Hoppukastalar og hátíðardagskrá um allt land á 17. júní

Hátíð­ar­dag­skrá er víða um land í dag, á þjóð­há­tíð­ar­degi Íslend­inga. Íbúar í mörgum sveit­ar­fé­lögum eru hvattir til að skilja bíl­ana eftir heima en götu­lok­anir verða í miðbæ Reykja­víkur.

Hoppukastalar og hátíðardagskrá um allt land á 17. júní
Stuð Sautj­ánda júní er fagnað víða með fánum, gas­blöðru, ýmsum sæt­indum og skrúð­göngum. Mynd: Golli

Fjöl­breytt dag­skrá verður í boði víða um land í dag, þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní. Sveit­ar­fé­lögin bjóða meðal ann­ars upp á skrúð­göngur, hátíð­ar­dag­skrár, tón­leika, barna­skemmt­anir, hoppukast­ala, and­lits­málun, kaffi­hlað­borð og ýmsa úti­við­burði.

Reykjavík

Í Reykja­vík hefst hátíð­ar­dag­ur­inn með hátíð­ar­at­höfn á Aust­ur­velli klukkan 11 þar sem for­seti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir, heldur ávarp.

Þjóð­há­tíð­ar­skrúð­ganga leggur af stað frá Hall­gríms­kirkju klukkan 13 og gengur niður Skóla­vörðu­stíg að Hljóm­skála­garði. Þar verða tón­leikar og fjöl­skyldu­dag­skrá frá klukkan 13.30 til 17. Í boði verða meðal ann­ars nátt­úru­þrauta­braut, leik­tæki, hoppukast­ali, sirku­slista­fólk, list­hópar, Götu­leik­húsið, Húlla­dúllan, Hring­leikur, tröll og mat­ar­vagnar.

Á Klambra­túni hefst dag­skrá klukkan 13. Þar verða leik­tæki, mat­ar­vagnar, plötu­snúðar og dans­at­riði, meðal ann­ars frá Dansi Brynju Péturs.

Götu­lok­anir verða í mið­borg­inni meðan hátíð­ar­höld standa yfir.

ÁvarpHalla Tóm­as­dóttir for­seti flytur ávarp á Aust­ur­velli klukkan 11. Skát­arnir standa heið­ursvörð með íslenska fán­ann á meðan.

Kópavogur

Í Kópavogi verður hátíð­ar­dag­skrá á tveimur stöðum, á Rútstúni og við Versali. Á báðum stöðum verða hátíð­ar­svæðin opnuð klukkan 12 með hoppuköstulum, leik­tækjum og and­lits­málun.

Skrúð­ganga hefst við Mennta­skól­ann í Kópavogi klukkan 13.30 og henni lýkur á Rútstúni. Þar verður hátíð­ar­dag­skrá frá klukkan 14 til 16. Eva Ruza og Hjálmar Örn kynna og fram koma meðal ann­ars fjall­kona Kópavogs, Leik­hóp­ur­inn Lotta, Úlfur Úlfur, Bríet, Latibær og VÆB.

Við Versali verður einnig dag­skrá frá klukkan 14 til 16. Þar koma fram Latibær, VÆB, Leik­hóp­ur­inn Lotta, Aron Can og Bríet. Saga og Snorri kynna.

Velti­bíll­inn verður við Sundlaug Kópavogs frá klukkan 12 til 16.

Hafnarfjörður

Í Hafn­ar­firði verður dag­skrá frá morgni til kvölds í mið­bænum og víðar. Dagurinn hefst klukkan 8 með fána­hyll­ingu á Hamrinum. Frá klukkan 10 verður meðal ann­ars boðið upp á sjó­sund og gufu við Lang­eyr­armalir og opið hús hjá Bretta­fé­lagi Hafn­ar­fjarðar.

Vík­inga­há­tíð verður á Víði­staða­túni frá klukkan 11 til 18 og skrúð­ganga leggur af stað frá Flens­borg­ar­skóla klukkan 13.

Þjóð­há­tíð­ar­sviðið við Ráð­hús­torg hefst klukkan 13.30. Þar koma meðal ann­ars fram Karla­kór­inn Þrestir, Fjall­konan, Prinsess­urnar þrjár, List­dans­skóli Hafn­ar­fjarðar, Ingó Töfra­maður, Ormstunga, Latibær, Skoppa og Skrítla og DJ BFK.

Fjöl­skyldu­dag­skrá verður einnig á Hörðu­völlum, í Hellis­gerði, í íþrótta­hús­inu við Strand­götu og víðar. Börn geta meðal ann­ars farið í leiksmiðju, fengið and­lits­málun og farið í hoppukast­ala.

Klukkan 17 verður brekku­söngur barn­anna í Hellis­gerði. Um kvöldið, frá klukkan 19, verður tón­list­ar­veisla við Ráð­hús­torg þar sem fram koma meðal ann­ars Lúðra­sveit verka­lýðs­ins, Elín Hall, Elvar, gugusar, Krist­mundur Axel og Jón Jónsson.

Miðbær Hafn­ar­fjarðar verður lok­aður fyrir bíla­um­ferð meðan á hátíð­ar­höldum stendur.

Garðabær

Í Garðabæ verður hátíð­ar­dag­skrá á Garða­torgi. Skrúð­ganga leggur af stað frá Hofs­staða­skóla klukkan 13. Blás­ara­sveit Tón­list­ar­skóla Garða­bæjar og Skáta­fé­lagið Vífill leiða göng­una að Garða­torgi.

Frá klukkan 13.30 til 15.45 verður hátíð­ar­dag­skrá þar sem blás­ara­sveit leikur, fjall­kona les ljóð og bæj­ar­stjóri og for­seti bæj­ar­stjórnar ávarpa gesti. Gunni og Felix kynna dag­skrá fyrir yngstu gest­ina. Fram koma meðal ann­ars Húbba Búbba, Skoppa og Skrítla, Sólon og Dimma dúskur, Leik­fé­lagið Fugla­bjarg og Sigga Ózk.

Frá klukkan 13.30 til 16 verða hoppukast­alar, kandífloss, fönd­ursmiðja, and­lits­málun og krakkak­ara­ókí. Kven­fé­lag Garða­bæjar verður með kaffi­hlað­borð í Sveina­tungu.

Á Álfta­nesi verður sund opið frá klukkan 10 til 14 og Hönn­un­ar­safn Íslands verður opið frá klukkan 12 til 17. Um kvöldið, klukkan 20, verða ókeypis tón­leikar salon­hljóm­sveit­ar­innar L’amour fou í Tón­list­ar­skóla Garða­bæjar.

Á tveimur stöðumDimma dúskur og Sólon verða bæði í Kópavogi og Mos­fellsbæ.

Mosfellsbær

Í Mos­fellsbæ hefst dag­ur­inn með hátíð­ar­guðs­þjón­ustu í Lága­fells­kirkju klukkan 11. Skrúð­ganga leggur af stað frá Mið­bæj­ar­torg­inu klukkan 13.30 og fer að Hlégarði.

Fjöl­skyldu­dag­skrá við Hlégarð hefst klukkan 14. Þar verða meðal ann­ars skóla­hljóm­sveit og Lúðra­sveit Mos­fells­bæjar, hátíð­ar­ræða bæj­ar­stjóra, ávarp fjall­konu, Vísinda Villi, Hver vill vera prinsessa?, Leik­fé­lag Mos­fells­sveitar með Kar­demommu­bæ­inn, Ávaxtakarfan, Leik­hóp­ur­inn Lotta og Sólon og Dimma dúskur.

Klukkan 16 verður afl­rauna­keppni á Hlé­garðs­túni þar sem keppt verður um tit­il­inn Sterkasti maður Íslands í flokki undir 90 kílóum.

Frá klukkan 14 til 16 verður kaffi­hlað­borð í Hlégarði. Einnig verða pylsu­sala, sölu­tjöld, and­lits­málun og hoppukast­alar.

Reykjanesbær

Í Reykja­nesbæ fer dag­skráin fram í skrúð­garð­inum í Keflavík og í ung­menna­garð­inum við 88-húsið.

Hátíð­ar­guðs­þjón­usta verður í Kefla­vík­ur­kirkju klukkan 12. Að henni lok­inni verður gengið með hátíð­ar­fán­ann í skrúð­garð­inn undir for­ystu skáta úr Heiða­búum og Lúðra­sveitar Tón­list­ar­skóla Reykja­nes­bæjar.

Í skrúð­garð­inum verður hefð­bundin hátíð­ar­dag­skrá með fána­hyll­ingu, þjóð­söng, setn­ing­ar­ræðu, ávarpi fjall­konu og ræðu dags­ins.

Að lok­inni hátíð­ar­dag­skrá tekur við skemmti­dag­skrá. Þar koma meðal ann­ars fram Ung­leik­húsið, Leik­fé­lag Kefla­víkur, Taekwondodeild Kefla­víkur, DansKompaní, Guðrún Árný, Sirkus Íslands og Guðjón Krist­jáns­son, sig­ur­veg­ari Söng­keppni fram­halds­skól­anna.

Í garð­inum verða leikja­stöðvar, hestar, and­lits­máln­ing, hoppukast­alar og þjóð­há­tíð­arnammi. Skemmti­dag­skráin er ókeypis.

Frá klukkan 18 til 20 verður dag­skrá fyrir ung­menni við 88-húsið, meðal ann­ars sápu­bolti, búbblu­bolti, vatns­bað og körfu­bolta­mót. DansKompaní og Ízleifur koma þar fram.

Frítt verður í inn­an­bæj­ar­strætó og Duus safna­hús verður með ókeypis aðgang í til­efni dags­ins.

Akureyri

Hátíð­ar­svæðiðHér má sjá kort af hátíð­ar­svæð­inu á Akureyri.

Á Akureyri leggur skrúð­ganga Skáta­fé­lags­ins Klakks og Lúðra­sveitar Akur­eyrar af stað frá gamla hús­mæðra­skól­anum við Þór­unn­ar­stræti klukkan 12.30 og fer í Lysti­garð­inn.

Blóma­bíll Akur­eyrar leggur af stað frá Nausta­skóla klukkan 11 og ekur um bæinn með 17. júní lög.

Hátíð­ar­dag­skrá í Lysti­garð­inum verður frá klukkan 13 til 13.45. Þar verður meðal ann­ars fána­hyll­ing, Lúðra­sveit Akur­eyrar, bæna­gjörð og blessun, Kór eldri borg­ara, fjall­konan og ávarp bæj­ar­stjóra.

Fjöl­skyldu­skemmtun verður í Lysti­garð­inum frá klukkan 13.45 til 16. Þar koma meðal ann­ars fram Vil­hjálmur B. Bragason, bæj­ar­lista­maður Akur­eyrar, Steps Dancecenter, Mahaut Matharel, Karólína Orra­dóttir, Jónsi og Erna Hrönn, DSA List­dans­skóli Akur­eyrar og Hvolpa­sveitin.

Á MA-túni og víðar verður afþrey­ing frá klukkan 13.30 til 17, meðal ann­ars hoppukast­alar, and­lits­máln­ing, fris­bígolf, götukörfu­bolti, poka­varp, skot­fimi með laserbyssum, skáta­tívolí og mat­ar­vagnar.

Sigling með Húna II verður klukkan 16.30 frá Fiski­höfn­inni.

Ísafjörður

Á Ísafirði hefst dag­ur­inn með tón­list­ar­messu í Ísa­fjarð­ar­kirkju klukkan 11. Klukkan 12 verður grímusmiðja Kómed­íu­leik­húss­ins í Edin­borg­ar­hús­inu.

Skrúð­ganga leggur af stað frá Silf­ur­torgi upp á Eyrartún klukkan 13.15. Þar verður hátíð­ar­dag­skrá frá klukkan 13.30 til 16 með lúðra­sveit, hátíð­ar­ræðu, hátíð­ar­kór, ávarpi fjall­konu, hoppuköstulum, and­lits­málun, kara­melluregni, hestum og sölu­tjöldum.

Sérstök hátíð verður í Safna­hús­inu á Ísafirði, sem fagnar 100 ára afmæli sínu. Opið hús verður frá klukkan 14.30 til 17, þar sem gestum verður boðið upp á afmælisköku og kaffi. Þar gefst einnig tæki­færi til að skoða húsið eftir end­ur­bætur, þar á meðal barna­deild bóka­safns­ins sem opnar þennan dag.

Einnig verður köku­hlað­borð á Logni, sýn­ing­ar­opnun í Gallerí Úthverfu, pikknikk-tón­leikar í Blóma­garð­inum og opn­un­ar­há­tíð tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Við Djúpið um kvöldið.

FlaggaðBúast má við því að sjá íslenska fána dregna að húni um allt land í dag.

Múlaþing

Í Múla­þingi verður dag­skrá á Egils­stöðum, Seyð­is­firði, Djúpa­vogi og Borg­ar­firði.

Á Egils­stöðum hefst dag­ur­inn með blöðru­sölu við Vil­hjálms­völl klukkan 10 og fjöl­skyldu­stund í Egils­staða­kirkju klukkan 10.30. Skrúð­ganga fer frá kirkj­unni klukkan 11 og henni lýkur við fim­leika­húsið með tón­list­ar­at­riði og fim­leika­sýn­ingu.

Í Tjarn­ar­garð­inum verður afþrey­ing fyrir börn frá klukkan 11.30, meðal ann­ars hoppukast­alar, and­lits­málun, krakkazumba og sjoppa. Hátíð­ar­dag­skrá hefst klukkan 14 með hátíð­ar­ræðu, tón­list, fjall­konu, við­ur­kenn­ingu Rótarý, atriði úr Minn­inga­leik­hús­inu og verð­launa­af­hend­ingu í skúlp­t­úrasam­keppni barna.

Á Seyð­is­firði verður blóm­sveigur lagður að leiði Björns í Firði klukkan 11. Hátíð­ar­dag­skrá verður við Seyð­is­fjarð­ar­kirkju klukkan 13 með hátíð­ar­messu, ávarpi fjall­konu, tón­list­ar­at­riði, hátíð­ar­á­varpi og hvatn­ing­ar­verð­launum Hugins. Þá verður 17. júní hlaup Hugins fyrir börn 12 ára og yngri klukkan 12.

Á Djúpa­vogi verður and­lits­málun í Gömlu kirkj­unni klukkan 13, skrúð­ganga klukkan 14 og hátíð­ar­dag­skrá í Blá klukkan 14.30. Þar verða fána­hyll­ing, fjall­kona, skemmti­at­riði, kaffi, grill­veisla, hoppukast­alar og fjör. Vatns­renni­braut verður í Neista­brekkunni klukkan 15.30 ef veður leyfir.

Á Borg­ar­firði verður and­lits­málun á Heiðinni klukkan 12, skrúð­ganga klukkan 13, leikir og sprell á fót­bolta­vell­inum klukkan 14 og pylsu- og vöfflupartí við Fjarð­ar­borg klukkan 15.30.

Selfoss

Á Selfossi hefst dag­ur­inn með morg­unjóga í Kappahl-höll­inni klukkan 9. Fánar verða dregnir að húni við Ráðhús Árborgar klukkan 10 og á sama tíma býður Hesta­manna­fé­lagið Sleipnir íbúum á hest­bak í Sleipn­is­höll­inni.

Sel­foss­rútan verður í áætl­un­ar­akstri frá klukkan 10 til 16. Við Björg­un­ar­mið­stöð­ina verður tækja­sýn­ing frá klukkan 10.30 til 12 og Bjössi bruna­bangsi verður á staðnum.

Skrúð­ganga leggur af stað frá Sel­foss­kirkju klukkan 13.15 og fer í Sigtúns­garð. Þar verða hoppukast­alar og loft­boltar opnir klukkan 13.30. And­lits­málun, 17. júní sjoppa og kaffi­sala verða frá klukkan 13.30 til 16.

Hátíð­ar­dag­skrá hefst í Sigtúns­garði klukkan 13.45 með ávarpi fjall­konu og hátíð­ar­ræðu. Fjöl­skyldu­há­tíð hefst klukkan 14. Þar koma meðal ann­ars fram Jón Jónsson, Klara Einars, Karíus og Baktus, Eyrnaslapi og Gríslingur og ungt tón­list­ar­fólk úr Árborg.

Um kvöldið verður boðið upp á sigl­ingu á Ölfusá frá klukkan 19.30 til 21.30. Kvöld­vaka eldri borg­ara verður í Mörkinni frá klukkan 20 til 21.30, með tón­list, gam­an­málum, fjall­konu og fjölda­söng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár