Trump frestar eyðingu íranskrar siðmenningar

Seg­ir Ír­an hafa sent áætl­un í 10 lið­um sem hægt sé að vinna með og frið­ur sé langt kom­inn. Þó grein­ir Ísra­el frá loft­árás­um.

Trump frestar eyðingu íranskrar siðmenningar

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti rétt í þessu að hann hefði fallist á að fresta árásum á Íran, sem hann hafði sagt að myndu eyða siðmenningunni varanlega, um tvær vikur.

Ástæðurnar segir hann að Íran hafi sent áætlun í 10 liðum sem hægt sé að vinna með.

Trump sagðist vera reiðubúinn til vopnahlés í stríðinu ef Teheran opnaði aftur hið mikilvæga Hormússund að fullu.

„Ég samþykki að fresta sprengjuárásum og árás á Íran í tvær vikur,“ birti Trump á samfélagsmiðlum rúmri klukkustund fyrir lokafrestinn, eftir viðræður við pakistanska sáttasemjara. Þá segir hann endanlegt samkomulag um langtímafrið langt komið.

Engu að síður tilkynnti Ísrael um loftárásir frá Íran eftir að Trump gaf út yfirlýsinguna.

Olíuverð á heimsmarkaði féll um 7% við yfirlýsingu forsetans.

Færsla forsetansForsetinn er skyndilega í friðarhug eftir að hafa hótað eyðingu siðmenningar Írans á miðnætti í kvöld.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Enn einn kaflinn í þessu sjúka raunveruleika sjónvarpi hjá þeim appelsínugula. Hvað ætli Trump og Witkoff fjölskyldurnar hafi hagnast mikið á crypto veðmála síðunum. Og Bandaríska þjóðin og heimurinn allur situr uppi með reikninginn. Og árangurinn er bara eyðilegging og hörmungar, og nú vita Íranir að þeir geta lamað heims hagkerfið. Glæsileg lausn á vandamáli sem var ekki til staðar. Klerka stjórnin í Íran er vond en sú Bandaríska er hættulegri og óstöðugari fyrir heiminn.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
4
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
6
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár