„Finnska kraftaverkið“ var titill greinar The Guardian frá 2024 um árangur Finna af sjálfsvígsforvörnum. Finnland er í dag þekkt sem ein hamingjusamasta þjóð heimsins en það er ekki svo langt síðan sjálfsvígstíðnin var ein sú hæsta í heimi. Aldrei hafa fleiri látist í sjálfsvígum þar í landi en árið 1990, þegar 1.512 féllu fyrir eigin hendi. Á þeim tíma taldi þjóðin tæpar fimm milljónir. Árið 2022 var fjöldi sjálfsvíga kominn niður í 740, en landsmenn voru þá orðnir 5,6 milljónir. Á þremur áratugum hafði tekist að helminga sjálfsvígstíðnina.
Sérfræðingur í sjálfsvígsforvörnum í Finnlandi, Solie Ridanpää, svaraði fyrirspurn sem send var fyrir hönd Heimildarinnar. Ekkert eitt skýrir árangurinn benti hún á, heldur náðist þessi árangur með margþættum, langtíma og gagnadrifnum aðgerðum í geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlun gegn sjálfsvígum. „Langtímastefna í geðheilbrigðismálum, þar á meðal aðgerðaáætlun til að koma í veg fyrir sjálfsvíg er mjög mikilvæg. Fjárveiting sem fylgir stefnu stjórnvalda er einnig …

























































Athugasemdir