Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar

Heim­ur­inn er hættu­lega óvið­bú­inn áhrifum gervi­greindar, segir Bill Gates, sem telur hana munu eyði­leggja störf og rjúfa mann­leg tengsl.

Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar
Bill Gates Stofn­andi Microsoft varar við áhrifum af gervi­greind­ar­tækni á störf ungs fólks og tengsla­myndun barna. Mynd: EPA

Bill Gates varar við því að heim­ur­inn sé hættu­lega illa und­ir­bú­inn fyrir þær umbylt­ingar sem gervi­greind hefur í för með sér, þar sem tæknin eyði­leggi störf og ógni mann­legum tengslum, sér­stak­lega hjá ungu fólki.

Í tæp­lega 6.000 orða rit­gerð sem birt var á bloggi hans sagði með­stofn­andi Microsoft að umskiptin yfir á tíma­bil gervi­greindar yrðu meðal óró­leg­ustu tíma­bila í sögu mann­kyns og að eng­inn hefði lagt fram trú­verð­uga áætlun um hvernig ætti að stjórna atburða­rásinni.

Afstaða hans mun mæta veru­legri and­stöðu frá mörgum í Kísildal og rík­is­stjórn Trumps sem kenna „dóms­dags­spá­mönnum“ meðal sumra tækni­leið­toga um að koma óorði á gervi­greind­ar­bylt­ing­una.

„Gervi­greind verður annað hvort mesti jöfn­uður sem fund­inn hefur verið upp, eða versta upp­spretta órétt­lætis,“ skrif­aði Gates, 70 ára, sem nú stýrir góð­gerð­ar­stofn­un­inni sem ber nafn hans.

„Það er engin áætlun til að auð­velda inn­reið tíma­bils gervi­greindar,“ sagði Gates og bætti við að hann myndi lík­lega styðja slíka áætlun …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    En ég hélt að þetta var akkúrat það sem hann vildi... Sumir voru greinilega að spá miklu lengra í framtíðinni en Mr. Gates... Áhættan var alltaf vel fyrirsjáanleg, og nú er hugsanlega of seint að snúa við. Sumt í gervigreind er virkilega gagnlegt og stórkostlegt, en áhættan hrikalega vanmetin.
    3
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það verður passað uppá að eihverjir heilaþvegnir verði eftir til að versla þar til allt er búið, efni til framleiðslu og orkan sem þarf til framleiðslunnar ef súrefnið klárast ekki fyrst.
    1
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Ef gervigreind tekur öll störf burt, hver á þá peninga til að kaupa vörurnar sem eru framleiddar? Ég get einhvern veginn ekki fengið mig til að trúa því að fáeinir ríkir gervigreindarbúar myndu byrja að gefa peninga til fólks án vinnu svo það gæti keypt hluti.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þegar gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár