Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind

Donald Trump og Xi Jinping ræddu meðal ann­ars gervi­greind, við­skipti og stríðið í Íran á fundi sínum í Washington. Leið­tog­arnir stað­festu jafn­framt að þeir myndu hitt­ast tvisvar til við­bótar á þessu ári.

Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
Fundað Donald Trump Banda­ríkja­for­seti tók á móti Xi Jinpin Kína­for­seta í Hvíta hús­inu. Sam­skipti ríkj­anna hafa ein­kennst af átökum und­an­farin miss­eri. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Kína og Banda­ríkin hafa sam­þykkt að koma á fót „sam­skipta­leið“ vegna atvika tengdra gervi­greind, að sögn beggja ríkja, eftir leið­toga­fund í Washington þar sem fá stór tíð­indi urðu.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Xi Jinping Kína­for­seti ræddu allt frá gervi­greind og við­skiptum til stríðs­ins í Íran, sem hefur staðið í stað, og stað­festu að þeir myndu hitt­ast í þriðja og fjórða sinn á árinu á alþjóð­legum leið­toga­fundum í Kína og Banda­ríkj­unum.

Heimsókn Xi til Washington ein­kennd­ist fremur af við­höfn en efn­is­legum árangri. Hvíta húsið greindi þó frá því á föstu­dag að ríkin hefðu sam­þykkt að koma á „tví­hliða sam­skipta­leið“ vegna atvika tengdra gervi­greind.

Kín­verskir rík­is­fjöl­miðlar stað­festu á laug­ar­dag að sam­komu­lag hefði náðst um slíka sam­skipta­leið þegar þeir greindu frá nið­ur­stöðum fund­ar­ins.

Trump hefur ítrekað gert lítið úr ótta um að gervi­greind geti ógnað mann­kyn­inu en Xi tók var­færn­ari afstöðu og sagði að tæknin yrði að þró­ast undir stjórn manna.

Hvíta …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár