Borgarfulltrúar rannsakaðir vegna leka á innherjaupplýsingum

Borg­ar­full­trúar hafa gefið reglu­verði og rann­sak­endum vil­yrði um aðgang að tölvum sínum vegna rann­sóknar á leka á inn­herj­a­upp­lýs­ingum.

Borgarfulltrúar rannsakaðir vegna leka á innherjaupplýsingum
Borg­ar­stjórn­ar­fundur Aðalmenn í borg­ar­ráði höfðu aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum sem reglu­vörður telur að hafi lekið til Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Borg­ar­full­trúar Reykja­vík­ur­borgar hafa heim­ilað reglu­verði Reykja­vík­ur­borgar að fá fullan aðgang að tölvu­sam­skiptum sínum í tengslum við leka á árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar í lok apríl í tengslum við rann­sókn á mögu­legum mark­aðs­svikum með leka á inn­herj­a­upp­lýs­ingum.

Á fundi borg­ar­ráðs fyrir helgi kom fram að árs­reikn­ingur Reykja­vík­ur­borgar er bund­inn lög­mæltri trún­aðar- og þagn­ar­skyldu og telj­ast upp­lýs­ing­arnar jafn­framt til inn­herj­a­upp­lýs­inga þar sem borgin er útgef­andi skulda­bréfa á skipu­lögðum mark­aði. Óheimil miðlun slíkra upp­lýs­inga getur varðað refs­ingu sam­kvæmt lögum um inn­herj­a­upp­lýs­ingar og mark­aðs­svik.

Þá segir í bókun meiri­hlut­ans að leki af þessu tagi grafi undan trú­verð­ug­leika Reykja­vík­ur­borgar gagn­vart fjár­festum, eft­ir­lits­að­ilum og almenn­ingi og brjóti gegn grund­vall­ar­sjón­ar­miðum um jafn­ræði mark­aðs­að­ila og ábyrga upp­lýs­inga­gjöf.

Í bréfi reglu­varðar sem er með­fylgj­andi mál­inu í borg­ar­ráði kemur fram að málið megi rekja til birt­ingar mbl.is þann 27. apríl síð­ast­lið­inn þar sem mátti finna allar helstu upp­lýs­ingar og lyk­il­tölur árs­reikn­ings­ins.

Svo segir í útskýr­ingum reglu­varðar. „Atvik …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Mikiðergegheppinaðhafafæðstátuttugustuöldinnienekkiáþeirrinitjánduaðhugsaserláníóláni
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu