Bandaríska vísindakonan Margaret Hamilton, sem stýrði þróun tölvukerfisins sem notað var í Apollo-tungláætlun NASA, er látin, níræð að aldri. Fyrrverandi vinnuveitandi hennar greindi frá andlátinu í gær.
Í tilkynningu frá tækniháskólanum MIT í Massachusetts var Hamilton lýst sem „frumkvöðli í tölvutækni“. Þar kenndi hún frá 1959 fram á miðjan áttunda áratuginn. Hún lést 30. september.
„Að segja að Margaret Hamilton hafi verið frumkvöðull – að segja að hún hafi verið á undan sinni samtíð – væri að gera stórlega lítið úr framlagi hennar,“ sagði Olivier de Weck, prófessor í fræðastöðu kenndri við Apollo-áætlunina og starfandi deildarforseti flug- og geimverkfræðideildar MIT.
„Hún var hugbúnaðarverkfræðingur þegar greinin var enn á bernskuskeiði. Hún skrifaði ekki aðeins sjálf háþróaðan forritskóða heldur stýrði líka teymi sem nýtti þessa nýju tækni til að þróa eitt flóknasta kerfi sem mannkynið hafði nokkru sinni búið til,“ bætti de Weck við.
Apollo-áætlunin gerði Bandaríkjunum kleift að hafa betur …




















































Athugasemdir