Finnska kraftaverkið í sjálfsvígsforvörnum

Lang­tíma­stefna í geð­heil­brigð­is­málum, aðgerða­á­ætlun og fjár­veit­ingar eru lyk­il­at­riði, segir Solie Ridanpää, finnskur sér­fræð­ingur í sjálfs­vígs­for­vörnum.

Finnska kraftaverkið í sjálfsvígsforvörnum

„Finnska krafta­verkið“ var tit­ill greinar The Guardian frá 2024 um árangur Finna af sjálfs­vígs­for­vörnum. Finnland er í dag þekkt sem ein ham­ingju­samasta þjóð heims­ins en það er ekki svo langt síðan sjálfs­vígs­tíðnin var ein sú hæsta í heimi. Aldrei hafa fleiri lát­ist í sjálfs­vígum þar í landi en árið 1990, þegar 1.512 féllu fyrir eigin hendi. Á þeim tíma taldi þjóðin tæpar fimm millj­ónir. Árið 2022 var fjöldi sjálfs­víga kom­inn niður í 740, en lands­menn voru þá orðnir 5,6 millj­ónir. Á þremur ára­tugum hafði tek­ist að helm­inga sjálfs­vígs­tíðn­ina.

Sér­fræð­ingur í sjálfs­vígs­for­vörnum í Finn­landi, Solie Ridanpää, svar­aði fyr­ir­spurn sem send var fyrir hönd Heim­ild­ar­innar. Ekkert eitt skýrir árang­ur­inn benti hún á, heldur náð­ist þessi árangur með marg­þættum, lang­tíma og gagna­drifnum aðgerðum í geð­heil­brigð­is­stefnu og aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum. „Lang­tíma­stefna í geð­heil­brigð­is­málum, þar á meðal aðgerða­á­ætlun til að koma í veg fyrir sjálfs­víg er mjög mik­il­væg. Fjár­veit­ing sem fylgir stefnu stjórn­valda er …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elsku Embla

Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörðun að fækka sjálfs­vígum

Hvert sjálfs­víg kostar sam­fé­lagið um 500 millj­ónir, en lítið hefur verið lagt í for­varnir. Fyrstu aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum var stungið ofan í skúffu. Næstu áætlun fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unnið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­innar. Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir heldur utan um verk­efnið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þegar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi viljað fara frá mér. En ég get vel skilið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“
Sáu sárin sem hún faldi
ViðtalElsku Embla

Sáu sárin sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár liðin frá frá­falli Emblu Arnars Katrín­ar­dóttur. Andlát hennar var harma­fregn fyrir sam­fé­lagið, en fjöl­skyldan sat eftir með sorg­ina. Löngu áður en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orðið ljóst að hún væri orðin alvar­lega veik, en vegna þess hve þögul veik­indin voru tók tíma að fá áheyrn. Jafnvel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörðuð á fimmtán ára afmæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár