Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, verða ræðumenn við upphaf Druslugöngunnar sem fram fer á laugardaginn. Safnast verður saman kl. 13 við Hallgrímskirkju þar sem fram fer varningssala, tónlist og skiltagerð, að sögn Silju Höllu Egilsdóttur, ein skipuleggjenda göngunnar í ár, en svo verður lagt af stað kl. 14 og endað á Austurvelli.
„Eins og oft áður viljum við lyfta andanum upp eftir ræðuhöld, enda geta þau oft verið þung á sálina og tilfinningamikil, þannig á svið munu stíga tónlistardúettið Mammaðín, sem eru Elín Hall og Katla Njálsdóttir, Alaska1867 og Álfgrímur, en hann mun meðal annars fara með nýtt lag Druslugöngunnar „DRUSLUR“,“ segir Silja.
Að göngunni lokinni verður Ólafarvaka haldin á Skúla Craftbar til heiður Ólafar Töru Harðardóttur sem lést í fyrra. „Þetta er í annað sinn sem við höldum vökuna og það verður vonandi mjög falleg og skemmtileg leið til að enda daginn, en er einmitt …

















































Athugasemdir