Langreyður háði dauðastríð í rúman hálftíma

Nátt­úru- og dýra­vernd­ar­sam­tök segja dauða­stríð lang­reyð­ar ekki „ein­angr­að eða til­fallandi frá­vik“. Ný eft­ir­lits­skýrsla Mat­væla­stofn­un­ar sýn­ir að lang­reyð­ur var skot­in fjór­um sinn­um og var áætl­að­ur tími til dauða rúm­ur hálf­tími.

Langreyður háði dauðastríð í rúman hálftíma
Skotsár Sjá má þrenn skotsár á búk hvalsins. Mynd: Arne Feuerhahn

„Þegar svo alvarleg brot á dýravelferð eiga sér stað ber að stöðva veiðarnar tafarlaust og rannsaka málin af fullri alvöru,“ segir í yfirlýsingu sem hópur náttúruverndar- og dýraverndarsamtaka sendi frá sér í dag í kjölfar nýrrar eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar.

Skýrslan sýnir að 22. júní skaut Hvalur 8 sömu langreyðina fjórum sinnum. Samkvæmt skýrslunni kafaði dýrið eftir fyrsta skotið en áætlað er að það hafi tekið 31 mínútu fyrir dýrið að deyja. Það var fyrst skotið kl. 17:06, aftur kl. 17:19, í þriðja sinn kl. 17:26 og að lokum kl. 17:37.

„Þetta eru ekki einangruð eða tilfallandi „frávik”. Þegar Hvalur hf. stundaði síðast hvalveiðar árið 2023 voru bátar félagsins ítrekað stöðvaðir vegna alvarlegra atvika þar sem skot geiguðu og hvalir háðu löng og kvalarfull dauðastríð. Það er því ljóst að um kerfisbundinn vanda er að ræða sem ekki hefur verið leystur,“ segir í yfirlýsingunni en samtökin Hvalavinir – vernd hafsins, Hard to …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
5
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár