Farage óskar Íslendingum til hamingju

Leið­tog­ar yst til hægri í Bretlandi og Frakklandi fagna ákvörð­un ís­lensku þjóð­ar­inn­ar um að hafna að­ild­ar­við­ræð­um við Evr­ópu­sam­band­ið.

Farage óskar Íslendingum til hamingju

Leiðtogar yst til hægri í Bretlandi og Frakklandi fagna niðurstöðunni í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka ætti aftur upp aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið, þar sem 52,8% landsmanna höfnuðu viðræðum.

„Til hamingju, Ísland, með að hafa kosið að halda sjálfstæði ykkar,“ skrifaði Nigel Farage, leiðtogi Reform UK, á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter.

„Á sama tíma og sumir þrýsta á um aukna sambandsríkjavæðingu og framsal fullveldis til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins minnir þessi atkvæðagreiðsla okkur á að önnur Evrópa er möguleg — Evrópa frjálsra og fullvalda þjóða sem vinna saman af fúsum og frjálsum vilja að sameiginlegum hagsmunamálum,“ skrifaði Marine Le Pen frá Frakklandi á sama miðli.

Marine Le PenLeiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi er efst í skoðanakönnunum fyrir komandi forsetakosningar í landinu næsta vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Íslands ógæfu verður allt að vopni
    0
    • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Nei þetta er einmitt til vitnis um að Ísland hefur gæfu sína í eigin höndum.
      -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár