Íhugar að láta handtaka Netanyahu

Hann á heima í Haag, seg­ir Zor­an Mamda­mi, borg­ar­stjóri New York, um for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els sem stefn­ir á fund hjá Sam­ein­uðu þjóð­un­um.

Íhugar að láta handtaka Netanyahu
Zoran Mamdami Borgarstjórinn í New York segir að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sé sekur um stríðsglæpi, eins og óháðar alþjóðlega rannsóknir hafa bent til. Mynd: AFP

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, er í viðræðum um hvort reyna eigi að handtaka Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, á komandi leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna, að því er hann sagði hann í viðtali um helgina. Hörð viðbrögð bárust frá stuðningsmönnum Netanyahu.

„Ég tel að Netanyahu forsætisráðherra eigi heima í Haag,“ sagði Mamdani við The New York Times. „Hann er stríðsglæpamaður sem hefur verið ákærður af Alþjóðlega sakamáladómstólnum.“

Mamdani, sem er vinstrisinnaður og hefur kallað Ísrael „aðskilnaðarstjórn“, bætti við: „Þetta er skoðun sem margir deila, einfaldlega vegna þess sem aðgerðir hans hafa leitt af sér á undanförnum árum.“

Mamdani viðurkenndi að hann væri ekki viss um hvort hann hefði vald til að skipa lögreglunni í New York að handtaka erlendan leiðtoga en ræðir málið við lögfræðiteymi borgarinnar.

„Hvað sem lögin leyfa mér að gera í New York-borg, það munum við gera,“ sagði hann.

Allsherjarþing …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ósvífni Ísraelsríkis er óhugnanleg með diggri aðstoð USA.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Stríðglæpamaðurinn Netanyahu á heima í Haag og hvergi annars staðar.

    Sama má segja um Pútin einræðisherra Rússlands.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár