„Eins spennandi og það gæti orðið“

Mjótt er á mun­um í þjóð­ar­tkvæða­greiðslu um hvort Ís­land eigi að fara í að­ild­ar­við­ræð­ur við Evr­ópu­sam­band­ið. Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son fagn­aði á með­an nei var yf­ir og sagði að í dag hafi tæp­lega 300 mætt til þess að hringja út, 19 hafi hringt yf­ir 400 sím­töl hver og einn yf­ir 700 sím­töl. Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son seg­ir að bú­ið sé að kljúfa þjóð­ina og Reykja­vík frá lands­byggð­inni. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir seg­ir að sama hvernig fer þá sé­um „við öll í sama liði“.

„Eins spennandi og það gæti orðið“

„Þetta er eins spennandi og það gæti orðið,“ segir Hafsteinn Birgir Einarsson, doktor í stjórnmálafræði, sem stendur vaktina á kosningavöku RÚV í kvöld. Til marks um það voru fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi hnífjafnar, 9.900 atkvæði fyrir já og 9.900 atkvæði fyrir já.

Framan af var nei-ið með yfirhöndina og sýnt var frá kosningavöku þar sem Halldór Benjamín Þorbergsson stóð sigurreifur á sviði, þar sem hann sagði að þegar vegferð nei hreyfingarinnar Áfram Ísland, þá hefði honum ekki órað fyrir því að þetta væri staðan tveimur mánuðum síðar. Hann varaði þó við því að nóttin væri ung og fólk mætti búast við því að vera lengi í þessu partíi. „Barátta Áfram Ísland hófst í mikilli brekku. Við vorum undir í öllum skoðanakönnunum,“ sagði hann, en alls hafi um 4.000 manns mætti á fundi hreyfingarinnar sem fram fóru víðsvegar um landið. 

„Haldið ykkur fast, 19 aðilar hringdu meira en 400 símtöl, hver og einn“

Þá hafi verið lagt mikið í úthringiver. Á kjördag hafi 287 manns mætt til þess að hringja út og sá sem hringdi flest símtöl hringdi 700 símtöl á einum degi. „Haldið ykkur fast, 19 aðilar hringdu meira en 400 símtöl, hver og einn.“

Samtals hringdu þessir 20 einstaklingar, af 287, því minnst 8.300 símtöl í dag. 

Nei yfirFagnað á kosningavöku nei-hreyfingarinnar.

Gæti ekki staðið tæpara

Á miðnætti var já komið yfir með 51,2 prósent atkvæða, en búið var að telja um helming atkvæða í Reykjavík og minna á landsbyggðinni. Kannanir benda til þess að já sé sterkara í borginni en annars staðar á landinu. Allt bendir til þess að niðurstöður falli í takt við niðurstöður kannana. 

Hafsteinn benti á að samkvæmt könnunum verði  Reykjavík að vera sterkasta kjördæmi já til þess að það geti sigrað. Þegar fyrstu tölur þaðan bárust var hlutfallið 59,4%.

Samkvæmt líkani sem hann styðst við í kvöld mun það ekki duga til, nema önnur niðurstaðan verði sterkari en ráðgert var í öðrum kjördæmum.

„Þar var ég með áætlað að já-ið þyrfti að ná 63,5% þannig þar er þetta töluvert undir því sem það þyrfti að ná í Reykjavík norður“

„Miðað við væntingar þá verður Reykjavík norður að vera sterkasta kjördæmi já-sins. Þannig að þar var ég með áætlað að já-ið þyrfti að ná 63,5% þannig þar er þetta töluvert undir því sem það þyrfti að ná í Reykjavík norður. En þetta er auðvitað breytingum háð,“ sagði Hafsteinn.

Síðan á eftir að telja utankjörstaðaatkvæðin, sem erfitt er að lesa í fyrirfram. 

„Þetta gæti varla staðið tæpara.“

Já komst yfir Gleðin var engu minni á kosningavöku já-hreyfingarinnar þegar já komst yfir í kringum miðnætti.

Já undir viðmiðum 

Allt bendir til þess að niðurstöður séu í takt við síðustu spár.

Í flestum kjördæmum eru tölurnar undir viðmiði fyrir já, bendir Hafsteinn á. Hins vegar er eitt kjördæmi sem sker sig úr, Norðvesturkjördæmi. „Það getur skipt máli úr hvaða kjörstað er verið að telja.“ Atkvæði sem greidd eru á Akureyri geti verið öðruvísi en atkvæði sem berast annars vegar úr kjördæminu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins sem hefur verið þingmaður kjördæmisins, ræddi við RÚV. „Þetta er gríðarlega spennandi og virðist vera glettilega í takt við Gallup-könnunina stóru,“ sagði hann en tók fram að fólk þyrfti væntanlega að vaka langt fram á nótt áður en lokaniðurstaðan verður ljós.

Löng nótt framundanMjótt er á munum og enn alls óvíst hver lokaniðurstaðan verður.

Hefur ekki áhyggjur af ríkisstjórninni

Í ljósi þess hve mjótt er á munum voru formenn stjórnarandstöðuflokka á Alþingi spurðir hvernig yrði að vinna úr stöðunni. Sigmundur svaraði því til að þjóðaratkvæðagreiðslan hefði ekki aðeins klofið þjóðina heldur væri búið að „kljúfa Reykjavík frá restinni af landinu“. Lilja Alfreðsdóttir var hins vegar öllu jákvæðari. Það yrði flókið að vinna úr þessu vegna þess hversu tæpt umboðið verður, en tók um leið fram: „Við sem Íslendingar erum vön því að takast á við erfið og flókin verkefni.“ 

„Það má ekki gleyma því, hvernig sem fer, að við erum öll í sama liðinu“

Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar á morgun, þar sem farið verður yfir næstu skref. „Það má ekki gleyma því, hvernig sem fer, að við erum öll í sama liðinu,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.  „Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn.“

Aðspurð hvernig það fari með ríkisstjórnarsamstarfið ef nei verður ofan á, sagðist Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ekki hafa áhyggjur af því. Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafi heitið því að virða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar, sama hvernig fer. „Ég hef ekki áhyggjur af þessari ríkisstjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
5
GreiningHorft til Evrópu

„Já“ þarf mörg­um sinn­um en „nei“ bara einu sinni

Ef „nei“ verð­ur nið­ur­stað­an á morg­un leggst Evr­ópu­um­ræð­an í dvala en skýt­ur upp koll­in­um síð­ar að mati Ól­afs Þ. Harð­ar­son­ar, pró­fess­ors emer­it­us. Verði „já“ nið­ur­stað­an þyrfti að kom­ast yf­ir marga þrösk­ulda áð­ur en Ís­land gengi í ESB, hvað þá tæki upp evru. Mörg rök „nei“-hreyf­ing­ar­inn­ar séu einnig rök gegn áfram­hald­andi veru í EES.
Vildu ekki koma aftur til Íslands með 100 manna hóp
6
InnlentHorft til Evrópu

Vildu ekki koma aft­ur til Ís­lands með 100 manna hóp

Vil­borg Arna Giss­ur­ar­dótt­ir tók á móti 100 frönsk­um kon­um sem komu hing­að til að keppa í vetr­arí­þrótt­um. Kostn­að­ur­inn kom í bak­ið á skipu­leggj­end­um móts­ins sem ákváðu að fara næst til Finn­lands. Finn­ar hafa nýtt styrki ESB við upp­bygg­ingu heim­skauta­ferða­mennsku, en Vil­borg vann að verk­efni í byggða­þró­un á Suð­ur­landi sem fékk 100 millj­óna styrk þeg­ar Ís­land var síð­ast í að­ild­ar­við­ræð­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
4
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár