Viðurkennir að það hafi verið mistök að fara ekki í Silfrið

Oddviti Flokks fólks­ins segir að það hafi verið mis­tök eftir á að hyggja að þiggja ekki boð í Silfrið á sínum tíma. Það hafi þó verið góðar og gildar ástæður fyrir því.

Guðmundur Ingi Þóroddsson
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son Oddviti Flokks fólks­ins segir að það hafi lík­lega verið mis­tök að fara ekki í Silfrið. Mynd: Golli

„Ég er odd­viti flokks­ins og geri það sem ég vil,“ svar­aði Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, nýr odd­viti Flokks fólks­ins, en í Odd­vita­sam­tali Heim­ild­ar­innar var ákvörðun upp­lýs­inga­full­trúa flokks­ins, Heimis Más Helga­sonar, rædd, þar sem flokk­ur­inn hafn­aði því að mæta í Silfur Egils að ræða nýtt fram­boð. Ákvörð­unin vakti athygli þar sem svo virt­ist sem upp­lýs­inga­full­trú­inn hefði tekið þá ákvörðun, og odd­vit­inn ekki vitað um hana fyrr en hún var til­kynnt í þætt­inum. Guð­mundur Ingi segir þetta raunar mis­skiln­ing.

„Ég var full­með­vit­aður um þetta. Þetta var sam­eig­in­leg ákvörðun sem var tekin á þeim tíma­punkti,“ sagði Guð­mundur Ingi en kosn­inga­stjórn ákvað það saman að svona skyldu þeir gera þetta. 

Spurður hvað kom þá á óvart eins og kom fram í fyrstu fréttum, svar­aði Guð­mundur Ingi: „Það sem kom mér á óvart var að frétta­þul­ur­inn sagði að ég hefði hafnað því. Ég var ekki í sam­skiptum við hann, það var það sem kom …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár