Segir Landskjörstjórn fara langt út fyrir umboð sitt

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og liðs­mað­ur Við­reisn­ar, Þor­steinn Páls­son seg­ir um­sögn lands­kjör­stjórn­ar fara svo langt út fyr­ir um­boð sitt að hún sé mark­laus. Eft­ir standi spurn­ing­in hvort henni sé stætt á að sitja áfram.

Segir Landskjörstjórn fara langt út fyrir umboð sitt
Þorsteinn Pálsson Segir landskjörstjórn hafa farið langt út fyrir sitt umboð og fyrir vikið sé mat þeirra marklaust.

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og liðsmaður Viðreisnar, telur að Landskjörstjórn hafi farið svo langt út fyrir umboð sitt þegar kom að umsögn hennar um spurningu til aðildarviðræðna við ESB, að hún sé með öllu marklaus. Þetta kemur fram í pistli hans á Eyjunni. Í mati Landskjörstjórnar var því haldið fram að spurning um að kjósa með áframhaldandi viðræðum við ESB fæli í sér umdeildar forsendur og séu því í eðli sínu leiðandi.

Byggir það mat á deilu um það hvort bréf þáverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, þar sem hann sagðist hafa slitið viðræðum við ESB, hefði haft lagalegt gildi.

Ráðherra getur ekki einn afturkallað ákvörðun alþingis

Raunar er Þorsteinn afgerandi í greiningu sinni á því bréfi og bendir á að einstaka ráðherrar geti ekki einir snúið ákvörðun Alþingis, hvort sem það er að afturkalla hana eða ógilda, enda samþykktar af meirihluta á Alþingi. Við það má bæta að þingsályktunartillögur hafa verið lagðar fram síðan þá, þar sem lagt er til að aðildarviðræðum verði formlega slitið, en engin þeirra hefur verið samþykkt.

Þá bætir Þorsteinn við: „Aðalatriðið er þó hitt að ríkisstjórn hefur fulla stjórnskipulega heimild til að sækja um aðild eða halda áfram aðildarviðræðum án ályktunar Alþingis. Og hún getur spurt þjóðina um aðra hvora leiðina en ekki báðar í einu. Landskjörstjórn á eðli máls samkvæmt að búa yfir þessari lagaþekkingu.

Þegar Ísland ákvað að hefja viðræður við Evrópusambandið um aðild að innri markaði þess var það til að mynda gert án þingsályktunar.“

Gáleysi eða viljaverk?

Þorsteinn segir einu gilda hvort mat Landskjörstjórnar sé sett fram af gáleysi eða sem viljaverk, annaðhvort verði nefndin að segja af sér hafi þetta verið gáleysi, eða sé svo vanhæf að það sé Alþingis að meta alvarleika brotsins. Sjálfur segist Þorsteinn hlutlaus gagnvart þeirri spurningu.

„Augljóst er að Landskjörstjórn hefur farið svo langt út fyrir umboð sitt að umsögnin er með öllu marklaus. Gildir þá einu hvort um er að ræða ásetning eða gáleysi,“ skrifar Þorsteinn og bætir við: „Við mat á stöðu Landskjörstjórnar getur ásetningur eða gáleysi aftur á móti skipt máli.

Ef um ásetning er að ræða virðist óhjákvæmilegt að líta svo á að landskjörstjórn dragi hlut með sjónarmiðum Húss atvinnulífsins og stjórnarandstöðuflokkanna. Það myndi væntanlega falla undir sérstakt vanhæfi í stjórnsýslurétti. Í því tilviki getur mat Alþingis á alvarleika brotsins ráðið því hvort landskjörstjórn þurfi að víkja eða ekki.

Sé aftur á móti um gáleysi að ræða virðist óhjákvæmilegt að líta svo á að landskjörstjórn skorti almenna þekkingu á hlutverki sínu lögum samkvæmt. Það þýðir að hún er almennt óhæf til að gegna starfanum. Í því tilviki yrði hún vafalítið að segja af sér.“

Kristín Edwald er formaður landskjörstjórnar.

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Við munum hvernig ,,klíkuklúbbasamfélagið" fór með stjórnarskrármálið með Jón Steinar í fararbroddi og hina í ,,klíkuklúbbnum" , sem ætlar enn að koma í veg fyrir að venjulegur íslendingur hafi möguleika á að sýna hvað hann vill ?
    6
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Ef efnisatriði textans, í fréttinni, eiga við rök að styðjast, þá er þetta barasta alveg ga ga !!! Annað hvort fúsk eða ásetningur m.t.t. ákveðna sjónarmiða / hagsmuna. Er þetta þá dæmi um pokafólk í íslenskri stjórnsýslu eða strengjabrúður sem taka mið af einhverjum barnalegum hagsmunum? Svo sem skiptir ekki máli hvort er því hvorutveggja kemur frá sama stað, sömu uppsprettu. Svo er líka engin munur á skít eða kúk.
    2
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Athyglisverðir tafaleikir hjá þeim sem eru á móti samtölum milli aðila.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
4
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
6
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár