Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum

Hvert sjálfs­víg kostar sam­fé­lagið um 500 millj­ónir, en lítið hefur verið lagt í for­varnir. Fyrstu aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum var stungið ofan í skúffu. Næstu áætlun fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unnið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­innar. Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir heldur utan um verk­efnið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þegar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi viljað fara frá mér. En ég get vel skilið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“

Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum

Aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum var sett fram hér á landi árið 2018. Þegar hún féll úr gildi árið 2025 höfðu aðeins 15 aðgerðir af 54 kom­ist til fram­kvæmda. Ein meg­in­skýr­ingin var sú að aðgerð­unum fylgdi ekki fjár­magn, segir Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir. Ótrúlegt en satt þá var það þó fram­för frá því sem áður var. „Fyrsta sjálfs­vígsá­ætl­unin var gerð árið 1996 og henni var stungið ofan í skúffu. Ákvörðun var tekin um að gera ekk­ert, því það kost­aði of mikið. Þannig að það var skref í rétta átt þegar áætl­unin var birt árið 2018 og ákveðið að setja pen­inga í starfs­mann í heilt ár.“

Betur hefur gengið að fylgja eftir aðgerða­á­ætlun stjórn­valda 2025–2030, sem er mun ein­fald­ari í smíðum en sú fyrri. Af 26 aðgerðum er vinna hafin við 15 þeirra. Guðrún Jóna stýrir þeirri vinnu sem verk­efna­stjóri sjálfs­vígs­for­varna hjá Lífsbrú – mið­stöð sjálfs­vígs­for­varna hjá Embætti land­læknis.

„Aðgerða­á­ætl­unin 2018 var …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elsku Embla

Sáu sárin sem hún faldi
ViðtalElsku Embla

Sáu sárin sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár liðin frá frá­falli Emblu Arnars Katrín­ar­dóttur. Andlát hennar var harma­fregn fyrir sam­fé­lagið, en fjöl­skyldan sat eftir með sorg­ina. Löngu áður en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orðið ljóst að hún væri orðin alvar­lega veik, en vegna þess hve þögul veik­indin voru tók tíma að fá áheyrn. Jafnvel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörðuð á fimmtán ára afmæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár