„Bylting!“ hrópuðu sumir þátttakendur í mótmælunum í Frakklandi. Aðrir kröfðust betri aðbúnaðar í skólum. Margir vildu einfaldlega að heimilisfjárhagurinn hætti að versna vegna hækkandi eldsneytis- og matvælaverðs.
Sumir virtust hins vegar sækjast eftir átökum. Grímuklædd ungmenni tókust á við lögreglu og nýttu sér upplausnarástandið til að ræna dýrum íþróttaskóm og sjónvarpstækjum úr verslunum í borgum landsins.
Óeirðirnar hafa dregið fram djúpstæðan pólitískan og efnahagslegan ágreining í frönsku samfélagi í aðdraganda forsetakosninganna á næsta ári, að mati stjórnmálaskýrenda. Þær styrkja stjórnmálaöfl sem vilja breyta ríkjandi valdakerfi, á sama tíma og fjárhagsþrengingar ríkisins takmarka möguleika stjórnvalda til að bregðast við.
Þetta veldur Emmanuel Macron Frakklandsforseta verulegum vanda. Uppgangur hans í stjórnmálum varð meðal annars mögulegur vegna hruns hins hefðbundna flokkakerfis í Frakklandi og á forsetatíð hans hefur sundrung á stjórnmálavettvangi aukist enn frekar.
Stjórnmálaskýrendur telja að bilið milli væntinga Frakka til ríkisins og þess sem ríkissjóður …




















































Athugasemdir