„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“

Eftir útskrift úr háskóla sótti Logn um rúm­lega hund­rað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síðar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Íslandi. „Sam­staðan sem kann að eiga sér stað meðal kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mætasta sem ég hef upp­lifað í mínu lífi.“

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“

Logn, kynsegin femínisti og lista­maður, er stofn­andi Rauðu regn­hlíf­ar­innar sem eru sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Íslandi. Hán ólst að mestu leyti upp á Englandi en flutti aftur heim til Íslands árið 2016. Logn vann við kyn­lífs­vinnu á Englandi og segir að hjá Rauðu regn­hlíf­inni sé unnið út frá skaða­minnk­andi hug­mynda­fræði. Hán segir að lögin eigi að geta náð yfir raun­veru­legar aðstæður kyn­lífs­verka­fólks, þolenda vændis, þolenda mansals og kyn­ferð­is­of­beldis.

Logn fædd­ist í Reykja­vík og ólst upp fyrstu árin í Fella­hverfi í Breið­holti. Hán gekk í Waldorfsskólann í Lækj­ar­botnum í um eitt og hálft ár en árið 1999, þegar hán var sjö ára, flutti fjöl­skyldan – for­eldr­arnir, Logn og eldri systir – til Englands þar sem báðir for­eldrar stund­uðu háskóla­nám. „Mér lík­aði mjög vel við Waldorfsskólann og ég sé þegar ég lít til baka að ég hef alltaf lað­ast að óhefð­bundnum upp­lif­unum, fólki og aðstæðum.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Góð grein...sem varpar upp fleiri spurningar en hún svarar. T.d. : hvað er skilgreiningin á kynlífsvinnu...í greininni er hugtakið kynlífsverkafólk notað samhlíða eða andspænis hugtakinu polendur vændis.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár