áttu og höfðu átt, far­tölv­urnar aftur í barn­æsku, og tölvuúr stúlkunnar varð þeim sann­kallað gósen­land sam­ræðna.

Og þau eyddu svo miklum tíma í að tala um öppin sín öll að það dugði mér til klára hrís­grjónin.

Þegar loks hyllti undir vand­ræða­lega þögn þá leysti pilt­ur­inn það með því að brydda upp á spurn­ing­unni hverjar væru upp­á­halds Leonardo DiCapro-mynd­irnar þeirra.

Stúlkan sagði Titanic og það reynd­ist vera upp­á­halds­myndin hans líka.

Þegar þetta umræðu­efni var þrotið hélt hann áfram á svip­aðri braut:

„En hvað finnst þér best í sjón­varp­inu? Mér finnst House of Cards vera alveg topp­ur­inn.“

„Finnst þér það?“ sagði stúlkan hissa. „Mér finnst það svo fer­lega leið­in­legt.“

„Ja, sko, mér fannst það byrja alveg ansi vel sko,“ sagði pilt­ur­inn.

„Æ, ég veit það ekki,“ sagði hún. „Mér fannst það svo flókið eitt­hvað og óskilj­an­legt, ein­tómt mas eitt­hvað.“

„Já, eig­in­lega einmitt,“ sagði hann. „Ég horfði sko eig­in­lega bara á fyrsta þátt, svona með öðru aug­anu, og svo var þetta komið út í eitt­hvað rugl sko, alveg ömur­legt eig­in­lega ...“

„Já, mér fannst það einmitt líka,“ sagði hún.

Ég kláraði kjúkling­inn og fór. Þau sátu eftir. Ég er eig­in­lega alveg viss um að þau eiga eftir að gift­ast og verða mjög, mjög ham­ingju­söm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár