Getur Ísland staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um náttúruvernd utan Evrópusambandsins?

Svo virð­ist sem Ís­land sæk­ist eft­ir því að ger­ast að­ili að al­þjóð­leg­um samn­ing­um en leiti síð­ur eft­ir því að inn­leiða regl­urn­ar eða upp­fylla skuld­bind­ing­ar sín­ar. Rætt við líf­fræð­ing­inn Trausta Bald­urs­son og Að­al­heiði Jó­hanns­dótt­ur, pró­fess­or í um­hverf­is­rétti.

Getur Ísland staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um náttúruvernd utan Evrópusambandsins?
Þjórsárver eru eitt af upprunalegu íslensku Ramsar-svæðunum þar sem verpa þriðjungur allra heiðagæsa í heiminum en þar hafa fjörtíu og sjö fuglategundir sést og tuttugu og sjö orpið. Einstakar náttúruperlur sem og fuglar á Íslandi eiga mikið undir alþjóðaskuldbindingum.

Árið er 2009 og íslenska ríkisstjórnin farin í vegferð þá að láta reyna á aðildarviðræður við Evrópusambandið. En á „hrundeginum“ árið áður – eða því sem næst – hafði líffræðingurinn Trausti Baldursson hafið störf hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Um svipað leyti bárust þær upplýsingar að í farvatninu séu möguleikar á að fá þaðan ákveðna styrki, svokallaða IPA-styrki (e. Instrument for Pre-Accession Assistance) sem voru fjármunir frá Evrópusambandinu til að styrkja íslenska stjórnsýslu, svo sem þýðingar regluverks og fjármögnun til að hrinda í framkvæmd verkefnum, til dæmis á vegum Náttúrufræðistofnunar og Landmælinga Íslands fyrir uppbyggingu Natura 2000-netsins og innleiðingu vistgerða- og fuglatilskipana.

„Og það er hringt úr ráðuneytinu. Það var einhver kona að koma frá Evrópusambandinu og ætlaði að kynna þessa styrki fyrir okkur. Ég man að Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður hjá Miðflokknum núna, vann þá í ráðuneytinu. Svo ég spurði hann: „Hvar fæ ég leiðbeiningar um þetta? – geturðu sýnt mér einhvern …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KF
    Katrín Fjeldsted skrifaði
    Setti nýtt lykilorð til að lesa seinni hluta greinar sem svo birtist ekki.
    0
  • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Það verður lögfesta bann við því að erlendir aðilar beri fé á aðila í íslenskri stjórnsýslu með þeim hætti sem hér er lýst. Allar fjárveitingar til stjórnsýslu eiga að vera á íslenskum fjárlögum eingöngu og vilji einhver styrkja hana fjárhagslega má senda það í ríkissjóð.
    0
    • SÍF
      Sveinn í Felli skrifaði
      Eru þá allir náms- og rannsóknastyrkir beinar mútur í þínum augum?
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár