Forsætisráðherra: Ráðherraskipan ekki einkamál hvers ráðherra fyrir sig

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir for­menn stjórn­ar­flokk­anna hafa rætt stöð­una sem upp var kom­in vegna veik­inda Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar. Hún hafn­ar þó þeirri túlk­un for­manns Mið­flokks­ins að for­menn­irn­ir hefðu ákveð­ið í sam­ein­ingu að hann skyldi víkja úr rík­is­stjórn.

<span>Forsætisráðherra:</span> Ráðherraskipan ekki einkamál hvers ráðherra fyrir sig
Tala saman Kristrún sagði þær Ingu og Þorgerði, sem fara hver fyrir sínum stjórnarflokk, um stöðuna í ríkisstjórn vegna veikindaleyfis Guðmundar Inga. Tekist hefur verið á um hver hafi í raun ákveðið að hann skildi segja af sér. Mynd: Golli

Forystukonur ríkisstjórnarinnar, Valkyrjurnar svokölluðu, þær Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ræddu stöðu Guðmundar Inga Kristinssonar, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, þegar hann var í veikindaleyfi í byrjun árs. Eftir þann fund hafi þær svo rætt við Guðmund Inga. 

Þetta kom fram í svörum Kristrúnar við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Kristrún sagði ráðherra sitja í skjóli þingmeirihluta og því eðlilegt að formenn stjórnarflokkanna ræddu mál sem gætu haft áhrif á ráðherraskipan.

„Það er ekki einkamál hvers ráðherra eða hvers formanns þegar stórar ákvarðanir eru teknar um mannabreytingar, hvort sem það á rætur sínar að rekja til heilsufars eða annarra þátta,“ sagði Kristrún í þinginu. 

Inga fór um tíma með þrjú ráðherraembætti meðan Guðmundur Ingi var í veikindaleyfi, þar á meðal embætti hans. Hún hefur áður sagt að þegar umfang aðgerðarinnar sem hann gekkst undir varð henni ljóst hefði verið nauðsynlegt að tryggja ráðuneytinu …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Flokki fólksins

„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
StjórnmálÁtök í Flokki fólksins

„Kann­ast ekki við þá mynd sem hef­ur ver­ið dreg­in þar upp“

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir krafði Ingu Sæ­land svara um hver hafi ákveð­ið af­sögn Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar úr rík­is­stjórn. Í skila­boð­um sem að­stoð­ar­kona hans sendi hon­um í janú­ar sagði að ákvörð­un­in hefði ver­ið tek­in af „val­kyrj­un­um“. Inga seg­ir þau Guð­mund Inga greina á um að­drag­anda máls­ins og stend­ur við sín­ar ákvarð­an­ir.

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár