Telja mikilvægt að plastbarkamálið fái umfjöllun á æðra dómstigi

Ríkið hefur ákveðið að áfrýja úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem dæmdi ríkið skaða­bóta­skylt vegna plast­barka­máls­ins.

Telja mikilvægt að plastbarkamálið fái umfjöllun á æðra dómstigi
Andemariam og Tómas Andemariam var skjól­stæð­ingur Tómasar Guð­bjarts­sonar skurð­læknis. Sjálfur hefur Tómas sagt að hann hafi sjálfur verið blekktur af ítalska skurð­lækn­inum sem afplánar nú fang­els­is­dóm vegna máls­ins.

Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómi hér­aðs­dóms í svoköll­uðu plast­barka­máli til Lands­réttar. Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands.

Þar segir að með dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur frá 21. maí síð­ast­liðnum hafi íslenska ríkið verið dæmt skaða­bóta­skylt vegna plast­barka­að­gerðar sem fram­kvæmd var á Andemariam Tekles­en­bet Beyene á Karol­inska háskóla­sjúkra­hús­inu árið 2011. Háttsemi læknis Land­spít­ala, sem kom að með­ferð­inni og vís­aði sjúk­lingnum í hana, var í dómnum talin ein af orsökum tjóns­ins og á henni bæri íslenska ríkið vinnu­veit­enda­á­byrgð.

Lækn­ir­inn umræddi er Tómas Guð­bjarts­son, en hann hefur gagn­rýnt úrskurð­inn í yfir­lýs­ingu og sagt hann í engu sam­ræmi við það sem raun­veru­lega gerð­ist. Þá hefur hann einnig gagn­rýnt að hann hafi ekki verið kall­aður til vitnis í skaða­bóta­máli ekkju Andemari­ams.

Lækn­ir­inn, Paolo Macchiarini, sem fram­kvæmdi aðgerð­ina á Andemariam í Svíþjóð, var árið 2023 sak­felldur fyrir að hafa valdið honum og tveimur öðrum ein­stak­lingum sem und­ir­geng­ust sam­bæri­lega aðgerð stór­kost­legu lík­ams­tjóni af ásetn­ingi.

Málið vakti á sínum tíma heims­at­hygli og hefur verið mikið rann­sakað, bæði hér á landi og í Svíþjóð.

Svo segir í yfir­lýs­ingu rík­is­ins að „mik­il­vægt [sé] að mati ráðu­neyt­is­ins að svo sér­stakt og alvar­legt mál fái umfjöllun á æðra dóm­stigi og að nið­ur­staða þess og rök­semdir telj­ist eins óum­deildar og unnt er, ekki ein­ungis fyrir þetta mál heldur sem leið­ar­ljós fyrir íslenskt heil­brigð­is­kerfi og heil­brigð­is­starfs­menn til fram­tíðar.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár