Ríkið telur áfengisdóm samhljóma sænskum og finnskum fordæmum

ÁTVR telur að nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­ness í áfeng­is­sölu­máli Smá­ríks­ins sam­hljóma úrskurðum í nágranna­ríkjum síð­ustu ár. For­svars­maður Smá­rík­is­ins hyggst áfrýja dómnum.

Ríkið telur áfengisdóm samhljóma sænskum og finnskum fordæmum
Smáríkið Versl­unin hefur aug­lýst áfengi á sam­fé­lags­miðlum og opnað nokkuð af úti­búum und­an­farin miss­eri.

ÁTVR sýn­ist við fyrstu sýn að dómur í máli Smá­rík­is­ins sé sam­hljóða dómum sem hafa fallið í sam­bæri­legum málum í Finn­landi og Svíþjóð. Smáríkið hefur til­kynnt að dómnum verði áfrýjað til Lands­réttar, en for­svars­maður fyr­ir­tæk­is­ins, Vil­hjálmur Forberg Ólafsson, var dæmdur fyrir brot á áfeng­is­lögum og til greiðslu hund­rað þús­und króna í sekt fyrir að selja hvítvíns­belju í gegnum net­sölu.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefur ekki enn birt dóm­inn á vef sínum þegar þetta er ritað, en í ákæru á sínum tíma kom fram að ákæru­valdið liti svo á að áfengið yrði að vera erlendis þegar það væri pantað og það væri því óheim­ilt að flytja það til lands­ins, selja og afhenda eftir að það er komið til lands­ins.

Lagalegt tómarúm

Í grunn­inn snýst málið um grund­vall­ar­reglur Evr­ópu­sam­bands­ins, það er, frjálst flæði vöru og þjón­ustu milli ríkja og svo áfeng­is­laga á Íslandi þar sem ÁTVR hefur einka­rétt­inn á áfeng­is­sölu. Íslend­ingar …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Í ljósi grafalvarlegra afleiðinga netsölu á áfengi á lýðheilsu, milljarða þjóðhagslegt tjón á ári og ómæld óhamingja fjölmargra fjölskyldna. Er ekki nauðsynlegt að skipa rannsóknarnefnd til að komast til botns í hvers vegna rannsókn málsins tók hreint ótrúlega langan tíma? Rannsóknarnefndir hafa verið skipaðar af mun minna tilefni. Þjóðin á rétt á skýringu. Var eitthvað óeðlilegt á ferðinni?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár