Heimurinn hrundi

Helena Huld Haf­steins­dóttir hún missti vin­konu sína þegar hún var fjórtán ára. Henni fannst sem ver­öldin hefði stöðvast og átti erfitt með að sjá aðra halda lífi sínu áfram. Það tók hana langan tíma að vinna úr sorg­inni en fimm árum síðar er hún farin að horfa björtum augum til fram­tíðar.

Heimurinn hrundi

For­eldrar Helenu Huldar Haf­steins­dóttur og Emblu Arnars Katrín­ar­dóttur til­heyrðu sama vina­hópi, sem hélt þétt saman. Stelp­urnar voru jafn­gamlar og höfðu þekkst frá fæð­ingu. Þær höfðu ferð­ast saman til útlanda, varið hátíð­ar­stundum saman og voru báðar í sama tón­list­ar­skól­anum, þó að Helena væri í Vest­ur­bæj­ar­skóla og Embla í Mela­skóla. Í 8. bekk sam­ein­uð­ust þær síðan í Haga­skóla, þar sem þær lentu saman í bekk og urðu jafn­vel enn nán­ari en áður. „Við vorum alltaf eitt­hvað að spjalla í tímum. Kenn­ar­arnir voru ekk­ert alltaf ánægðir með okkur,“ rifjar Helena upp. Þess utan voru þær saman í vina­hóp og vörðu nán­ast öllum stundum saman. „Embla var fyndn­asta mann­eskja sem ég hef hitt. Hún var nei­kvæð á hátt sem kom öllum öðrum í gott skap, sem er hæfi­leiki sem þú finnur ekki oft. Fyrir utan geggj­aðan húmor hafði hún marga góða eig­in­leika. Hún var alltaf til staðar.“

Helena var félags­lynd og vina­hóp­ur­inn var stór. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elsku Embla

Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörðun að fækka sjálfs­vígum

Hvert sjálfs­víg kostar sam­fé­lagið um 500 millj­ónir, en lítið hefur verið lagt í for­varnir. Fyrstu aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum var stungið ofan í skúffu. Næstu áætlun fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unnið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­innar. Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir heldur utan um verk­efnið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þegar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi viljað fara frá mér. En ég get vel skilið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“
Sáu sárin sem hún faldi
ViðtalElsku Embla

Sáu sárin sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár liðin frá frá­falli Emblu Arnars Katrín­ar­dóttur. Andlát hennar var harma­fregn fyrir sam­fé­lagið, en fjöl­skyldan sat eftir með sorg­ina. Löngu áður en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orðið ljóst að hún væri orðin alvar­lega veik, en vegna þess hve þögul veik­indin voru tók tíma að fá áheyrn. Jafnvel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörðuð á fimmtán ára afmæl­is­dag­inn sinn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár