Tvö banaslys á nákvæmlega sama stað á Krýsuvíkurveginum

Fjórir hafa lát­ist á nákvæm­lega sama stað á Krýsu­vík­ur­vegi síð­ustu 20 ár. Í rann­sókn kom fram að merk­ingum um hættu­lega beygju væri ábóta­vant. Enn eru engar slíkar merk­ingar á veg­kafl­anum og merk­ing gefur til kynna að leiðin sé bein.

Tvö banaslys á nákvæmlega sama stað á Krýsuvíkurveginum
Merk­ingar Hér má sjá merk­ingar á veg­kafl­anum, en jafn­framt má sjá glögg­lega blind­hæð­ina sem blasir við. Mynd: Golli

Rúmlega þrí­tugur karl­maður lést í bif­hjólaslysi fyrir nítján árum síðan á nákvæm­lega sama stað og þrjú ung­menni lét­ust á Krýsu­vík­ur­vegi suð­austur af Hafn­ar­firði aðfar­arnótt mánu­dags. Í nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar umferð­ar­slysa (RNU) kemur fram að vega­merk­ingum á slys­stað hafi verið ábóta­vant árið 2007 þegar vél­hjólaslysið átti sér stað.

Merkingum ábótavant

Um það sagði í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar: „Rann­sókn­ar­nefnd umferð­ar­slysa telur að lækka eigi hámarks­hraða á Krýsu­vík­ur­vegi úr 90 km/klst. í 70 km/klst. Vegurinn er með bundnu slit­lagi en mjóum veg­öxlum og er umhverfi hans var­huga­vert. Veg­merk­ingum á slys­staðnum er að mati nefnd­ar­innar ábóta­vant þar sem ekki er varað við hættu­legum beygjum og hæðum.“

Veg­kafl­innÁ mynd­band­inu má sjá glögg­lega hvernig beygjan birt­ist öku­mönnum.Golli

Slíkar merk­ingar er ekki að finna nærri beygj­unni í dag, nítján árum síðar, en mælt er með að hámarks­hraði sé 70 kíló­metra á klukku­stund í sam­ræmi við nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bílslys

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár