Yfirlögreglumaður handtekinn fyrir hrottalegt morð

Stríð­ið gegn fíkni­efn­um sem háð var í valda­tíð Rodrigo Duterte átti sér skelfi­leg­ar birt­ing­ar­mynd­ir. Nú í morg­un var fyrr­ver­andi yf­ir­mað­ur í lög­regl­unni hand­tek­inn, en hann hafði ver­ið á flótta und­an rétt­vís­inni frá því að dóm­ur féll í fyrra.

Yfirlögreglumaður handtekinn fyrir hrottalegt morð

Suður-kóreskur kaupsýslumaður var kyrktur í höfuðstöðvum filippseysku lögreglunnar í Manila. Nú í morgun var fyrrverandi yfirmaður í fíkniefnalögreglunni handtekinn vegna dóms sem hann hlaut fyrir mannrán og morð á manninum árið 2016. Lögreglumaðurinn hafði verið á flótta undan réttvísinni.

Mál suðurkóreska kaupsýslumannsins Jee Ick-joo, sem var rænt af fíkniefnalögreglumönnum undir yfirskini fíkniefnaleitar, var eitt umdeildasta málið tengt hinu mannskæða stríði fyrrverandi forsetans Rodrigo Duterte gegn fíkniefnum.

Þúsundir morða

Saksóknari hjá Alþjóðadómstólnum í Haag, sem sækir Duerte til saka fyrir glæpi gegn mannkyninu, segir hann hafa drepið þúsundir manna í herferð sinni gegn fíkniefnum.

„Í áratugi hefur hann myrt eigið fólk, myrt börn Filippseyja, og hann heldur því fram að hann hafi gert þetta allt fyrir land sitt,“ sagði saksóknari í febrúar, þegar verið var að meta hvort staðfesta ætti ákærurnar og fara með málið fyrir dóm. „Hann stjórnaði dauðasveit í Davao-borg sem hann sjálfur stofnaði. Hann stjórnaði henni í meira …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár