Brim kaupir eigin bréf fyrir rúma sex milljarða

Út­gerð­ar­fé­lag­ið Brim á nú nóg af eig­in hluta­bréf­um til að geta greitt eig­end­um Lýs­is sem nem­ur 10 af 20 millj­örð­um af kaup­verði fyr­ir­tæk­is­ins. Nú­ver­andi eig­end­ur Lýs­is verða fjórðu stærstu hlut­haf­ar út­gerð­ar­inn­ar.

Brim kaupir eigin bréf fyrir rúma sex milljarða

Útgerðarfélagið Brim hefur samþykkt tilboð frá hluthöfum um sölu á samtals 69 milljónum hluta í félaginu. Kaupverðið er 88 krónur á hlut og nemur heildarverðmæti endurkaupanna rúmum 6,1 milljarði króna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en stjórn félagsins hafði boðist til að kaupa bréf fyrir allt að 70 milljónir króna að nafnvirði. Uppgjörsdagur viðskiptanna er á morgun.

Endurkaupin koma í kjölfar þess að Brim hefur tilkynnt um stór viðskipti þar sem hlutabréf í félaginu eru hluti af greiðslu. Annars vegar hefur félagið samþykkt kaup á Lýsi hf. fyrir 20 milljarða króna, þar sem helmingur kaupverðsins verður greiddur með hlutabréfum í Brimi. Hins vegar hefur Brim selt 43 prósenta hlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi til KG Fiskverkunar fyrir 1,8 milljarða króna, en greiðslan fyrir þann hlut verður einnig innt af hendi með hlutabréfum í Brimi.

Brim átti …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár