„Miklar líkur“ á að gos geti komið upp undir Bláa lóninu

Nýtt hættu­mat Veð­ur­stof­unnar setur Bláa lónið á hættu­svæði til langs tíma, en þar er þó full starf­semi.

„Miklar líkur“ á að gos geti komið upp undir Bláa lóninu

Einn fræg­asti staður Íslands, Bláa lónið, liggur undir svæði sem nýtt hættu­mat Veð­ur­stofu Íslands skil­greinir með „miklar líkur“ á gos­upp­tökum.

Skammt austur af lón­inu er síðan svæði þar sem telj­ast vera „mjög miklar“ líkur á gos­upp­tökum, enda hefur gosið níu sinnum á því svæði frá nóv­em­ber 2023. 

Kviku­magn undir Svarts­engi hefur aldrei verið meira frá upp­hafi eld­gosa­hrin­unnar á Sund­hnúka­gíga­röð­inni, skammt austan Bláa lóns­ins. „Kviku­hlaup og eld­gos á Sund­hnúks­gíga­röð­inni [eru] áfram lík­leg­asta sviðs­myndin,“ segir í gild­andi hættu­mati Veð­ur­stofu Íslands frá 31. mars.

Í og við Bláa lónið eru rekin tvö hótel og bað­staður. The Retreat Hotel er marg­verð­launað 60 her­bergja hótel við Bláa Lónið umkringt einka­lóni. Á Silica hót­eli eru síðan 35 her­bergi og einka­lón fyrir hót­el­gesti. Hótelið er í 10 mín­úta göngu­fjar­lægð frá Bláa Lóninu. 

Í síð­asta gosi á svæð­inu, þann 16. júlí í fyrra, þurftu 200 manns að yfir­gefa hót­elin, en þar sem gosið hófst um mið­nætti var ekki almenn opnun í Bláa lón­inu sjálfu.

Gos nálægt Bláa lón­inu„Mjög miklar líkur“ telj­ast á gos­upp­tökum skammt austur af Bláa lón­inu, allt suður að fjall­inu Þorbirni ofan Grinda­víkur.

Full starf­semi hefur verið í Bláa lón­inu þrátt fyrir að eld­gos hafi orðið austan við lónið og hraun flætt að því síð­ustu tvö og hálft ár og þótt lík­legt sé talið að eld­gos sé í nánd á Sund­hnúka­gíga­röð­inni skammt frá, en það byggir á því að sprungu­röðin liggur um þremur til fimm kíló­metrum austar en Bláa lónið í stefn­una suð­vestur-norð­austur.

Um 350 bíla­stæði við Bláa lónið lentu undir hraun­flæði 2024, en varn­ar­garður verndar bygg­ingar og lónið sjálft. Kæmi til gos­upp­taka við lónið eða í því er hins vegar ljóst að varn­ar­garðar myndu ekki tryggja aðstæður og lík­legra að spreng­ingar yrðu með við­komu hrauns við vatn.

Þrátt fyrir að hættu­mat Veð­ur­stof­unnar geri ráð fyrir mik­illi hættu á eld­gosi til langs tíma á svæði Bláa lóns­ins, er núgild­andi hættu­stig á Bláa lón­inu sjálfu annað en í næsta nágrenni við það, eða „lítil“.

Lón skil­greint utan hættuBláa lónið er und­an­skilið frá hættu­svæði sam­kvæmt mati Veð­ur­stofu Íslands.

Við­vör­un­ar­stig eld­fjalla á Sund­hnúka­gíga­röð­inni stendur núna í 2, sem merkir „tölu­vert aukna virkni“, en fari það í 3 er „eld­gos í gangi eða yfir­vof­andi“. Fyr­ir­vari fyrir eld­gos á svæð­inu hafa verið frá um hálf­tíma upp í 90 mín­útur.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldsumbrot á Reykjanesskaga

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár