Vegagerðin segir blátt skilti vara við aðstæðum

Vega­gerðin segir að hún hafi aukið merk­ingar eftir banaslys árið 2007. Rann­sókn­ar­nefnd sagði merk­ingu um hættu­lega beygju ábóta­vant. Þá merk­ingu vantar enn, en Vega­gerðin telur blátt skilti vara við aðstæðum.

Vegagerðin segir blátt skilti vara við aðstæðum
Skilta­merk­ingar Hér má sjá merk­ingar á veg­kafl­anum. Mynd: Golli

„Eftir banaslysið árið 2007 voru settar upp auknar merk­ingar eins og rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa hafði lagt til,“ segir í svari Vega­gerð­ar­innar við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar vegna skorts á beygju­merk­ingu á Krýsu­vík­ur­veg­inum þar sem banaslys ung­menna varð aðfara­nótt mánu­dags.

Heim­ildin greindi frá því að annað umferð­ar­slys hefði orðið á nákvæm­lega sama veg­kafla á Krýsu­vík­ur­veg­inum árið 2007. Þá lést vél­hjóla­maður sem ók á miklum hraða. Sá lést einnig þegar hann end­aði á steini sem er utan vegar um mið­bik beygj­unnar.

Segja blátt skilti varar við varasömum aðstæðum

Í nið­ur­stöðu Rann­sókn­ar­nefndar umferð­ar­slysa (RNU) sagði að merk­ingum um hættu­lega beygju hefði verið ábóta­vant auk þess sem það þyrfti að lækka hámarks­hraða á svæð­inu. Engar merk­ingar er að finna um beygj­una enn í dag, en öðrum fyr­ir­mælum var fylgt eftir sam­kvæmt til­mælum RNU, auk þess sem varað er við gatna­mótum Blá­fjalla­af­leggjara.

Veg­kafl­innHér má sjá hvernig beygjan …
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár