Innherjaleki borgarráðs á borð Fjármálaeftirlitsins

Rannsókn á leka á inn­herj­a­upp­lýs­ingum úr borg­ar­ráði er komin til fjár­mála­eft­ir­lits­ins.„Það er mjög íþyngj­andi ef það er farið almennt í tölvur kjör­inna full­trúa, en þetta mál þarf að hafa sinn gang,“ segir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Innherjaleki borgarráðs á borð Fjármálaeftirlitsins
Ráðhús Reykja­víkur Borg­ar­fulll­trúar liggja undir grun um að leka upp­lýs­ingum. Mynd: Golli

„Við lítum málið alvar­legum augum, enda er það farið til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins,“ segir Alex­andra Briem, odd­viti Pírata og for­maður borg­ar­ráðs, um rann­sókn í tengslum við leka á inn­herj­a­upp­lýs­ingum úr borg­ar­ráði.

Borg­ar­full­trúar meiri­hluta Reykja­vík­ur­borgar hafa heim­ilað reglu­verði Reykja­vík­ur­borgar að fá fullan aðgang að tölvu­sam­skiptum sínum í tengslum við leka á árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar. Lekinn átti sér stað í lok apríl þegar mbl.is birti frétt upp úr árs­reikn­ingnum á sömu mín­útu og upp­lýs­ing­arnar birt­ust á vef Kaup­hall­ar­innar.

Fangelsisrefsing möguleg

Á fundi borg­ar­ráðs fyrir helgi kom fram að árs­reikn­ingur Reykja­vík­ur­borgar er bund­inn lög­mæltri trún­aðar- og þagn­ar­skyldu og telj­ast upp­lýs­ing­arnar jafn­framt til inn­herj­a­upp­lýs­inga þar sem borgin er útgef­andi skulda­bréfa á skipu­lögðum mark­aði. Óheimil miðlun slíkra upp­lýs­inga getur varðað refs­ingu sam­kvæmt lögum um inn­herj­a­upp­lýs­ingar og mark­aðs­svik. Brotið varðar við hegn­ing­ar­lög og liggur fang­els­is­refs­ing við brot­inu.

…
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár