Kvarta til Persónuverndar vegna gjalds fyrir eigið lánshæfismat

Hags­muna­sam­tök heim­il­anna kvarta und­an nýrri gjald­töku Cred­it­in­fo fyr­ir eig­ið láns­hæf­is­mat fólks.

Kvarta til Persónuverndar vegna gjalds fyrir eigið lánshæfismat
Frá þjóðhátíðardeginum Íslendingar treysta á lánshæfismat Creditinfo Lánstrausts til þess að fá húsnæðislán og fleira. Creditinfo fær starfsleyfi frá Persónuvernd með skilyrðum. Mynd: Getty images

Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent Persónuvernd kvörtun vegna nýrrar gjaldtöku Creditinfo Lánstrausts fyrir aðgang einstaklinga að eigin lánshæfismati. Samtökin telja gjaldtökuna ólögmæta og segja hana torvelda fólki að nýta lögbundinn rétt sinn til upplýsinga um eigin persónuupplýsingar.

Creditinfo tekur nú 2.900 krónur í gjald fyrir aðgang einstaklinga að eigin lánshæfismati. Gjaldið er 1.990 krónur ef viðkomandi samþykkir að deila svokölluðum viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu. Áður gátu einstaklingar framkallað eigið lánshæfismat gjaldfrjálst gegn því að veita aðgang að viðbótarupplýsingum.

Sömuleiðis getur fólk séð lánshæfiseinkunnina eina og sér á yfirliti á innskráningarsíðu Creditinfo og séð þar almennt hvaða áhrifaþættir koma til matsins ef lánshæfismat hefur verið pantað af þriðja aðila. Samkvæmt upplýsingum Creditinfo virðist vera hægt að biðja um afrit. Lánshæfismatið er notað af fjölmörgum fyrirtækjum og fjármálastofnunum við mat á viðskiptavinum og getur meðal annars haft bein áhrif á getu fólks til að fá húsnæðislán.

Hagsmunasamtök heimilanna segja að með þessu sé fólki í reynd ýtt í átt að því að samþykkja aukna vinnslu persónuupplýsinga sinna gegn lægra verði. Þau telja að slíkt grafi undan persónuvernd og rétti einstaklinga til aðgangs, andmæla, leiðréttingar, takmörkunar vinnslu og endurskoðunar á niðurstöðum lánshæfismats.

„Lögbundin réttindi neytenda til aðgangs að þeirra eigin upplýsingum má aldrei gera að féþúfu,“ segir í tilkynningu samtakanna.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
5
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár