„Loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengislöggjöfinni“

Eigandi Smá­rík­is­ins hefur verið fundið sekur um að brjóta gegn lögum um áfeng­is­sölu og sektaður um hund­rað þús­und krónur. Málið hefur verið póli­tískt bit­bein um ára­bil.

„Loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengislöggjöfinni“
Árni Guð­munds­son Formaður sam­tak­anna For­eldra­sam­tök gegn áfeng­is­aug­lýs­ingum kærði sig sjálfan til þess að hvetja lög­reglu áfram í rann­sókn sinni.

„Ég segi bara loks­ins, loks­ins hefur verið brugð­ist við hinu aug­ljósa broti á áfeng­is­lög­gjöf­inni,“ segir Árni Guð­munds­son, lektor við Háskóla Íslands í tóm­stunda- og félags­mála­fræði og for­mað­ur for­eldra­sam­taka gegn áfeng­is­aug­lýs­ing­um. Hann gekk svo langt að kæra sig sjálfan fyrir ólög­leg áfeng­is­kaup fyrir nokkrum árum síðan. Það gerði hann til þess að mót­mæla seina­gangi lög­regl­unnar í rann­sókn á smá­sölu áfengis á net­inu. Nú liggur loks fyrir dómur, þó ekki tengdur máli Árna, heldur vegna sölu Smá­ríks­ins á hvítvíns­belju. Var Vil­hjálmur Forberg Ólafsson, for­svars­maður áfeng­is­net­versl­un­ar­innar Smá­rík­is­ins, sektaður um hund­rað þús­und krónur fyrir söl­una en dóm­ur­inn hefur ekki enn verið birtur.

Pólitískt bitbein

Málið hefur verið sér­kenni­legt póli­tískt bit­bein. ÁTVR lét reyna á net­sölu áfengis en því máli var vísað frá hér­aðs­dómi árið 2022. Málinu var ekki áfrýjað og mátti rekja þá ákvörðun til þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar. Síðan þá hefur smá­sala áfengis verið í laga­legu tómi ef svo má að orði kom­ast, en For­varn­ar­sam­tökin voru þó ósam­mála því og kærðu smá­söl­una til lög­reglu á þeim for­sendum að áfeng­is­lög­gjöfin væri full­kom­lega skýr hvað smá­sölu varðar. Fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, Sigurður Ingi Jóhanns­son, var síðar gagn­rýndur harð­lega fyrir að hvetja lög­reglu til þess að fullrann­saka þessi mál eftir umtals­verðan drátt á rann­sókn­inni og var hann sak­aður um óeðli­leg afskipti af fram­kvæmd­ar­vald­inu í kjöl­farið. Það var eftir að rík­is­sak­sókn­ari krafð­ist þess að fá svör vegna seina­gangs lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í rann­sókn á net­sölu á áfengi.

Hugsi yfir Hagkaup

Í umfjöllun Vísis, sem greindi fyrst frá nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms, kemur fram að félagið sem seldi að end­ingu áfengið hér á landi hafi keypt það af íslenskum heild­sala en ekki beint af erlendum aðila, eins og heim­ilt er sam­kvæmt reglum EES samn­ings­ins.

Var því nið­ur­staðan sú að fyr­ir­tækið gerð­ist brot­legt við áfeng­is­lögin með því að brjóta gegn einka­leyfi ÁTVR.

Árni er hugsi yfir mál­inu og bendir á að fleiri selji áfengi í smá­sölu og nefnir þar Hagkaup sér­stak­lega.

„Það er engin laga­leg óvissa eftir, að okkar mati, og því hljóta líf­eyr­is­sjóð­irnir að hugsa sinn gang varð­andi áfeng­is­sölu í versl­unum sem þeir eiga að stórum hluta,“ segir Árni sem er full­viss um að málið sé borð­leggj­andi. „Það væri í okkar huga eig­in­lega bara kjána­skapur að vera að áfrýja þessu, enda skýr nið­ur­staða í mál­inu,“ segir Árni sem lítur á nið­ur­stöð­una sem fulln­að­ar­sigur.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Skilst, að málið hafi tapast á því, að beljan var keypt af innlendum heildsala. Væntanlega auðvelt að stífla upp í það gat.
    0
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Í ljósi grafalvarlegra afleiðinga netsölu á áfengi á lýðheilsu, milljarða þjóðhagslegt tjón á ári og ómæld óhamingja fjölmargra fjölskyldna. Er ekki nauðsynlegt að skipa rannsóknarnefnd til að komast til botns í hvers vegna rannsókn málsins tók þetta hreint ótrúlega langan tíma? Rannsóknarnefndir hafa verið skipaðar af mun minna tilefni. Þjóðin á rétt á skýringu. Var eitthvað óeðlilegt á ferðinni?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár